Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þurfti að veiða fiska með spjóti til að fæða fjölskylduna

„Við lifum allt of mikið í kvíða fyrir fram­tíð­inni“

Þurfti að veiða fiska með spjóti til að fæða fjölskylduna
Jacob Wood Mynd: Skjáskot

Jacob Wood, sem um ára­bil hefur búið á Íslandi, segir óhefð­bundið upp­eldi sitt hafa kennt sér að lifa í takt við nátt­úr­una og takast á við lífið frá unga aldri. Hann er nýjasti gestur Sölva Tryggva­sonar í hlað­varpi hans og ræðir þar meðal ann­ars æsku sína, lífs­bar­átt­una á Hawaii og áhuga sinn á heild­rænni heilsu.

Jacob er giftur Tinnu Sif Sig­urð­ar­dóttur en þau kynnt­ust á kenn­ara­nám­skeiði í Acro-Yoga í Kanada. Hann segir for­eldra sína hafa verið mikla hippa og fjöl­skyldu­lífið frá­brugðið því sem flest börn þekkja.

„Sagan mín er tals­vert óhefð­bundin og upp­eldið sem ég fékk var ólíkt því sem flestir þekkja,“ segir Jacob.

Eftir að for­eldrar hans skildu flutti móðir hans með börnin til Hawaii. Fjöl­skyldan hafði lítið á milli hand­anna og að sögn Jacobs varð hún heim­il­is­laus eftir að móð­irin hætti að fá félags­lega aðstoð. Yngstu börnin gátu dvalið með móður sinni í tjaldi en eldri systk­inin þurftu að mestu að bjarga sér sjálf.

Jacob segir tím­ann hafa ein­kennst bæði af miklu frelsi og dag­legri lífs­bar­áttu. Hann veiddi meðal ann­ars fisk með spjóti til að afla matar og fjöl­skyldan sótti ávexti út í nátt­úr­una.

„Það var eng­inn matur nema einn dag í einu og oft fór ég og veiddi fiska með spjóti og náði þannig að fæða sjálfan mig og fjöl­skyld­una,“ segir hann.

Þrátt fyrir erf­iðar aðstæður lítur Jacob á reynsl­una sem mik­il­vægan hluta af mótun sinni. Hún hafi kennt honum að bjarga sér og að lífið þurfi ekki að vera jafn flókið og fólk geri það gjarnan.

„Við lifum allt of mikið í kvíða fyrir fram­tíð­inni, í stað þess að vera í núinu,“ segir Jacob.

Jacob og Tinna hafa á und­an­förnum árum kennt Acro-Yoga bæði hér á landi og erlendis. Þau hafa jafn­framt lagt áherslu á að afla sér þekk­ingar á heild­rænni heilsu, sam­böndum, nánd og lík­ams­vit­und.

Tinna hefur sér­hæft sig í lík­ams­mið­aðri mark­þjálfun en Jacob hefur í sinni vinnu blandað saman mark­þjálfun, jóga og nuddi. Hann segir mark­miðið vera að nálg­ast hvern ein­stak­ling á heild­rænan hátt og skapa aðstæður fyrir var­an­legar breyt­ingar.

Þau hafa einnig lagt áherslu á lík­ams­vit­und og hvernig skömm og sam­fé­lags­leg við­mið geti haft áhrif á sam­band fólks við eigin lík­ama.

„Líkaminn er magnað fyr­ir­bæri, en samt hugsum við oft illa um hann, bæði hvað snýr að hreyf­ingu, matar­æði og svefni, en líka með gagn­rýnum hugs­unum okkar,“ segir Jacob.

Hann telur að með auk­inni lík­ams­vit­und og jákvæð­ara sam­bandi við eigin lík­ama verði auð­veld­ara fyrir fólk að átta sig á eigin þörfum og hlúa betur að heils­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una