Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Höfuð fórnarlambanna hafa aldrei fundist

Breskur raðmorð­ingi sem bút­aði fórn­ar­lömb sín niður er lát­inn

Höfuð fórnarlambanna hafa aldrei fundist
„Skurða­morð­ing­inn“ John Sweeney Mynd: Facebook

Breski raðmorð­ing­inn John Sweeney, sem var þekktur undir nafn­inu „skurða­morð­ing­inn“ (e. the canal killer), er lát­inn 69 ára að aldri. Hann lést úr krabba­meini á HMP Whitemoor fang­els­inu í Cambridgeshire þann 14. ágúst, sam­kvæmt frétt breska blaðs­ins The Times. Sweeney tók leynd­ar­málið um afdrif höfuð fórn­ar­lamba sinna með sér í gröf­ina.

Hrottaleg morð og limlestingar

Sweeney hlaut lífs­tíð­ar­dóm árið 2011 fyrir að myrða tvær fyrr­ver­andi kærustur sínar, þær Melissu Halstead og Paulu Fields. Hann bút­aði lík þeirra niður og fleygði lík­ams­hlut­unum í skipa­skurði í Lundúnum og Hollandi:

Melissa Halstead (33 ára) var banda­rísk fyr­ir­sæta sem Sweeney myrti árið 1990. Líki hennar var hent í skurð í Rott­er­dam. Hún var ekki auð­kennd fyrr en 18 árum síðar með DNA-tækni. Höfuð hennar og hendur hafa aldrei fund­ist.

Lík­ams­leifar Paula Fields (31 árs) fund­ust í sex ferða­töskum í Regent's-skurð­inum í Lundúnum árið 2001. Höfuð, hendur og fætur hennar hafa aldrei fund­ist.

Sak­sókn­arar sögðu á sínum tíma að Sweeney, sem var húsa­smiður, hefði vís­vit­andi fjar­lægt höfuð og hendur kvenn­anna til að gera lög­reglu ókleift að bera kennsl á þær. Á heim­ili hans fund­ust hroll­vekj­andi mál­verk og ljóð þar sem hann mont­aði sig af ofbeld­is­verkum og kall­aði sig „Hár­svörða­safnar­ann“ (e. the Scalp Hunter).

Komst upp um hann eftir axarárás

Sweeney var ekki tengdur við hvarf kvenn­anna fyrr en hann var hand­tek­inn fyrir lífs­hættu­lega axar­árás á þriðju kærust­una, hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn Delia Balmer.

Balmer lifði árás­ina af eftir að nágranni kom henni til bjargar. Sweeney hafði áður haldið henni fang­aðri í viku, bundið hana við rúm og beitt hana grófu ofbeldi. Balmer skrif­aði síðar end­ur­minn­inga­bók um skelf­ing­una, sem sjón­varps­stöðin ITV aðlag­aði í þátta­röð­ina Until I Kill You árið 2024.

Grunaður um fleiri morð

Lög­reglan ótt­ast að fórn­ar­lömb Sweeneys séu fleiri. Enn er lýst eftir tveimur suður-amer­ískum konum sem voru í sam­bandi við hann seint á tíunda ára­tugnum og hurfu spor­laust. Lög­reglan veit aðeins skírn­ar­nöfn þeirra, Irani frá Brasilíu og Maria frá Kólumbíu og vinnur með ræð­is­manns­skrif­stofum að því að hafa uppi á þeim.

Tals­maður bresku fang­els­is­mála­stofn­un­ar­innar segir að emb­ætti umboðs­manns fanga rann­saki nú and­lát Sweeneys, eins og lög gera ráð fyrir þegar fangar deyja í haldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco