Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bandaríkjamenn fjarverandi á krúnudjásni Norður-Víkings

Illugi kallar eftir „plani B“ í varn­ar­málum

Bandaríkjamenn fjarverandi á krúnudjásni Norður-Víkings
Banda­ríkin pakka saman í Evrópu myndin er frá varnaræf­ingin Norður-Víkings 2022 í Hval­firði Mynd: Stjórnarráðið

Mikil breyt­ing varð á fram­kvæmd her­æf­ing­ar­innar Norður-Víkingur í ár þegar banda­rísk her­skip og loft­för lögðu í fyrsta sinn ekk­ert til sjálfrar kaf­báta­leita­ræf­ing­ar­innar, sem sögð er krúnu­djásn æfing­ar­innar. Banda­ríkja­menn hafa leitt æfing­una allt frá árinu 2006, en hún byggir á 75 ára gömlum varn­ar­samn­ingi Íslands og Banda­ríkj­anna.

Í stað Banda­ríkj­anna voru það Kanada, Belgía, Frakk­land og Þýska­land sem eltu kaf­báta við Íslands­strendur ásamt íslenskum við­bragðs­að­ilum. Fjarvera Banda­ríkj­anna hefur vakið athygli og við­brögð, meðal ann­ars hjá Illuga Jök­uls­syni rit­höf­undi og fjöl­miðla­manni, sem tjáði sig um málið á opin­berri síðu sinni.

„Því verður samt ekki á móti mælt að æfingin Norður-Víkingur gengur út á að æfa varnir Íslands gegn utan­að­kom­andi ógn. Í því ljósi er merki­legt að Banda­ríkja­menn nenntu ekki að taka þátt í ár og hafa greini­lega ekki einu sinni nennt að segja félögum sínum í NATÓ hvers vegna þau væru ekki með,“ skrifar Illugi. Hann bætir því við að í ljósi þess að margir telji varn­ar­samn­ing­inn full­nægj­andi vörn, sýni þetta fram á breytta tíma. „Það er ljóst að við verðum að vera til­búin með plan B hvað snertir varnir Íslands. Mér dettur til dæmis í hug hvort ekki væri væn­legt að sækja bara um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“

Draga úr viðbúnaði í Evrópu

Martin O'Donnell ofursti, hátt­settur tals­maður NATO, stað­festi í sam­tali við Vísi að Banda­ríkin hefðu ekki verið með neinar flug­vélar eða skip í Norður-Víkingi í ár. Hann kvaðst ekki geta svarað fyrir ástæður þess og vís­aði á Banda­ríkja­stjórn. O'Donnell lagði þó áherslu á að Banda­ríkja­menn hefðu tekið þátt í öðrum, smærri hliðar­æf­ingum í kringum Norður-Víking, svo sem tjald­búða­hönnun og við­gerðum á Kefla­vík­ur­flug­velli. Telur hann breyt­ing­una sýna „sterk­ari Evrópu núna og sterkara NATO.“

Breytt þátt­taka fellur hins vegar að stærra sam­hengi. Rík­is­stjórn Donalds Trump í Banda­ríkj­unum gaf út í sumar að hún hygð­ist draga úr hern­að­ar­legu fram­lagi til NATO í Evrópu og herja á aðild­ar­ríki að leggja meira fé til varn­ar­mála. Sem liður í því sendi Banda­ríkja­stjórn nýverið spurn­inga­lista til aðild­ar­ríkj­anna, þar á meðal Íslands, þar sem spurt er út í stuðn­ing við utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna og kaup á banda­rískum her­gögnum. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki gefið upp hvort list­anum hafi verið svarað en lýsti því yfir að varnaræf­ingin sjálf hefði lukk­ast vel í sam­tali við Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina