Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Heimilislæknar lýsa yfir sárum vonbrigðum

„Stefnir í enn verra ástand“

Heimilislæknar lýsa yfir sárum vonbrigðum
Félag íslenskra heim­il­is­lækna gagn­rýnir fjár­laga­frum­varp árs­ins 2027 harð­lega Mynd: SIWAPON WONGSIRISAK/Shutterstock

Stjórn Félags íslenskra heim­il­is­lækna (FÍH) lýsir yfir þungum áhyggjum og sárum von­brigðum með fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2027. Í yfir­lýs­ingu frá félag­inu kemur fram að fyr­ir­huguð fjár­aukn­ing dugi hvergi nærri til að vinna á upp­söfn­uðum vanda heilsu­gæsl­unnar. Óttast er að þjón­usta við lands­menn muni skerð­ast enn frekar.

Heim­il­is­læknar benda á að þegar tekið sé til­lit til fólks­fjölg­unar og launa­þró­unar sé ljóst að færri krónur verði til umráða fyrir hvern ein­stak­ling í sam­fé­lag­inu. Gangi frum­varpið eftir óbreytt muni það fjarri því leysa þann alvar­lega fjár­hags­vanda sem heilsu­gæslur og heil­brigð­is­stofn­anir glíma við í dag­legum rekstri, heldur þvert á móti gera óvið­un­andi ástand enn verra.

Sérnám í uppnámi og uppsagnir á Landspítala

Eitt alvar­leg­asta áhyggju­efnið sem stjórn FÍH nefnir lýtur að menntun nýrra lækna. Sérnám í heim­il­is­lækn­ingum er sagt ófjár­magnað og vísar félagið í nýjar fregnir þess efnis að Land­spít­ali hafi þegar sagt upp stöðum sér­náms­lækna í grein­inni í sparn­að­ar­skyni.

Að mati félags­ins er það hrein mót­sögn að halda áfram van­fjár­mögnun á sama tíma og stefnt er að því að fjölga þeim Íslend­ingum sem hafa aðgang að föstum lækni.

Telja ríkisstjórnina sýna lítinn vilja

Í yfir­lýs­ing­unni minnir stjórn FÍH rík­is­stjórn­ina á eigin stefnu­yf­ir­lýs­ingu. Þar er sér­stak­lega kveðið á um það í 14. lið að allir lands­menn skuli eiga rétt á föstum heim­il­is­lækni.

Félagið telur að miðað við for­gangs­röð­un­ina í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2027 sé deg­inum ljós­ara að rík­is­stjórnin sýni lít­inn sem engan vilja til þess að standa við þetta lof­orð gagn­vart almenn­ingi í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina