Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

„Og svar­aðu nú“

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur
Jóhannes Haukur Jóhann­es­son Mynd: FRAZER HARRISON / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / GETTY IMAGES VIA AFP

Leik­ar­inn Jóhannes Haukur Jóhann­es­son hefur á Facebook beint nokkrum spurn­ingum til Mál­fríðar Bjarna­dóttur, stofn­anda smá­forrits­ins Læsis, í kjöl­far umræðu síð­ustu daga um notkun for­rits­ins í grunn­skólum.

Jóhannes hafði áður gagn­rýnt Læsi harð­lega og lýst for­rit­inu sem sam­fé­lags­miðli fyrir börn. Mál­fríður leið­rétti þá lýs­ingu í sam­tali við Vísi og sagði Læsi hvorki vera sam­fé­lags­miðil né for­rit ætlað börnum. Forritið er ætlað for­eldrum til þess meðal ann­ars að halda utan um heima­lestur barna.

Mál­fríður sagði í sam­tali við Vísi í gær að hún teldi umræð­una um Læsi að miklu leyti ósann­gjarna, þótt fyr­ir­tækið fagni gagn­rýni og ábend­ingum.

„Við fögnum öllum ábend­ingum og allri gagn­rýni en okkur finnst þetta svo­lítið ósann­gjörn umræða eins og hún er sett fram núna,“ sagði Mál­fríður.

Hún sagði jafn­framt að margar breyt­ingar og við­bætur í Læsi hefðu orðið til eftir ábend­ingar frá kenn­urum og for­eldrum og að for­svars­menn for­rits­ins hefðu gjarnan viljað ræða málið við Jóhannes áður en gagn­rýnin var sett fram opin­ber­lega.

„Við hefðum fagnað því mjög mikið ef hann Jóhannes hefði haft sam­band við okkur,“ sagði Mál­fríður.

„Þarna er verið að líkja Læsi við sam­fé­lags­miðil. Í okkar huga er Læsir nátt­úru­lega alls ekki sam­fé­lags­mið­ill af því að þarna ertu ekki með neina aðra en sjálfa þig. Þú hefur ekki aðgang að neinu hjá öðrum og það er eng­inn frétta­veggur, engir vinir, engin læk, engin ummæli. Þú getur ekki fylgst með fram­vindu hjá neinum öðrum heldur en bara þínu eigin barni.“

Jóhannes heldur áfram

Jóhannes hefur nú beint sjónum sínum að öðrum þáttum tengdum Læsi, meðal ann­ars kostn­aði sveit­ar­fé­laga, gagna­öflun og samn­ingum hins opin­bera við fyr­ir­tækið Skóla­lausnir.

„Ég hefði líka þegið sam­tal áður en þessu appi var þröngvað upp á mig. En það var ekki boðið upp á það. En þá skulum við bara taka sam­tal núna,“ skrifar Jóhannes og beinir orðum sínum að Málfríði.

Hann tekur fram að sumir for­eldrar séu ánægðir með Læsi og eigi að geta notað for­ritið kjósi þeir það. Hann gagn­rýnir hins vegar að for­eldrum sé gert að nota það í sumum skólum og telur að ekki eigi að skylda alla til notk­unar.

Jóhannes gerir jafn­framt athuga­semdir við skrán­ingu upp­lýs­inga um heima­lestur, meðal ann­ars mín­útu­fjölda og blað­síðu­fjölda. Hann veltir því upp hvort slíka skrán­ingu mætti fremur fram­kvæma í Mentor.

Þá óskar leik­ar­inn eftir upp­lýs­ingum um hvað Reykja­vík­ur­borg hafi greitt fyrir Læsi frá upp­hafi og hver árlegur kostn­aður borg­ar­innar sé. Hann vill einnig vita til hversu langs tíma samn­ingur hafi verið gerður og hvað önnur sveit­ar­fé­lög greiði fyrir þjón­ust­una.

Að lokum spyr Jóhannes hvort opin­berir aðilar setji ein­hver skil­yrði um breyt­ingar og upp­færslur á for­rit­inu eða hvort Skóla­lausnir hafi frjálsar hendur um hvaða virkni sé bætt við.

„Og svar­aðu nú,“ segir Jóhannes í lok færsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina