Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Fannst fastur inn í gröfu

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Kett­lingur Mynd: Samsett

Örsmár kett­lingur, sem fannst fastur inni í stórri gröfu á vinnu­svæði í Ohio í Banda­ríkj­unum, hefur eign­ast nýtt heim­ili hjá starfs­manni verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins sem bjarg­aði honum. Kett­ling­ur­inn hefur jafn­framt orðið að nokk­urs konar lukku­dýri fyr­ir­tæk­is­ins.

Starfs­menn River Reach Construction voru að und­ir­búa vinnu­vélar fyrir fram­kvæmdir við stíflu þegar Chase Guello, rekstr­ar­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og bróðir hans Clay heyrðu mjálm ber­ast úr Komatsu-gröfu.

Við nán­ari athugun kom í ljós að örsmár kett­lingur var fastur djúpt inni í snún­ings­hluta vél­ar­innar. Talið var að hann væri aðeins um tveggja vikna gam­all.

Björg­unin reynd­ist nokkuð umfangs­mikil. Chase þurfti að skríða undir gröf­una og fjar­lægja þar þungar hlífð­arplötur, sem vógu um 45 kíló hver, áður en honum tókst að kom­ast að kett­lingnum og ná honum út.

Móður kett­lings­ins var hvergi að finna og gáfu starfs­menn­irnir honum því mjólk áður en hann var færður í umsjá reyndrar fóst­ur­fjöl­skyldu. Kett­ling­ur­inn fékk nafnið Sue, sem er dregið af Komatsu, teg­und gröf­unnar þar sem hann fannst.

Mynd­skeið af björg­un­inni vöktu mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og fengu millj­ónir áhorfa. Komatsu North America frétti einnig af Sue og sendi kett­lingnum sér­stakt end­ur­skins­vesti og lít­inn örygg­is­hjálm með götum fyrir eyrun.

Eftir nokkrar vikur í fóstri fékk Sue síðan var­an­legt heim­ili hjá Jared, vél­virkja hjá River Reach Construction, og tveimur sonum hans.

Sue hefur þó ekki sagt skilið við vinnu­stað­inn. Hún kemur reglu­lega á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins á föstu­dögum og hefur þar með tekið að sér óform­legt hlut­verk vinnu­staða­kattar og lukku­dýrs fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco