Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Tilraunin fór þó ekki alveg samkvæmt áætlun í upphafi

Minneapolis
Minn­ea­polis Mynd: BpA9543/Wikipedia

Sammy Lett, 27 ára íbúi í Minneapolis í Banda­ríkjunum, hefur vakið töluverða athygli fyrir óvenjuleg uppátæki sem ætlað er að fá fólk til að sleppa fram af sér beislinu og eiga samskipti við ókunnuga.

Í sumar hengdi Lett upp auglýsingar víða um Minneapolis þar sem hann bauð fólki tíu dollara, jafnvirði um 1.200 króna, fyrir að mæta á ákveðnum tíma í Father Hennepin Bluff Park. Verkefnið var einfalt. Fólk átti að finna óþekktan mann sitjandi á bekk með óreimaðan skó og reima skóinn fyrir hann.

Óþekkti maðurinn var Lett sjálfur.

Tilraunin fór þó ekki alveg samkvæmt áætlun í upphafi. Þegar Lett mætti í garðinn hafði annar maður sest á nálægan bekk, einnig með óreimaðan skó. Auk þess stóð tíu dollara seðill upp úr bók sem hann hélt á. Nokkrir þátt­takendur töldu því að þar væri rétti maðurinn kominn og byrjuðu að reima skó hans, honum til mikillar undrunar.

Lett náði loks stjórn á aðstæðum og borgaði átta einstaklingum sem þorðu að ganga upp að honum og reima skóinn. Að hans sögn var markmiðið ekki að gera fólk að athlægi heldur skapa skemmtilega og óvænta upplifun.

Þetta er langt frá því að vera eina sérkenni­lega uppátæki Letts. Hann hefur meðal annars skipulagt lautar­ferð þar sem þátt­takendur klæddust sem krákur og hátíð tileinkaða risastóru geitunga­hreiðri.

Lett segir við Star Tribune mikla þörf vera fyrir einfaldar og kjánalegar upplifanir þar sem fólk leggur símana frá sér, hittir annað fólk og leyfir sér að vera svolítið skrýtið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.
Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku