Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

„Það liggur engum svona mikið á að líf veg­far­enda þurfi að liggja við“

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Kársnes Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Áhyggjur eru meðal íbúa í Kópavogi vegna umferð­ar­ör­yggis barna og ann­arra gang­andi veg­far­enda. Móðir á Kársnesi segir ítrekað hafa komið fyrir að öku­menn stöðvi ekki fyrir sex ára dóttur hennar þegar hún bíður við gang­braut á leið sinni í skól­ann.

María Magn­ús­dóttir vakti athygli á mál­inu í Facebook hópnum Kárs­nesið Okkar. Þar lýsir hún áhyggjum sínum af hegðun öku­manna og hvetur þá til þess að sýna meiri aðgát í umferð­inni.

„Ég hef ítrekað orðið vitni að því að 6 ára dóttir mín stendur við gang­braut á leið í skól­ann og akandi veg­far­endur stoppa ekki til að hleypa henni yfir,“ skrifar María.

Hún minnir jafn­framt öku­menn á skyldur þeirra gagn­vart gang­andi veg­far­endum við gang­brautir og spyr hvort ekki sé hægt að gera betur þegar kemur að öryggi þeirra sem fara um Kárs­nesið fót­gang­andi.

Segir ökumann hafa tekið fram úr á Kópavogsbraut

Fleiri íbúar tóku undir áhyggjur Maríu. Ragn­heiður Júlía Ragn­ars­dóttir segir mik­il­vægt að öku­menn dragi úr hraða og bendir á að hámarks­hraði sé víða 30 kíló­metrar á klukku­stund á Kársnesi.

Hún lýsir jafn­framt atviki sem hún varð fyrir á Kópa­vogs­braut þegar öku­maður tók fram úr henni þrátt fyrir að hún hefði sjálf verið á rúm­lega 30 kíló­metra hraða.

„Það liggur engum svona mikið á að líf veg­far­enda þurfi að liggja við,“ skrifar Ragn­heiður.

Gestur Val­garðs­son tekur í sama streng og segir öku­menn þurfa að vera sér­stak­lega var­kára og sýna gang­andi veg­far­endum virð­ingu.

Segir sama vandamál vera á Digranesvegi

Umræðan virð­ist ekki ein­göngu bundin við Kárs­nesið. Katrín Stein­ars­dóttir segir sam­bæri­legt vanda­mál hafa verið við­var­andi á Digra­nes­vegi um ára­bil.

Hún seg­ist í gegnum tíð­ina hafa orðið vitni að atvikum þar sem litlu mun­aði að börn hennar og ann­arra yrðu fyrir bíl. Hún lýsir ástand­inu sem alvar­legu vanda­máli og segir meðal ann­ars hafa komið fyrir að öku­maður hafi ekið yfir gang­braut þrátt fyrir rautt ljós.

Færsl­urnar sýna að nokkrir íbúar hafa veru­legar áhyggjur af umferð­ar­ör­yggi barna í Kópavogi. Sérstök áhersla er lögð á að öku­menn virði gang­brautir, dragi úr hraða og sýni aukna aðgát þar sem börn eru á ferli, ekki síst á morgn­ana þegar þau eru á leið í skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina