Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Karl­maður á fimm­tugs­aldri í haldi lög­reglu, grun­aður um morð.

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Dr. Hannah Cain Lækn­ir­inn fannst látin á heim­ili sínu Mynd: Trausti Hafsteinsson

Heim­il­is­læknir fannst látin á heim­ili sínu þar sem hún hélt nátt­fatap­artý fyrir börn, að sögn íbúa á svæð­inu.

Hannah Cain, sem var á fimm­tugs­gs­aldri, fannst látin í Ders­ing­ham í Norfolk snemma á sunnu­dags­morgun. Bærinn er í útjaðri Sandring­ham-jarð­ar­innar.

Karl­maður á fimm­tugssaldri hefur verið hand­tek­inn grun­aður um morð og er enn í haldi lög­reglu.

Hannah, sem gekk undir nafn­inu Dr. Hannah Terry í starfi sínu, starf­aði á heilsu­gæslu­stöð í nær­liggj­andi bæ, Grimston. Stöðinni var lokað í dag vegna þess sem stjórn­endur lýstu sem „afar erf­iðra aðstæðna sem hafa áhrif á starfs­fólk okkar“.

Hún starf­aði einnig hjá Norfolk Sky Aesthetics, fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í snyrti- og fegr­un­ar­með­ferðum.

Íbúar í Ders­ing­ham, sem er í um 1,6 kíló­metra fjar­lægð frá Sandring­ham-höll, segja að Hannah hafi átt ung börn og að fleiri börn hafi gist á heim­ili hennar þegar atburð­ur­inn átti sér stað. Húsið er stórt ein­býl­is­hús við Fern Hill.

Lögregla var kölluð að hús­inu um klukkan 2.20 aðfara­nótt sunnu­dags. Börnin sem þar voru fengu síðan far með lög­reglu­mönnum til fjöl­skyldna sinna.

Lögregla girti í kjöl­farið af svæðið við húsið.

Í gær­morgun sást vel­unn­ari leggja blóm fyrir utan húsið að sögn Mirror.

Sér­sveit­ar­menn komu á sendi­bíl síð­degis í gær og lögðu í inn­keyrslu nágranna. Þeir sáust fara í bláa hanska áður en þeir gengu inn í húsið.

Íbúar í þorp­inu lýstu því sem rólegum stað í Norfolk. Ein nágranna­kona sagði að Hannah hefði búið í hús­inu við Fern Hill í tíu ár. Gatan liggur út úr þorp­inu, með trjám með­fram veg­inum, og áfram út í opið sveita­land.

„Hún var ynd­is­leg mann­eskja og átti þrjú dásam­leg ung börn. Það er aug­ljóst að eitt­hvað hefur farið mjög illa úrskeiðis. Ég er ein­fald­lega orð­laus, við erum það öll,“ sagði konan.

Karl­maður á tíræð­is­aldri, sem býr í næsta húsi, sagði að hann hefði ekk­ert vitað fyrr en lög­reglan kom.

„Ég sá þau mjög sjaldan, en börnin voru ynd­is­leg. Þau spörk­uðu stundum fót­bolt­anum sínum inn í garð­inn minn og ég spark­aði honum aftur til þeirra. Stundum komu þau líka og spurðu hvort þau mættu koma inn og leita að bolt­anum.“

„Maður les um svona hluti ann­ars staðar,“ sagði annar nágranni. „En maður býst aldrei við að eitt­hvað þessu líkt ger­ist svona nálægt manni.“

Annar maður, sem hefur búið í nágrenn­inu í 50 ár, sagði þorpið ein­kenn­ast af vina­legu sam­fé­lagi.

„Ders­ing­ham er kannski ekki með eig­in­legan miðbæ, en það hefur hjarta,“ bætti hann við.

Annar íbúi sagði að þetta væri staður þar sem fólk gæti gleymt að læsa bílnum sínum yfir nótt án þess að nokkuð gerð­ist.

Rannsókn lög­reglu stendur enn yfir. Lögregla hefur fengið heim­ild til að halda hinum grun­aða í yfir­heyrslu í 32 klukku­stundir til við­bótar.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Norfolk segir:

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum hefur verið veittur við­bót­ar­tími til að yfir­heyra karl­mann sem var hand­tek­inn í tengslum við and­lát konu í Ders­ing­ham.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco