Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kannabisakstur endaði með árekstri við Þrastalund og tveimur bílum utan vegar

Ók í veg fyrir bif­reið sem kom úr gagn­stæðri átt

Kannabisakstur endaði með árekstri við Þrastalund og tveimur bílum utan vegar
Bisk­ups­tungu­braut Mynd: Ja.is/Skjáskot

Þrír erlendir öku­menn hafa verið ákærðir fyrir umferð­ar­laga­brot á Suð­ur­landi og verða mál þeirra þing­fest fyrir Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands í nóv­em­ber. Menn­irnir eru búsettir erlendis og er lög­heim­ili þeirra í öllum til­vikum skráð óþekkt.

Einn mann­anna er banda­rískur og með óþekkt lög­heim­ili í Banda­ríkj­unum. Honum er gefið að sök að hafa ekið á 128 kíló­metra hraða á klukku­stund um Suð­ur­lands­veg við Skálaveg í Rangár­þingi eystra í maí 2025. Leyfður hámarks­hraði á veg­inum var 90 kíló­metrar á klukku­stund.

Annar mað­ur­inn er með óþekkt lög­heim­ili í Bret­landi. Hann er ákærður vegna alvar­legs umferð­ar­at­viks á Bisk­ups­tungna­braut í Grímsnes og Grafn­ings­hreppi í nóv­em­ber 2024. Samkvæmt ákæru ók mað­ur­inn undir áhrifum kanna­bis­efnis.

Honum er gefið að sök að hafa ekið yfir á öfugan veg­ar­helm­ing skammt austan við Þrast­ar­lund og í veg fyrir bif­reið sem kom úr gagn­stæðri átt. Árekstur varð og höfn­uðu báðar bif­reið­arnar utan vegar. Auk refs­ingar og greiðslu sak­ar­kostn­aðar er þess kraf­ist að mað­ur­inn verði sviptur öku­rétti.

Þriðji mað­ur­inn er með óþekkt lög­heim­ili í Frakk­landi. Hann er ákærður fyrir að hafa ekið á 113 kíló­metra hraða á Suð­ur­lands­vegi við Botnaveg í Skaft­ár­hreppi í ágúst 2025 þar sem hámarks­hraði var 90 kíló­metrar.

Öll málin verða þing­fest fyrir Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands 19. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ