Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

Dómurinn féllst ekki á að Jón hefði verið í lög­mætri neyð­ar­vörn

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið
Edinborg Bistro Mynd: Ja.is/Skjáskot

Jón Guðni Pét­urs­son hefur verið dæmdur í sex mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi Vest­fjarða fyrir fjórar lík­ams­árásir. Þrír mán­uðir refs­ing­ar­innar eru skil­orðs­bundnir til þriggja ára en Jón hafði áður hlotið skil­orðs­bund­inn dóm fyrir tvær lík­ams­árásir.

Alvar­leg­asta atvikið sem fjallað var um í mál­inu átti sér stað í Bol­ung­ar­vík aðfara­nótt 8. júní 2025. Þar réðst Jón á systk­ini fyrir utan heim­ili þeirra.

Samkvæmt dóm­inum sló Jón karl­mann­inn nokkrum sinnum í and­litið með krepptum hnefa. Í átök­unum beit hann mann­inn einnig í litla fingur vinstri handar og í geir­vört­una eða bring­una. Fyrir dómi við­ur­kenndi Jón að vel gæti verið að hann hefði bitið mann­inn á þessum stöðum en hélt því fram að hann hefði gert það til að losna úr háls­taki.

Brota­þol­inn lýsti því hins vegar að Jón hefði ráð­ist á sig og veitt sér högg. Þegar hann hefði reynt að ná stjórn á Jóni hefði sá síð­ar­nefndi farið að bíta hann, meðal ann­ars í fingur og geir­vörtu. Brota­þol­inn kvaðst hafa verið með bit­far á geir­vört­unni og mar í kring eftir átökin.

Dómurinn féllst ekki á að Jón hefði verið í lög­mætri neyð­ar­vörn og taldi ósannað að brota­þol­inn hefði átt upp­tökin að árásinni.

Jón var jafn­framt sak­felldur fyrir árás á systur manns­ins. Samkvæmt nið­ur­stöðu dóms­ins spark­aði hann í hné hennar og líf­bein og tók hana háls­taki. Konan hlaut meðal ann­ars áverka á hálsi, mar og eymsli í hné.

Tvær árásir á Edinborg Bistro

Jón var einnig sak­felldur vegna tveggja aðskil­inna atvika á skemmti­staðnum Edinborg Bistro á Ísafirði.

Í mars 2025 sló hann starfs­mann stað­ar­ins með krepptum hnefa í and­litið. Jón ját­aði þá árás fyrir dómi. Ákæru­valdið féll hins vegar frá þeim hluta ákærunnar sem laut að meintri líf­láts­hótun.

Í sept­em­ber sama ár var Jón aftur á Edinborg Bistro. Honum hafði verið mein­aður aðgangur að staðnum vegna fyrri hegð­unar. Dómurinn taldi sannað að hann hefði kýlt dyra­vörð í and­litið milli auga­brún­anna þegar dyra­vörð­ur­inn reyndi að hindra hann í að kom­ast inn.

Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars horft til þess að Jón hafði áður verið dæmdur fyrir tvær lík­ams­árásir og rauf með nýju brot­unum skil­orð þess dóms. Dómurinn lýsti árás­unum sem til­efn­is­lausum og fólsku­legum.

Jóni var gert að sæta sex mán­aða fang­elsi, þar af þremur mán­uðum skil­orðs­bundnum, auk þess að greiða einum brota­þola 200 þús­und krónur í miska­bætur og annan kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina