Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Grinda­vík enn á hættu­svæði meðan land­ris heldur áfram

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Eldgos á Reykj­ar­nes­inu Á meðan land­ris heldur áfram er áfram hætta á eld­gosi Mynd: Shutterstock.com

Ari Trausti Guð­munds­son, jarð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, segir hættu á frek­ari eld­virkni við Grinda­vík enn vera fyrir hendi meðan land­ris heldur áfram á svæð­inu. Hann segir ómögu­legt að full­yrða að eld­virkni sé lokið og að ekki sé hægt að slá á hætt­una að svo stöddu.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Ara Trausta, þar sem hann fjallar um land­ris og eld­gosavá á svæð­inu norðan og vestan við Grinda­vík, meðal ann­ars við Svarts­engi og Bláa lónið.

Ari Trausti segir Veð­ur­stofu Íslands rétti­lega gefa út áfram­hald­andi við­var­anir í ljósi þess að kvika streymi enn inn í kviku­söfn­un­ar­svæðið, þótt inn­flæðið hafi farið hægt minnk­andi. Hann segir við­var­an­irnar sam­ræm­ast ábyrgð stjórn­valda á öryggi almenn­ings, var­úð­ar­regl­unni og þeim mæli­gögnum sem liggja fyrir.

„Enginn vafi leikur á að hættan á eld­virkni á umræddum slóðum er fyrir hendi allt þar til land­ris hættir og kyrrð fylgir í nokkurn tíma,“ skrifar hann.

Bendir á fordæmi frá Kröflu

Ari Trausti segir óvíst hvenær land­ris stöðvast og hvort það muni leiða til þess að hættan minnki. Hann bendir á að óþekkt sé hversu mikla spennu jarð­lögin á umbrota­svæð­inu geti þolað áður en frek­ari atburðir verða.

Hann segir aðeins eitt þekkt dæmi um sam­bæri­legt ferli: lok land­riss í Kröflu eftir eld­gosið árið 1984. Þá tók við langt tíma­bil þar sem land­ris varð sífellt hæg­ara þar til það stöðv­að­ist að lokum.

Ari Trausti von­ast til að þró­unin verði með sama hætti við Grinda­vík og Svarts­engi á næst­unni, þannig að land­ris hægi enn frekar á sér og stöðv­ist án frek­ari eldsum­brota.

Hann leggur þó áherslu á að ekki sé hægt að full­yrða að sú verði raunin.

„Far­sæl­ast er að eins fari nú og á næst­unni, í og við Grinda­vík. „Þess óskum vér öll“,“ skrifar Ari Trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina