Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

30 manns létust í ruslaslysi

Enn var leitað að fólki á svæðinu í dag

Urðunarstaðurinn
Urð­un­ar­stað­ur­inn Yfirvöld vilja ekki fólk sé á svæð­inu Mynd: AFP

Þrjátíu manns létust þegar hluti urðunar­staðar í Conakry, höfuðborg Gíneu, hrundi yfir nærliggjandi heimili aðfara­nótt sunnudags. Miklar rigningar höfðu gengið yfir svæðið áður en slysið varð.

Stjórn­völd í Gíneu greindu frá því að slysið hefði orðið í Dar-es-Salam-hverfinu í Gbessia, í útjaðri höfuð­borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum stjórn­valda særðust sex manns alvarlega.

Mikið magn úrgangs féll yfir íbúðarhús í grennd við urðunar­staðinn og gróf fólk undir. Björgunar­aðgerðir hófust í kjölfarið og voru gröfur meðal annars notaðar við leit í rústunum. Enn var leitað að fólki á svæðinu í dag.

Lancine Sylla, leiðtogi í hverfinu, hafði fyrr um daginn lýst yfir ótta við að mann­fallið yrði mikið. Hann sagði í samtali við AFP að 18 lík hefðu þegar fundist og verið flutt í líkhús.

Djenabou Toure, ráðherra sveitar­stjórnar­mála í Gíneu, fór á vettvang eftir slysið og fylgdist með björgunar­aðgerðum.

Stjórn­völd höfðu dagana fyrir slysið fyrir­skipað brott­flutning fólks af svæðinu og gripið til öryggis­ráðstafana vegna hættu á að urðunar­staðurinn gæti hrunið. Þrátt fyrir það voru íbúar enn á svæðinu þegar slysið varð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs