SlúðurSteina hundelt14. júlí 2023 Hjúkrunarfræðingurinn Steina Árnadóttir hefur farið um dimma dali eftir að sjúklingur á geðdeild Landspítalans lést á hennar vakt. Steina var sökuð um að hafa neytt mat ofan í sjúklingiunn svo hann kafnaði. Hún var ákærð vegna málsins og missti vinnuna. Það kom ekki mörgum á óvart að hún var sýknuð fyrir undirrétti. Reiknað var með að þannig yrði málinu lokið....
HeimurRak 90 prósent af starfsfólkinu13. júlí 2023 Forstjóri Indversku netverslunarinnar Dukaan, Suumit Shah, státaði sig af því á Twitter að hafa rekið 90% af starfsliði sínu í þjónustuveri á þeim forsendum að gervigreind spjallmenni væru áhrifaríkari en mannfólk. Hann spyr: Erfitt? Já. Nauðsynlegt? Algerlega. Hann lýsir því í þræðinum að viðbragðstími fyrstu svara hafi farið úr tæpum tveimur mínútum niður í nánast samstundis, úrlausnartíminn hafi farið úr...
InnlentHraunflæðiógn Hafnfirðinga: „Þurfa gosin ekki að vera stór til að valda miklum spjöllum“13. júlí 2023 Óneitanlega hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins velt vöngum yfir því hvort og hvaða íbúasvæði séu í hættu vegna þeirrar eldgosahrinu sem nú stendur á Reykjanesskaga. Í gær brást bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Rósa Guðbjartsdóttir illa við og sagði það óábyrgt og óþarft að á nefna ákveðin bæjarfélög. Hún sagði jafnframt að eldgosið ekki óþægilegra fyrir Hafnfirðinga en aðra íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur hafði...
InnlentÚtlendingastofnun vísar út hælisleitanda: Móðir og 12 ára barn á götuna13. júlí 2023 Eva Hauksdóttir, lögmaður, birti fyrir stuttu myndband á Facebook þar sem hún stendur fyrir utan húsnæði í Suðurhlíð þar sem fólk með virkar umsóknir um alþjóðlega vernd Íslandi dvelur. Hún vekur athygli á því að þar dvelji kona sem vill fá að draga umsókn sína til baka og fá að fara til Ítalíu, þar sem hún er einnig með hælisumsókn...
HeimurKókið í Hvíta Húsinu: Málinu lokað13. júlí 2023 Poki af kókaíni fannst í vestur álmu Hvíta Hússins fyrir rúmri viku síðan við reglubundið eftirlit en Leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem hefur m.a. það hlutverk að gæta forsetans og ber ekki að rugla saman við CIA, hefur nú lokað rannsókninni vegna skorts á haldbærum sönnunargögnum. Leyniþjónustan segist ekki geta borið kennsl á nokkurn sem gæti hafa skilið efnið eftir þar sem...
InnlentÞjóðin verður að vakna: „Svandís er lélegasti ráðherra sem nokkurn tíma hefur setið á Íslandi“13. júlí 2023 „Þjóðin verður að fara að vakna og fara að fylgjast með einhverju öðru en honum Kleina – þó það sé ágætt að fylgjast með honum“, segir Elías Kristinsson strandveiðimaður frá Dröngum, sem gerir út frá Norðurfirði í Árneshreppi, þegar Mannlíf leitaði eftir viðbrögðum hjá honum. Hart hefur verið deilt um ákvörðun Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um að bæta ekki við veiðiheimildum...
InnlentÁsgeir sat undir lífshótunum eftir að bakkað var á bíl hans: „Ég var virkilega hræddur“13. júlí 2023 Ásgeir Ásgeirsson, ljósmyndari, sagði frá óþægilegri reynslu þegar bakkað var á bílinn hans. Þetta gerðist fyrir utan verslun og var Ásgeir að setja innkaupapoka í skottið á bíl sínum. „Í fyrradag gerist það leiðindaatvik fyrir utan verslun þar sem ég var nýbúinn að versla að eldri kona (giska á um 70+ ára) á jeppa bakkaði á bílinn okkar Rósu þegar...
InnlentSvanur vill leggja niður strandveiðar: „Vissu varla hver þeir voru meðan leitað var að þeim.““13. júlí 2023 Í gær var smábátum lagt um allt land eftir að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra gaf út að ekki væri frekara svigrúm til að bæta við veiðiheimildum til strandveiða. Í kjölfarið hefur Landsamband smábátaeiganda skorað á Svandísi að auka veiðiheimildir. Boðað hefur verið til mótmæla á við Hlemm í Reykjavík, klukkan 12 á laugardaginn næstkomandi. Ekki eru þó allir á móti takmörkunum...
InnlentFabrikkan opnuð á ný: „Að sjálfsögðu endurgreiðum við öllum“13. júlí 2023 Á fjórða tug einstaklinga urðu veikir eftir að hafa borðað á Fabrikkunni undanfarna daga. María Rún Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Fabrikkunnar, segir að öllum verði endurgreitt. Eins og Mannlíf greindi frá í gær varð fjölmennur hópur fólks veikur eftir að hafa borðað á Fabrikkunni seinustu helgi. Í dag var tala einstaklinga sem veiktust komin upp í að minnsta kosti 33. Í kjölfar...
InnlentÁ fjórða tug veikir eftir að hafa borðað á Fabrikkunni: „Ég vona að þessum stað verði lokað“13. júlí 2023 Tala þeirra einstaklinga sem segjast hafa veikst í kjölfarið að borða á Fabrikkunni hefur hækkað talsvert frá því að Mannlíf greindi fyrst frá málinu í gærmorgun. Ekki er komið á hreint hvers vegna gestir veiktust þó að ýmsar tilgátur séu um það og var sagt á mbl.is í gær að vinnutilgáta Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sé að um Nóróveiru sé að ræða...
InnlentSamherji á veginn að Keili – Fólk sent lengri leiðina að gosinu í reykjarmekki13. júlí 2023 Stysta leiðin að gosstöðvunum við Litla-Hrút er frá Oddafelli við Höskuldarvelli, eins og Mannlíf greindi frá í fyrradag. Vandinn er sá að vegurinn að Keili er harðlokaður, að ákvörðun lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar með neyðist fólk til að ganga frá Slögu með gosreykinn í fangið, alls 20 kílómetra leið í stað þess að ganga alls 10 kílómetra og anda að...
InnlentDólgar sem sinntu ekki tilmælum: „Einhver hópur manna á torfærutækjum“13. júlí 2023 Flytja þurfti tíu manns af gossvæðinu í nótt sem gátu ekki komist af sjálfsdáðum burt af svæðinu. Auk þess þurfti að aðstoða tíu til viðbótar vegna meiðsla og þótti nóttin tiltölulega róleg. „En kannski það helsta sem var til tíðinda í nótt var að það kom einhver hópur manna á torfærutækjum inn á svæðið, að norðan virðist vera. Og voru...
SlúðurGuðbjörg borgar risatap13. júlí 2023 Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins tapaði 240 milljónum króna í fyrra. Það þýðir að Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkona frá Vestmannaeyjum, og fylgifiskar hennar töpuðu sem nemur 20 milljónum króna á mánuði eða 670 þúsund krónum á hverjum einasta degi við að halda úti blaðinu. Mogginn hefur hrunið í lestri á undanförnum árum og er meðallestur á tölublað aðeins 22,6 prósent, samkvæmt Gallup en...
InnlentSkólaþjófur stal ruslatunnu – Ógnvaldur í miðborginni bölvaði lögreglunni og leyndi nafni sínu –13. júlí 2023 Ofbeldismaður fór um miðborgina í nótt og ógnaði blásaklausu fólki. Lögreglan mætti á vettvang og handtók manninn þar sem hann var til alls vís . Óróaseggurinn var fluttur á lögreglustöð en hegðun hans reynist vera óútreiknanleg. Hann var með ógnandi tilburði í garð lögreglu og „bölvaði lögreglumönnum í sand og ösku“ eins og segir í dagbók lögreglunnar. Maðurinn fékk ítrekað...
68:43MenningSjóarinnSmábátaforinginn sem sigraði Jón Pál12. júlí 2023 Artúr Bogason, fyrrum aflraunamaður, núverandi formaður og stofnandi Landssambands Smábátaeigenda er gestur Sjóarans. Viðtalið má nálgast í heild sinni á efnisveitu Mannlífs. Í dag, 12. júlí, voru strandveiðar stöðvaðar þar sem aflaheimildir höfðu klárast en þetta er fjórða árið í röð sem strandveiðar eru stöðvaðar áður en veiðitímabilið er á enda. Spurður út í möguleika á kvótasetningu strandveiðkerfisins vekur hann...
HeimurYngsti meðlimur Manson fjölskyldunnar laus úr haldi12. júlí 2023 Hinni 73 ára Leslie Van Houten, yngsta meðlimi Manson fjölskyldunnar, var sleppt úr haldi til reynslulausnar í gær. Hún afplánaði dóm fyrir morð sem hún framdi árið 1969, þá 19 ára gömul. Fórnarlamb hennar var Rosemary LaBianca sem hún stakk minnst 14 sinnum í bakið en Rosemary og eiginmaður hennar, Leno LaBianca, voru bæði myrt þegar Manson fjölskyldan réðist inn...