Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Hraunflæðiógn Hafnfirðinga: „Þurfa gosin ekki að vera stór til að valda miklum spjöllum“

Hraunflæðilíkan unnið af Emil Hannesi Valgeirssyni og Daníel Páli Jónassyni. (Daníel Páll Jónasson, 2012, Hraunflæði á höfuðborgarsvæðinu, H.Í.) Mynd skjáskot
Hraun­flæði­líkan unnið af Emil Hannesi Val­geirs­syni og Daníel Páli Jónassyni. (Daníel Páll Jónasson, 2012, Hraun­flæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, H.Í.) Mynd skjá­skot

Óneit­an­lega hafa íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins velt vöngum yfir því hvort og hvaða íbúa­svæði séu í hættu vegna þeirrar eld­gosa­hr­inu sem nú stendur á Reykja­nesskaga. Í gær brást bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, Rósa Guð­bjarts­dóttir illa við og sagði það óábyrgt og óþarft að á nefna ákveðin bæj­ar­fé­lög. Hún sagði jafn­framt að eld­gosið ekki óþægi­legra fyrir Hafn­firð­inga en aðra íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur hafði fyrr um dag­inn gefið út í sam­tali við mbl.is að hann teldi ekki skyn­sam­legt að byggja frekar sunnan megin við Vellina í Hafn­ar­firði. Sagði hann jafn­framt miðað við mynstrið sem væri að skap­ast, að gos­virknin væri að fær­ast nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Daníel Páll Jónasson, land­fræð­ingur rit­aði í loka­rit­gerð sinni við Háskóla Íslands árið 2012, Hraun­flæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu:

„Til þessa hafa hraun runnið alloft til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á nútíma. Undir þeim hraunum sem nú eru á yfir­borði kunna svo enn fremur að leyn­ast fleiri ummerki eld­virkni og hraun­flæðis til sama svæðis. Mik­il­vægt er að áætla hvort reikna megi með svip­uðum atburðum á næstu árum, ára­tugum eða jafn­vel öldum því um mikið hags­muna­mál er að ræða. Geta hraun­flæði skaðað bygg­ingar, sam­göngur og ýmsa inn­viði sam­fé­lags­ins og þurfa gosin ekki að vera stór til að valda miklum spjöllum sökum nálægðar við byggð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það á þó sér­stak­lega við í Hafn­ar­firði.“

Mynd / skjá­skot Facebook

Ekki þarf að leita lengi eftir hrauni í Hafn­ar­firði og geta sér til um til­komu þess. Árið 2012 fór hraun­flæði­líkan eftir graf­íska hönn­uð­inn Emil Hannes Val­geirs­son á flug á sam­fé­lags­miðlum. Í kafl­anum 8.1.3 Fréttaum­fjöllun um nýlegt land­ris í Krýsuvík fjallar Daníel Páll um líkan sem olli miklum usla á sam­fé­lags­miðlum árið 2012:

„Miklar umræður höfðu skap­ast á blogg­síðum og á Facebook í kjöl­far frétta en þar höfðu ýmsir reynt að áætla hvar gos myndi koma upp og hvert það myndi renna. Emil Hannes Val­geirs­son, graf­ískur hönn­uður, hafði áætlað gossprungu eftir endi­löngu höf­uð­borg­ar­svæð­inu og um það bil í fram­haldi af gossprungu­rein Krýsu­vík­ur­elda í Krýsu­vík­ur­kerf­inu (2012). Var mynd hans (mynd 40) væg­ast sagt áhrifa­rík en henni var deilt á milli fjölda fólks á Facebook og meðal ann­ars höf­undi þess­arar rann­sókn­ar­rit­gerðar. Emil til­greindi í umfjöllun um mynd­ina að lík­urnar á atburðum á borð við þennan, að 10 kíló­metra gossprunga opn­ist nærri Reykja­vík, væru litlar og einnig að ólík­legt væri að gossprungan myndi ná svona langt í norð­austur. Sagði Emil enn fremur: „Ég vil hafa alla fyr­ir­vara á þessu og vona að ég sé ekki að skapa óþarfa hræðslu eða koma ein­hverjum í upp­nám.“ (Emil Hannes Val­geirs­son, 2012).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar