Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rak 90 prósent af starfsfólkinu

Forstjóri Indversku netverslunarinnar Dukaan, Suumit Shah, státaði sig af því á Twitter að hafa rekið 90% af starfs­liði sínu í þjónustu­veri á þeim forsendum að gervi­greind spjallmenni væru áhrifa­ríkari en mannfólk.

Hann spyr: Erfitt? Já. Nauðsynlegt? Algerlega.

Hann lýsir því í þræðinum að viðbragðs­tími fyrstu svara hafi farið úr tæpum tveimur mínútum niður í nánast samstundis, úrlausnar­tíminn hafi farið úr rúmum tveimur tímum í rúmar 3 mínútur og kostnaðurinn við rekstur þjónustu­versins hafi minnkað um u.þ.b. 85%.

Mörgum notendum Twitter fannst þetta nokkuð harðneskjulegt og viðbrögðin voru eftir því.

Þjónustu­verinu var sagt upp þar sem fyrir­tækið er á niðurleið og peningarnir búnir. Ekki út af gervi­greind.

Einn viðskipta­vinur skrifaði að það [spjallmennið] var ekki að svara eins og ég þurfti. Ég reyndi að umorða spurningarnar mínar með ýmsum hætti því ég vissi að þetta var botti. Þetta bara svaraði ekki almennilega. Ég endaði í pirrings­kasti og á endanum hætti ég bara við að endurnýja áskriftina.

Það er hætt við að við munum sjá aukningu í því að gervi­greind muni gera manns­höndina óþarfa við ýmis störf. Nú þegar nota fjölmargir gervi­greind til að leiðbeina sér við ýmsa hluti eins og gerð og uppbyggingu Excel skjala, glæru­kynninga, hugbúnaðar­kóða, greiningu fjármála, skipulag markaðs­mála o.m.fl. auk þess að það er mikið framboð á tólum sem nýta gervi­greind til að hanna grafík og greina hljóð.

Hvernig við lögumst að þeim breytingum sem þessi nýja, byltingar­kennda tækni er eitt en mögulega er hyggilegt að monta sig ekki um of af því að reka starfs­fólkið sitt á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár