Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Þjóðin verður að vakna: „Svandís er lélegasti ráðherra sem nokkurn tíma hefur setið á Íslandi“

Elías Svavar Kristinsson harðyrtur í garð matvælaráðherra
Elías Svavar Krist­ins­son harð­yrtur í garð mat­væla­ráð­herra

„Þjóðin verður að fara að vakna og fara að fylgj­ast með ein­hverju öðru en honum Kleina – þó það sé ágætt að fylgj­ast með honum“, segir Elías Krist­ins­son strand­veiði­maður frá Dröngum, sem gerir út frá Norð­ur­firði í Árnes­hreppi, þegar Mannlíf leit­aði eftir við­brögðum hjá honum.

Hart hefur verið deilt um ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra um að bæta ekki við veiði­heim­ildum til strand­veiða.

„Svandís er léleg­asti ráð­herra sem nokkurn tíma hefur setið á Íslandi – alveg í öllum þeim mála­flokkum sem hún hefur tekið að sér. Hún hefur sýnt það og sannað“.

„Þetta er auð­vitað bara ger­ræð­is­legur gjörn­ingur!“ segir Elísas og bætir við að ákvörð­unin sé sví­virði­leg af mat­væla­ráð­herra. „Hún sýnir það enn og aftur að hún gengur erinda 10 pró­sent rík­asta fólks­ins,“ og bendir á að það séu um það bil 10 fjöl­skyldur í land­inu sem eiga alla sjáv­ar­auð­lind­ina.

Elías telur að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið sé öllum lík­indum ólög­legt. Hann bendir á að það hafi á sínum tíma verið sett á til vernd­unar fiski­stofn­anna en hlut­verki þess sem slíku sé löngu týnt enda sé þetta orðin eign­ar­fyr­ir­tæki.

„Þjóðin fær ekk­ert af þessu,“ segir Elías og er mikið niðri fyrir og bendir á að það strjúki ráða­mönnum öfugt ef sýnt er fram á að hægt sé að veiða allt árið um kring á umhverf­is­vænan hátt.

Aðspurður hvað hann taki sér nú fyrir hendur eftir að hafa lagt árar í bát þetta tíma­bilið svarar Elías:

„Ég er nátt­úru­lega orð­inn full­orð­inn og það skiptir kannski ekki máli fyrir mig en ég brenn fyrir þá ungu menn sem hafa verið að fjár­festa í dýrum bátum og mega sjá fyrir börnum – og eru að búa og barsla.“

Hann rekur sögu sína og seg­ist hafa unnið alla sína ævi á sjó og þeim skipum sem áunnu sér kvóta í loðnu, þorski, norsk-íslenskri síld, íslenskri síld, mak­ríl. En bendir á að svo hafi eig­endur skip­ana hirt ávinn­ing­inn. „Hvar eru rétt­indi okkar sjó­manna?“, spyr Elías og bendir á að það voru sjó­menn sem unnu inn rétt­indin til veið­anna. Hann bendir þá á að útgerð­ar­fyr­ir­tækin eiga ekki þennan rétt.

Mannréttindamál

Elías telur bar­áttu smá­báta­eig­anda vera mann­rétt­inda­mál og að fólk eigi að fá að stunda þá vinnu sem því dettur í hug. Fordæmi strand­veiða megi rekja aftur í aldir eða þangað til kvóta­lögin voru sett á:

„Þjóðin hefði aldrei kom­ist af á þessu landi ef þessi rétt­indi hefðu ekki verið“.

Ólíklegt telur hann að með­mæl­endur og stuðn­ings­menn kvóta­kerf­is­ins á sínum tíma hafi verið með­vit­aðir um að þeir hafi verið að færa 10 – 12 fjöl­skyldum auð þjóð­ar­innar.

„Hafi þeir vitað það, þá voru þeir meiri glæpa­menn, en ég hafði nokkurn tíma getað ímyndað mér!,“ segir Elías og liggur hátt rómur og bætir við að í dag séu menn á Alþingi þess full­með­vit­aðir:

„Mat­væla­ráð­herra er full­kunn­ugt um þennan glæp sem hún er að fremja gagn­vart þjóð­inni, og þeim er bara alveg and­skot­ans sama.“

Vinstri grænir mestu drullusokkarnir

„Þessi rík­is­stjórn er stofnuð í kringum stöð­ug­leika segja Vinstri grænir.
Og hvaða stöð­ug­leiki er það?
Það er stöð­ug­leiki um óbreytt ástand auð­stétt­ar­innar,“ segir Elías og bendir á að það sé ekki stöð­ug­leiki fyrir almenn­ing í land­inu.

„Vinstri grænir einn mesti skíta­flokkur sem hefur komið upp!“ útskýrir hann og segir að fólk hafi bundið við flokk­inn vonir en að þeir hafa svikið allt:

„Þeir eru mestu svika­hrapp­arnir – Þeir eru mestu drullu­sokk­arnir“

Krókaveiðar umhverfisvænar

Að lokum útskýrir Elías að málið sé í hnot­skurn að króka­veiðar séu umhverf­is­vænar. Þar sem siglt er út á haf, slökkt sé á vél­inni og lætur reka:

„Það er búið að sanna það að króka­veiðar geta ekki útrýmt fiski­stofnum. Það er búið að sýna fram á það á vís­inda­legan hátt að það er ekki hægt að taka meira en sex pró­sent af hverjum stofni með króka­veiðum. Annars væri búið að útrýma öllu lífi í öllum vötnum og öllum höfum í öllum heim­inum. Króka­veiðar hafa verið stund­aðar í þús­undir ára. Þessi vötn eru enn full af fiski“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar