Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Yngsti meðlimur Manson fjölskyldunnar laus úr haldi

Hinni 73 ára Leslie Van Houten, yngsta meðlimi Manson fjöl­skyldunnar, var sleppt úr haldi til reynslu­lausnar í gær. Hún afplánaði dóm fyrir morð sem hún framdi árið 1969, þá 19 ára gömul. Fórnar­lamb hennar var Rosemary LaBianca sem hún stakk minnst 14 sinnum í bakið en Rosemary og eigin­maður hennar, Leno LaBianca, voru bæði myrt þegar Manson fjöl­skyldan réðist inn á heimili þeirra.

Van Houten var uppruna­lega dæmd til dauða fyrir aðild sína að morðunum en þeim úrskurði var breytt í lífstíðar­fangelsi árið 1972 þegar dómstóll í Kaliforníu komst að þeirri niður­stöðu að dauða­refsingar stönguðust á við stjórnar­skrá.

Skrif­stofa ríkis­stjóra Kaliforníu­ríkis lýsti því yfir síðastliðinn föstudag að þau myndu ekki áfrýja úrskurði áfrýjunar­nefndar þar sem litlar líkur væru taldar á árangri slíkra aðgerða. Í grein CNN kemur fram að frændi eins fórnar­lamba Manson gengisins segir fjöl­skyldur fórnar­lambanna sterklega mótmæla því að ekki verði áfrýjað þar sem málið varði morðingja sem tók þátt í einni grófustu hrinu morða í sögu Banda­ríkjanna og setji hættulegt fordæmi.

Lögmaður Van Houten, Nancy Tereault, sagði í viðtali við CNN að skjólstæðingur hennar hafi setið námskeið sem snerust um að hún horfðist í augu við gjörðir sínar auk 40 ára af stöugu sálrænu mati. Hún skildi aðstand­endur fórnar­lambanna en lögin kvæðu á um að þeir skyldu hljóta reynslu­lausn sem uppfylla ákveðin skilyrði.

Manson fjöl­skyldan var í senn kommúna, öfgahópur og gengi sem Charles Manson fór fyrir. Gengið hélt til í kommúnu þar sem lítið samband var við umheiminn og meðlimirnir eru taldir hafa neytt bæði LSD og amfetamíns í stórum stíl. Meðlimir hópsins trúðu því að Charles væri Jesús endur­fæddur og tók spádómum hans um yfir­vofandi kynþattastríð sem myndi valda heimsendi sem sannleika.
Í heildina voru meðlimir gengisins sakfelldir fyrir níu morð en líkur eru á að þau hafi verið mun fleiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár