InnlentSegir ekki duga að taka RÚV af auglýsingamarkaði: „Tíu milljarðar fóru í vasa moldríkra Ameríkana“3. apríl 2023 Hannes Steindórsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi segir í nýlegri Facebook-færslu, að það eitt að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði, til bjargar fjölmiðlum í landinu, dugi ekki til. Færsluna ritaði Hannes í gær, í tilefni þess að Fréttablaðið fór á hausinn ásamt sjónvarpsmiðlinum Hringbraut og 100 manns missti vinnuna. Segist Hannes ekki taka afstöðu til þess hvort taka þurfi Rúv af auglýsingamarkaði...
InnlentKonráð lýsir kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir í Bæjarbíói: „Ég man að myndin var byrjuð“3. apríl 2023 Konráð Ragnarsson var einn af þeim ólánsömu drengjum sem gert var að dvelja í Breiðuvík á sínum tíma; var þar beittur miklu harðræði og ranglæti. Konráð er frábær ljósmyndari sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga fyrir myndir sínar um víða veröld. Hann lýsir ömurlegri reynslu sinni af kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir, ritar um reynslu sína á Facebook-síðu sinni. „Þegar ég...
InnlentÞór fylgdi sögufrægu skipi í slipp – Tók þátt í fyrsta þorskastríðinu3. apríl 2023 Hin sögufræga María Júlía var fylgt til hafnar á Akureyri af varðskipinu Þór, í lok marsmánaðar. Báturinn þjónaði Landhelgisgæslunni í fjöldi ára og tók meðal annars þátt í fyrsta þorskastríðinu. Var hann fluttur frá Ísafirði til Akureyrar þar sem hann fer í slipp. Ferðin gekk með ágætum en nær alla leið voru veðuraðstæður krefjandi. Gæslan segir frá þessu á vef...
MenningFyrsti vinningshafi í leik Mannlífs: „Okei, æðislegt!“3. apríl 2023 Vinningshafi í leik Mannlífs heitir Inga Maren Ágústsdóttir en hreppti hún Búbbu Bröns fyrir tvo á veitingastaðnum Monkey’s. ,,Okei, æðislegt!“ sagði Inga hæst ánægð þegar haft var samband við hana fyrir helgi en enn á eftir að draga út þrjá heppna vinningshafa á næstu dögum. Þeir sem vilja taka þátt geta lesið nýtt Mannlífsblað, fundið Monkey’s lógóið, fyllt út formið...
InnlentLenti í lífsháska við Glym um helgina: „Ég vissi að þá væri ég bara búin.“3. apríl 2023 „Eina sem ég hugsaði var að ég ætlaði að fá mér pönnupítsu á Dominos, ég varð að fá pönnupítsu,“ segir Jelena í samtali við Mannlíf. Hún varð fyrir óhugnalegri reynslu um helgina þegar hún villtist á göngu við fossinn Glym. Ganga sem átti að vera tveir tímar varð að tólf klukkutíma lífsbaráttu. Hún hóf ferðina í góðu veðri en þegar...
MannlífiðBeef & Buns – Ástríða fyrir hamborgurum3. apríl 2023 Á Beef & Buns er okkar umhugað um gæði og varð staðurinn til úr hreinni ástríðu fyrir góðum hamborgurum. Aðaleigandi staðarins, Máni, starfar sem klínískur sálfræðingur en nýtur þess að dunda sér í eldhúsinu í frítíma og þar varð Beef & Buns hamborgarinn til eftir nokkurra ára tilraunastarfsemi. Ferlið var líkt og í vísindatilraun þar sem mismunandi nautasteikur voru vigtaðar,...
MannlífiðSmjer sósur um páskana3. apríl 2023 Matreiðslumaðurinn Guðjón Þór Guðmundsson og Hrafnkell Guðnason viðskiptafræðingur standa að baki Smjer en fyrirtækið var stofnað á síðasta ári. Sósurnar eru fullkomnar á páskaborðið í ár. Með sósunum frá Smjer losnar þú við tilstandið sem fylgir því að gera góða sósu frá grunni en þrátt fyrir það er útkoman sú sama. Ljúffeng, heimatilbúin sósa! Mörgum vex í augum að laga...
InnlentKeyptu DV á rúmar 400 milljónir króna: „Það eru spennandi tímar fram undan“3. apríl 2023 Fjölmiðlatorg ehf keypti DV.is á 420 milljónir. Þetta staðfestir Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV í samtali við fréttastofu RÚV. Kemur fram að nýja fyrirtækið er tekur við rekstri vefjanna DV og Hringbrautar kallast Fjölmiðlatorgið; var stofnað 1. janúar samkvæmt upplýsingum úr fyrirtækjaskrá skattsins. Er Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs sem átti Fréttablaðið, DV og Hringbraut, einn skráður eigandi Fjölmiðlatorgsins. Ritstjórinn Björn sagði...
InnlentLíkfundurinn í fjöru Njarðvíkur – Karlmaður á fimmtugsaldri3. apríl 2023 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki enn verið borið kennsl á líkið sem fannst í fjörum Njarðvíkur í gær. Hinn látni er karlmaður og talið líklegt að hann sé á fimmtugsaldri. Ekki er talið að líkið hafi verið lengi í sjónum. Mannlíf greindi frá því í gær að um hádegisbilið hafi lík fundist í fjörunni við Fitjabraut í...
InnlentGuðmundur Elís frjáls ferða sinna – Lögregla segir ekkert tilefni til gæsluvarðhalds3. apríl 2023 Guðmundur Elís Sigurvinsson var handtekinn í gær eftir að leitað var 15 ára stúlku. Hún fannst um borð í skipi sem Guðmundur starfar á og viðurkenndi hann að stúlkan væri með honum í för. Hann var laus úr haldi að loknum skýrslutökum. Guðmundur Elís er dæmdur ofbeldismaður. Fyrrum kærasta hans kom fram og greindi frá hrottalegu ofbeldi sem Guðmundur beitti...
InnlentLögreglan leitar tveggja – Hefur þú séð mennina?3. apríl 2023 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi mynd og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhver þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hin sömu einnig vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt...
InnlentHjörvar vill ekki þjálfara KR: „Rúnar á barn í þessu liði, nennir þú þessari sveitamennsku?“3. apríl 2023 Hjörvar Hafliðason er á því að eldri leikmenn í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta hætti að gefa kost á sér verði Rúnar Kristinsson ráðinn landsliðsþjálfari. Rúnar er einn af þeim er talinn er líklegur sem arftaki Arnars Þórs Viðarssonar, sem var rekinn fyrir helgi. „Rúnar á barn í þessu liði, nennir þú þessari sveitamennsku? Hvað heillar þig? Er Það KR Fótboltinn,“...
InnlentEdda Falak hætt hjá Heimildinni: „Já ég get bara staðfest það“3. apríl 2023 Edda Falak er hætt störfum hjá Heimildinni en þetta staðfesti Þórður Snær Júlísson ritstjóri í samtali við Mannlíf nú í morgun. „Já ég get bara staðfest það að hún hafi lokið störfum hjá okkur í síðustu viku. Við ætlum ekki að tjá okkur frekar um það,“ sagði Þórður. Það vakti athygli um helgina að Edda Falak var ekki lengur skráð...
SlúðurAndrés pönkast á Helga3. apríl 2023 Andrés Magnússon, yfirmaður minningargreina Morgunblaðins, skrifar uppsláttarfrétt um fall Fréttablaðsins í blað sitt í dag. Þar reifar hann þau almæltu tíðindi að yfirvofandi gjaldþrot Torgs kosti 100 manns vinnuna. Farið í saumana á því að Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs, hafi innheimt hluta af skuldum félagsins með því að kaupa útgáfurétt út úr Torgi undir merki Fjölmiðlatorgs. Þar er væntanlega vísað...
InnlentÓsáttir starfsmenn Torgs fengu engan fyrirvara3. apríl 2023 Starfsmenn Torgs ehf eru verulega ósáttir en um hundrað manns misstu vinnuna á föstudaginn síðastiðinn þegar útgáfu Fréttablaðsins og sjónvarps Hringbrautar var hætt skyndilega. Mikil gagnrýni hefur verið vegna lítils fyrirvara en samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins í dag var stjórnendum og eiganda félagsins ljóst í hvað stefndi fyrir rúmum þremur mánuðum síðan. Breytingar voru gerðar hjá Fréttablaðinu um áramótin þegar dreifingu...
InnlentFundu eftirlýstan mann en furðulegt atvik átti sér stað við handtökuna3. apríl 2023 Lögreglumenn veittu því athygli í gærkvöldi að skráningarmerki bifreiðar reyndust tilheyra örðu ökutæki. Bifreiðin var kyrrstæð við hús en þegar lögregla var að fjarlægja skráningarmerkið kom eigandi ökutækisins út. Sá reyndisit vera eftirlýstur og var handtekinn á staðnum. Stuttu síðar kom annar aðili út en sá reyndist einnig eftirlýstur í sama máli og var því einnig handtekinn. Bifreiðin var haldlögð...