Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki enn verið borið kennsl á líkið sem fannst í fjörum Njarðvíkur í gær. Hinn látni er karlmaður og talið líklegt að hann sé á fimmtugsaldri. Ekki er talið að líkið hafi verið lengi í sjónum.
Mannlíf greindi frá því í gær að um hádegisbilið hafi lík fundist í fjörunni við Fitjabraut í Njarðvík. Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér tilkynningu um málið. Ekkert var látið uppi um að hvort grunur sé uppi um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir