Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir ekki duga að taka RÚV af auglýsingamarkaði: „Tíu milljarðar fóru í vasa moldríkra Ameríkana“

Hannes Steindórsson.
Hannes Stein­dórs­son.

Hannes Steindórsson bæjar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi segir í nýlegri Facebook-færslu, að það eitt að taka Ríkis­útvarpið af auglýsinga­markaði, til bjargar fjöl­miðlum í landinu, dugi ekki til.

Færsluna ritaði Hannes í gær, í tilefni þess að Frétta­blaðið fór á hausinn ásamt sjónvarps­miðlinum Hringbraut og 100 manns missti vinnuna. Segist Hannes ekki taka afstöðu til þess hvort taka þurfi Rúv af auglýsinga­markaði en bendir á að það eitt myndi sennilega ekki duga til þess að bjarga einka­reknum fjöl­miðlum á Íslandi. Segir bæjar­fulltrúinn að með breytingu á skatta­lögum væri hægt að sækja pening til eigenda samfélags­miðla sem hirði gríðarlegar upphæðir í auglýsinga­tekjur frá fjöl­miðlunum. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Það voru sorgar­fréttir í gær þegar 100 einstaklingar misstu vinnuna án nokkurs fyrirvara. Fáir ef einhverjir starfs­menn fengu að vita neitt fyrr en í gær. Sem þýðir að um 100 eintaklingar höfðu engan aðlögunar­tíma til að leita sér að annarri vinnu. Fáir ef einhver fjöl­miðill á Íslandi hefur skilað hagnaði síðastliðin ár, þó eru undan­tekningar þar sem ákveðnir fjöl­miðlar eru einnig í rekstri fjar­skipta fyrir­tækja og er hagnaður af þeim rekstri og svo einn fjöl­miðill sem fær milljarða í styrki. Það eru skiptar skoðanir hvort taka eigi RÚV af auglýsinga­markaði. Tekjur RÚV af auglýsingum árið 2021 nam um það bil tveimur milljörðum.

Ef RÚV væri tekið af auglýsinga­markaði mætti gera ráð fyrir að íslenskir fjöl­miðlar fengju mögulega einn milljarð til að skipta sín á milli. Allar líkur eru á að seinni milljarðurinn færi til erlendra samfélags­miðla.Ég ætla ekki að taka afstöðu í þessum skrifum hvort taka eigi RÚV af auglýsinga­markaði, hins vegar ef það yrði gert er ég hræddur um að það dugi ekki til. Úthlutunar­nefnd lagði til 381.000.000kr í styrki til einka­rekinna fjölmiðla árið 2022. Tekjur vegna auglýsinga­sölu á árinu 2021 voru um tuttugu og tveir milljarðar. Tæpir tíu milljarðar af þeirri upphæð fóru hins vegar í vasa moldríkra Ameríkana sem eiga samfélags­miðla.Ríkis­sjóður fékk ekki eina krónu út úr þeim fjármunum. Þess má geta að umræddar tölur eru síðan 2021.Auglýsinga­tekjur sem fara úr landi aukast á hverju ári og koma til með að gera það áfram.Með breytingum á skatta­lögum væri hægt að sækja nokkra milljarða til erlendra samfélags­miðla, sem gætu svo nýst í að styrkja íslenskan fjölmiðla­markað.Heimurinn breytist hratt og það sem þykir sjálfsagt og öruggt í dag verður það ekki eftir tíu ár. Ef ekkert verður að gert. Gæti það allt eins gerst að mjög fáir eða hreinlega engin íslenskur fjöl­miðill standi eftir fyrir utan ríkis­rekna miðla.Undir­ritaður er bæjar­fulltrúi og áhuga­maður um fjölmiðla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim