InnlentSafna fyrir sjúkrabörum á Hornstrandir: „Annað hvort er Ingibjörg aumingi eða hún er brotin“8. ágúst 2022 „Þann 10. júlí lögðu 18 konur upp í ævintýraför til Reykjarfjarðar á Hornströndum. Sumar þekktust, aðrar ekki en samveran og undursamleg náttúran við Drangajökul sá til þess að allar nutu sín og bundust þær sterkum vinaböndum þarna við jökulröndina. Gleðin var við völd og nutu konurnar bæði útivistar og afslöppunar í gömlu heitu lauginni. Góður matur, söngur og samvera batt...
InnlentDómsmálaráðherra neitar að upplýsa um fund Namibíumannanna – Mannlíf kærir til úrskurðarnefndar8. ágúst 2022 Dómsmálaráðuneytið neitar að svara öllum spurningum Mannlífs um fund namibískra embættismanna og Brynjars Níelssonar. Mannlíf kærir synjunina. Sjá einnig: Namibíumenn æfareiðir: Brynjar ritari sendur í stað dómsmálaráðherra Þrettán dögum eftir að Mannlíf óskaði eftir minnisblaði um fund Brynjars Níelssonar, aðstoðamanns Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra og upplýsingum um fundinn, barst loksins svar úr ráðuneytinu. Kom svarið eftir að Mannlíf hafði send nokkrar...
MenningJóhannes Haukur varar við hermikráku á Instagram: „Þetta er ekki ég. Ég er ég!“8. ágúst 2022 Stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson bendir á það í færslu á Instagram-reikningi sínum að einhver sé að þykjast vera hann á Instagram. Segist hann ekki vita hver tilgangurinn sé en vill hann vara aðdáendur sína og vini við að treysta hermikrákunni. Þegar hermikrákan, sem kallar sig JohannesHakur29, er skoðuð má sjá að hún notar nákvæmlega sömu ljósmynd og hinn raunverulegi Vikings-leikarinn...
InnlentNamibíumenn æfareiðir: Brynjar ritari sendur í stað dómsmálaráðherra8. ágúst 2022 Samherjamálið, ósvífni íslenskra ráðamanna og íslensk spilling er tekin fyrir á forsíðu namibíska dagblaðsins Sun í dag. Mikil óánægja er innan nambísku ríkistjórnarinnar með það hvernig íslensk stjórnvöld hafa tekið á málinu, eða frekar ekki tekið á því. Namibíumenn skilja ekki seinaganginn og hvers vegna málið er ekki tekið af alvöru á Íslandi. Nefnd á vegum namibískra stjórnvalda var send...
InnlentArnaldur farinn frá Staðarstað: „Ég hætti vegna erfiðra persónulegra mála“8. ágúst 2022 Arnaldur Máni Finnson, sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi hefur sagt upp stöfum. Kann það að hafa komið íbúum á óvart þar sem Arnaldur var ráðinn til þess að gegna embættinu fram til næsta árs. Arnaldur sagði í samtali við Mannlíf að hann hafi tekið ákvörðunina vegna persónulegrar reynslu og skilnaðar. „Ég hætti vegna erfiðra persónulegra mála og til að geta...
InnlentBakslag hinsegin baráttunnar: „Yndislegi bróðir minn er samkynhneigður, leðurhommi, fjölkær og …“8. ágúst 2022 Eyrún Arnardóttir lýsir bróður sínum, Guðmundi Helga, sem samkynhneigðum, leðurhomma, fjölkærum og frábærri fyrirmynd í fébókarfærslu sinni. Þar fer hún yfir hræðsluna sem hún upplifði í kjölfar skotárásarinnar í Osló og bakslagið sem hefur orðið í baráttu hinsegin samfélagsins og mikilvægi þess að opna frekar á samtalið hvað felist í fjölbreytileikanum .Þá skrifar Eyrún: „Það skiptir máli að eiga samtölin,...
InnlentÍsland í breyttu umhverfi: Tengls Rússlands og Kína hafa áhrif á öryggisumhverfi norðurslóða8. ágúst 2022 Þeir sem hafa fylgst með alþjóðamálum upp á síðkastið hafa tekið eftir minnkandi velvild í garð Rússa í kjölfar innrásar þeirra í Úkraínu. Flestar Evrópuþjóðir og Bandaríkin hafa gagnrýnt innrásina og landið hefur verið beitt viðskiptaþvingunum með það að markmiði að stöðva stríðið. Ekki hafa þó allar þjóðir tekið jafnafdráttarlausa afstöðu gegn Rússum og þeirra hópi eru Kínverjar. Vangaveltur er...
InnlentLögð meðvitundalaus inn á spítala eftir að hafa borðað skemmt sushi8. ágúst 2022 „Í síðustu viku var ég lögð meðvitundarlaus inn á spítala með 41 stiga hita og niðurgang (með blóði). Eftir að við náðum hitanum niður var ég send í rannsóknir, og nú hefur verið staðfest að ég fékk mjög slæma matareitrun,’’ skrifaði Guðlaug Edda Hannesdóttir, fremsta þríþrautarkona landsins, á Instagram-síðu sína. Var hún flutt meðvitundalaus á sjúkrahús í Barcelona eftir matareitrunina...
InnlentÞyrla Gæslunnar bjargaði göngumanni í Bjarnarfjalli: Þjóðverjinn fannst látinn á sömu slóðum8. ágúst 2022 Á fjórða tímanum í nótt barst lögreglu og björgunarsveitum tilkynning um göngumann sem var kominn í sjálfheldu í hlíðum Bjarnarfjalls í Hvalvatnsfirði. Aðgerðarstjórn og björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang.Göngumaðurinn var á svipuðum slóðum og þar sem þýski ferðamaðurinn fannst látinn.Sjá nánar hér. Á svæðinu eru brattar skriður sem eru mjög lausar í sér og því afar varasamar og hættulegar aðstæður....
HeimurFótboltastjarna fyrir dóm – Sakaður um gróft ofbeldi8. ágúst 2022 Ryan Giggs mætir í dómsal í dag en hefur hann verið sakaður um að hafa ráðist á bæði fyrrverandi kærustu sína og systur hennar, auk þess að hafa stjórnað lífi kærustu sinnar meðan á sambandi þeirra stóð. Fyrrum knattspyrnumaður Manchester United er sagður hafa beitt Kate Greville stjórnandi og þvingandi hegðun á milli ágúst 2017 og nóvember 2020. Hann er...
InnlentÓk rafskútu á bíl – Gámur í ljósum logum í Kópavogi8. ágúst 2022 Skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi var lögregla kölluð út í hverfi 108. Segir í dagbók lögreglu að skemmdarverk hafi verið unnin á vettvangi en engar frekari lýsingar eru gefnar. Einn maður var handtekinn á staðnum og gisti hann bak við lás og slá. Í sama hverfi, um hálftíma áður, hafði lögregla mætt á veitingastað þar sem einstaklingur pantaði sér...
SlúðurBjörn gerir allt vitlaust8. ágúst 2022 Björn Zoëga, stjórnarformaður Landspítalans, er búinn að hleypa öllu í bál og brand á meðal skrifstofuliðs spítalans með þeim yfirlýsingum að yfirstjórn spítalans sé að sliga reksturinn. Björn þekkir vel til spítalans eftir að hafa verið þar við stjórnvölinn. Undanfarin ár hefur hann stjórnað Kariolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð þar sem hann beitti niðurskurðarhnífnum og sagði upp 550 millistjórnendum með góðum árangri....
InnlentSjáðu myndir af gosinu að ofan7. ágúst 2022 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra deilir með almenningi myndum sem teknar voru af gosinu úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þær má sjá hér fyrir neðan. Þyrlan flaug yfir gosið á föstudaginn til að gefa vísindafólk frá Veðurstofunni yfirsýn yfir gosið. Myndirnar voru teknar í þeirri för.
InnlentForsíðufrétt morgunsdagsins: Íslendingar flúðu sendinefndina – Namibíumenn heim með sárt ennið7. ágúst 2022 Namibíumönnum er gróflega misboðið ef marka má forsíðu dagblaðsins Nambian Sun sem kemur út á morgun. Þar er greint frá því að Íslendingar hafi verið á flótta undan sendinefnd sem kom til Íslands á dögnum. Namibian Sun hefur verið leiðandi í umfjöllun um Samherjamálið þarlendis en blaðið birtir forsíðu morgundagsins á Facebook. Namibian Sun fullyrðir að markmið sendinefndarinnar, sem var...
InnlentBjörgunarsveitarmenn kvarta undan fyllerí við gosið: „Þjóðhátíð var í síðustu viku“7. ágúst 2022 Talið er að ríflega fimm þúsund manns hafi lagt leið sína að gosinu í Meradölum í gær. Ljóst er að þar var misjafn sauður í mörgu fé. Margir voru áberandi illa klæddir, jafnvel berfættir. Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjörns, kvartar undan drykkjuskap ferðalanga í samtali við RÚV. Þrátt fyrir þetta voru engin alvarleg slys í gær þó margir hafi ofkælst....
SlúðurÖrvænting Sigmundar Davíðs7. ágúst 2022 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lenti í nokkrum vanda eftir að upplýst var að hann hygðist leita í skjól öfgmanna í Svíþjóð og bera þeim boðskap sinn og meðtaka það sem þeir höfðu fram að færa. Stundin upplýsti að Sigmundur ætlaði að vera með erindi á Svenska Bok- & Mediemässan þar sem fram kom einnig fólk sem dásamað hefði helförina...