Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Safna fyrir sjúkrabörum á Hornstrandir: „Annað hvort er Ingibjörg aumingi eða hún er brotin“

Ingibjörg er enginn aumingi.
Ingi­björg er eng­inn aum­ingi. Mynd: Facebook-skjáskot

„Þann 10. júlí lögðu 18 konur upp í ævintýraför til Reykjar­fjarðar á Horn­ströndum. Sumar þekktust, aðrar ekki en samveran og undur­samleg náttúran við Dranga­jökul sá til þess að allar nutu sín og bundust þær sterkum vina­böndum þarna við jökulröndina. Gleðin var við völd og nutu konurnar bæði útivistar og afslöppunar í gömlu heitu lauginni. Góður matur, söngur og samvera batt svo allt saman í dásamlega upplifun.“

Þannig byrjar Facebook-færsla Ragnhildar Vigfúsdóttur en hún, ásamt hópi ævintýra­kvenna standa nú fyrir söfnun svo hægt sé að kaupa sjúkra­börur, spelkum og sjúkra­kassa fyrir íbúa Reykja­fjarðar á Ströndum en þar eru þekktar göngu­leiðir. Ástæða söfnunarinnar er sú að í ferðinni sem minnst er á hér fyrir ofan, slasaðist ein kvennanna, Ingibjörg Greta Gísla­dóttir en hún tví ökla­brotnaði í göngunni. Engar sjúkra­börur voru á svæðinu en brugðið var á það ráð að útbúa börur úr árum og flotgalla. Ragnhildur gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna.

„Það óhapp varð að ein úr hópnum Ingibjorg Gréta Gisladottir ökkla­brotnaði í einni göngunni. Heimamenn brugðust skjótt við, sýndu snarræði og hugmynd­auðgi, með því að útbúa börur úr árum og flotgalla. Því næst komu þau henni fyrir á fjórhjóli sem flutti hana í hús til frekari aðhlynningar þar til þyrla Landhelgis­gæslunnar náði í hana.“

Í viðtali í Síðdegis­útvarpinu á Rás 2 í dag segir Ragnhildur frá því að þegar hópurinn hringdi eftir sjúkra­þyrlu var þeim sagt að helst þyrfti einhvern lækni eða hjúkrunar­menntaðan til að staðfesta að Ingibjörg væri brotin. „Og við vorum svo heppnar að vera með ljósmóður, sem er jafnframt hjúkrunar­fræðingur,“ sagði Ragnhildur í viðtalinu og hélt áfram: „Hún sagði „annað hvort er Ingibjörg aumingi eða hún er brotin“, og Ingibjörg er enginn aumingi og var tvímæla­laust brotin og þyrlan kom.“

Í færslunni segir Ragnhildur að hópurinn hafi ákveðið að safna fyrir heimamenn í Reykjar­firði.

„Hópurinn varð vitni að einstökum samtaka­mætti og hugmynda­auðgi heima­manna í erfiðum aðstæðum.“

Bætti hún svo við: „Það var því samþykkt einróma að safnað yrði fyrir sjúkra­börum sem myndu þjóna mikil­vægum björgunar­störfum heima­manna um ókomna tíð ásamt margnota spelkum og góðum sjúkra­kassa. Það kom nefnilega upp úr kafinu að Ingibjörg var ekki sú fyrsta sem slasaðist í firðinum fallega en svona slys eru óhjá­kvæmilegur fylgi­fiskur göngu­ferða í náttúru Íslands.“

Þeir sem vilja styrkja hópinn er beðið um að leggja inn á reikning: 515-14-609066 kt. 311066-5609. Merkið framlagið ykkar með orðinu “börur” Söfnunin stendur yfir til 15. ágúst. Markmiðið er að safna 250.000 kr. fyrir sjúkra­börum, spelkum og sjúkra­kassa.

„Þeir fjármunir sem safnast umfram, renna til Lands­bjargar með þakklæti fyrir þeirra óbilgjarna framlag til öryggis okkar allra.“

Færsluna ásamt myndbandi frá björgunar­aðgerðunum í Reykjar­firði má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið