Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Bakslag hinsegin baráttunnar: „Yndislegi bróðir minn er samkynhneigður, leðurhommi, fjölkær og …“

Mynd/samsett Systkinin Eyrún og Guðmundur Helgi Arnarbörn
Mynd/sam­sett Systk­inin Eyrún og Guð­mundur Helgi Arn­ar­börn

Eyrún Arnar­dóttir lýsir bróður sínum, Guðmundi Helga, sem samkyn­hneigðum, leður­homma, fjölkærum og frábærri fyrirmynd í fébókar­færslu sinni. Þar fer hún yfir hræðsluna sem hún upplifði í kjölfar skot­árásarinnar í Osló og bakslagið sem hefur orðið í baráttu hinsegin samfélagsins og mikilvægi þess að opna frekar á samtalið hvað felist í

fjöl­breyti­leikanum

.Þá skrifar Eyrún: „Það skiptir máli að eiga samtölin, ekki bara kasta fram „fögnum fjöl­breyti­leikanum” en loka svo augum og eyrum þegar við fáum að heyra hvað felst í fjöl­breyti­leikanum,“ og bendir á að ef það vekji hjá fólki óþægileg viðbrögð að ræða málefnið þá sé það skýrt merki þess að málefnið þurfi frekari umræðu. Þá gætu einhverjir spurt sig af hverju þeir ættu að hafa áhuga að setja sig inn í mismun­andi kynhneigðir og hvað felist í því að skilgreina sig sem fjölkæran eða leður­homma. Þeirri full­yrðingu svarar hún: „Vegna þess að skömm þrífst í ótta og feluleik.“Hér að neðan er einlægur pistill Eyrúnar í heild:

Hinsegin dagar

Undan­farið hef ég hugsað mikið um bakslagið í hinsegin barátt­unni. Í sumar varð ég í fyrsta skipti hrædd um bróður minn vegna þess að hann er hommi. Það var einstaklingur sem gerði skotárás á hinsegin samfélagið í Osló og ég varð logandi hrædd um hann. Ég hugsaði, hann er proud and loud, hann er í forsvari fyrir marga hópa innan hinsegin samfélagsins. Ég hugsaði: „Hvað ef þetta er bara fyrsta árásin og núna verður hvert örugga rýmið á fætur öðru verður skotið niður?“ Svo fattaði ég hvað ég var barnaleg í hugsun. Hinsegin samfélagið hefur aldrei verið laust við ofsóknir. Einn af kærustum hans Guðmundar Helga fær morð­hótanir bara vegna þess að hann er trans­maður. Öruggu rýmin eru bara örugg ef við styðjum við þau og erum öll proud and loud.Yndislegi bróðir minn er samkyn­hneigður, leður­hommi, fjölkær og frábær fyrirmynd. Ég hef orðið vör við það að þegar ég tala um eða deili því að bróðir minn er leður­hommi þá kemur oft fát á fólk og því finnst óþægilegt að ég tali um hneigð bróður míns svo frjáls­lega. En það er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við eigum að tala um það. Það skiptir máli að eiga samtölin, ekki bara kasta fram „fögnum fjöl­breyti­leikanum” en loka svo augum og eyrum þegar við fáum að heyra hvað felst í fjöl­breyti­leikanum.Það er ekki nóg að fara með börnin okkar í gleði­göngu á nokkurra ára fresti og gera ráð fyrir því að þau viti að við styðjum hinsegin samfélagið og raun­verulega fögnum fjöl­breyti­leikanum. Við verðum líka að tala um það. Á hverju aldur­skeiði þurfum við að ræða málin. Ef okkur finnst óþægilegt að tala um kynhneigð, kynvitund og kynlíf þá er það sennilega merki um að við þurfum að tala meira um það.Fólk hefur misjafna þörf til að skilgreina kynvitund og kynhneigð sína. Fyrir suma er stór hluti af þeirra sjálfi eða identity að vera Liverpool stuðningskvár. Fyrir suma er stór hluti af identity að vera Vopnfirðingur. Fyrir suma skiptir öllu máli að vita hver uppruni þeirra er, á meðan aðrir sem jafnvel vita ekkert um sinn uppruna finna sinn uppruna í sjálfu sér eða nánasta umhverfinu og það nægir þeim. Þegar að fólk opnar sig um kynvitund sína og kynhneigð þá eigum við að hlusta, bera virðingu fyrir því og spyrja spurning ef það er í lagi til þess að geta skilið það betur.Ég sýni bróður mínum mesta stuðninginn, að mínu mati, með því að sýna hans lífi áhuga. Tala við hann og fá innsýn inn í líf leður­hommans á fetish-klúbbnum sem er svo stór partur af hans lífi. Ræða við hann um samböndin hans og spyrja spurninga um hvernig það er að vera í fjölkæru sambandi og hvort hann geti raun­verulega sofið þegar þeir sofa fjórir eða fleiri saman í rúmi. Það væri svo mikill missir að geta ekki átt þessi samtöl og fræðst mikið um hluta af heiminum sem ég er ekki hluti af og ég og minn maki höfum átt mikilvæg samtöl okkar á milli sem spinnast upp úr nákvæmlega þessu. Við sem lifum í cis-gagn­kynhneigðu sambandi getum líka rætt um það hvort að sambandið sé alveg gangkynhneigt. Erum við á hinsegin rófinu? Erum við fjölkær? Hvernig virkar samþykki í okkar sambandi? Hvar liggja mörkin okkar? Hvað er öruggt kynlíf fyrir okkur? Hvað þurfum við á að halda til þess að þrífast í sambandinu?Eflaust hugsar einhver: „Af hverju í andskotanum á ég að vita hvað það er að vera leður­hommi eða hvort fólk sé fjölkært eða ekki?“Vegna þess að skömm þrífst í ótta og feluleik.Það er frelsi í öryggi og öryggi í frelsi. Þegar við tölum og deilum fjöl­breyti­leikanum stuðlum við að öryggi. Mér fannst svo fallegt að heyra að eftir eitt viðtal þar sem Guðmundur Helgi deildi sinni reynslu af fetish heiminum, þá fékk hann skilaboð frá ungum skápa­leðurhomma, ung manneskja sem fann þessa hneigð hjá sér og leitaði til Guðmundar Helga til þess að fá ráðleggingar um hvernig hann gæti nálgast þennan heim á öruggan hátt. Þegar við ræðum opinskátt um fjöl­breyti­leikann þá gefum við hvert öðru tækifæri til þess að dýpka okkar sanna sjálf, okkar identity. Þá getum við stutt hvert annað og fundið öryggi.Með vinsemd og virðingu,stolt systir, vinkona og cis kona á hinsegin rófinu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið