Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ísland í breyttu umhverfi: Tengls Rússlands og Kína hafa áhrif á öryggisumhverfi norðurslóða

Þeir sem hafa fylgst með alþjóða­málum upp á síðkastið hafa tekið eftir minnkandi velvild í garð Rússa í kjölfar innrásar þeirra í Úkraínu. Flestar Evrópu­þjóðir og Banda­ríkin hafa gagnrýnt innrásina og landið hefur verið beitt viðskipta­þvingunum með það að markmiði að stöðva stríðið. Ekki hafa þó allar þjóðir tekið jafn­afdráttar­lausa afstöðu gegn Rússum og þeirra hópi eru Kínverjar. Vanga­veltur er um hvort þessar tvær nágranna­þjóðir hyggi á nánara samstarf á næstu árum, en meðal þeirra sem skoða samstarf þjóðanna og áhrif þess, ekki síst á norðurslóðum, er Guðbjörg Ríkey Th. Hauks­dóttir, doktorsnemi í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands.

Markmiðið er að greina hvata fyrir auknu samstarfi Kína og Rússlands á norðurslóðum, að hvaða leyti ríkin vinna saman og hvaða afleiðingarnar slíkt samstarf hefur fyrir norðurslóðir. „Ég rýni sérstak­lega í hverjar öryggis­legu afleiðingarnar eru fyrir norðurslóðir,“ útskýrir Guðbjörg Ríkey enn fremur en hún vinnur að verk­efninu undir leiðsögn Page Louise Wilson, dósents við Stjórnmála­fræði­deild.

Rússar lýsa yfir fullum stuðningi við stefnu Kínverja

Xi Jinping, for­seti Kína og Vladimir Putin, Rúss­lands­for­seti

Samskipti Kína og Rússlands virðast hafa verið að styrkjast síðustu ár. Árið 2019 var risavaxin leiðsla sem flytur jarðgas frá Rússlandi til Kína tekin í notkun. Leiðslan er rúmlega sex þúsund kílómetra löng og flytur 38 milljarða rúmmetra jarðgass til Kína á hverju ári.

Þetta skref þykir til marks um sífellt nánara samband Rússlands og Kína en bæði ríkin hafa átt í erfiðum deilum við Banda­ríkin.

Forseti Kína sagði á þeim tíma við opnunar­athöfnina að: „Jarð­gasleiðslan til austurs er verkefni sem er táknrænt fyrir mikilvægi samvinnu Kína og Rússlands og það er einnig ímynd samvinnu sem gagnast báðum aðilunum.

Í byrjun þessa árs gáfu stjórn­völd í Kína og Rússlandi út sameiginlega yfir­lýsingu um að þjóðirnar myndu styðja hvor aðra og að Atlantshafs­bandalagið, NATO, væri að kynda undir nýju köldu stríði. Legðust báðar þjóðir gegn því að fleiri þjóðir myndu ganga inn í NATO. Í yfir­lýsingu þjóðanna var ekki minnst á Úkraínu með beinum orðum en fáum dylst að það er raun­veruleg meining yfir­lýsingarinnar.

Yfir­lýsingin var gerð þegar Vladímír Pútín Rúss­lands­forseti heimsótti Kína í tilefni af setningar­hátíð Vetrar­ólympíu­leikanna

Yfir­lýsingarnar ganga ekki aðeins í eina átt, því að Rússar hafa sagst lýsa yfir fullum stuðningi við stefnu Kínverja gagnvart Tævan. Kínverjar viðurkenna ekki tilvist sjálf­stæði Taívan og hyggjast ná eyjunni á sitt vald.

Ísland og norðurslóðir í ljósi aukin samstarfs stórvelda

Guðbjörg segir að rann­sóknin muni varpa ljósi á; „hvaða áhrif þetta aukna samstarf hefur á norðurslóðir, stjórn­málin á svæðinu og öryggismál. Það er auðvitað nauðsynlegt fyrir ríki eins og Ísland að skilja, geta greint og tryggt sína stöðu út frá breyttu stjórnmála­legu umhverfi. Þetta samband ríkjanna hefur enn ekki verið rannsakað til hlítar og rann­sóknin mun því varpa ljósi á breytt stjórnmálalegt landslag norðurslóða,“ segir Guðbjörg Ríkey að endingu um rann­sóknina við Háskóla Íslands.

Guðbjörg Ríkey segir ljóst að öryggismál muni á næstunni fá aukið vægi þegar kemur að umræðu um norðurslóðir. Þá muni mikilvægi tengsla Rússlands við Kína enn fremur hafa áhrif á stjórnmálalegt og öryggis­umhverfi norðurslóða, ekki síst í ljósi innrásarinnar í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið