Á fjórða tímanum í nótt barst lögreglu og björgunarsveitum tilkynning um göngumann sem var kominn í sjálfheldu í hlíðum Bjarnarfjalls í Hvalvatnsfirði. Aðgerðarstjórn og björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang.Göngumaðurinn var á svipuðum slóðum og þar sem þýski ferðamaðurinn fannst látinn.Sjá nánar
hér.
Á svæðinu eru brattar skriður sem eru mjög lausar í sér og því afar varasamar og hættulegar aðstæður. Þyrla landhelgisgæslunar var send á staðinn til aðstoðar. Um fimm klukkustundum síðar eða rétt fyrir klukkan níu í morgun var sendur sigmaður úr þyrlunni og göngumaðurinn hífður um borð. Maðurinn var sendur til aðhlynningar á Akureyri en blessunarlega kenndi hann sér ekki meins. 60 manns komu að björguninni.Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf út tilkynningu á fésbókarsíðu sinni sem má lesa hér í heild sinni:„
Kl. 03:42
bárust lögreglu og björgunarsveitum upplýsingar um göngumann sem var kominn í sjálfheldu í hlíðum Bjarnarfjalls í Hvalvatnsfirði. Símasamband náðist við manninn, sem var ágætlega á sig kominn en búinn að vera í sjálfheldunni í nokkrar klukkustundir og búinn að reyna lengi án árangurs að koma sér úr henni. Aðgerðarstjórn var kölluð saman og björgunarsveitir kallaðar út. Nokkra stund tók að fá nákvæma staðsetningu á manninum en þegar það tókst kom í ljós að hann var á svipuðum slóðum og þýski ferðamaðurinn sem lést þarna í fjallgöngu fyrir nokkrum dögum. Þarna eru brattar og lausar skriður í sjó fram og því afar hættulegar aðstæður.Vegna erfiðra aðstæðna á vettvangi var óskað eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunni til að aðstoða við björgunina. Einnig var björgunarsveitum stefnt á vettvang úr tveimur áttum á landi og einnig voru tveir bátar björgunarsveita sendir á vettvang. Um 60 manns unnu að aðgerðinni.
Kl. 08:40
var þyrla komin á vettvang og tókst að senda niður sigmann og hífa manninn um borð. Hann var fluttur til Akureyrar og kenndi sér ekki meins en er reynslunni ríkari.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir