„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentSeðlabankinn breytir reglum um íbúðalán: Þyngir róður fasteignakaupenda15. júní 2022 Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gaf frá sér yfirlýsingu í dag. Ber þar helst að nefna töluverðar breytingar sem verða á skilmálum nýrra fasteignalána. Breytingarnar munu taka gildi frá og með morgundeginum. Lækka hámark lána fyrstu kaupenda Ákveðið hefur verið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur í 85% sem áður hefur verið 90%. Viðmið vaxta í greiðslumati Viðmið vaxta við útreikning...
InnlentÖssur vill nýjan formann í stað Loga: „Flokkurinn hefur hrakist eins og sprek“15. júní 2022 „Hvenær ætlar Samfylkingin að kalla þessa efnilegustu konu íslenskra stjórnmála til forystu?“ spyr Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingarinnar, og alþingismaður og ráðherra til margra ára. Spurninguna ber hann upp í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína og vísar þar til Kristrúnar Frostadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar. „Hnífskarpur greinandi með pólitíska framtíðarsýn sem hefur svo sárlega skort síðustu árin, þegar flokkurinn hefur...
InnlentBirgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“15. júní 2022 Forstjóri flugfélagsins Play harmar upplifun farþega sem sendir voru á hótel sem uppfyllti vægast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru strandaglópar í París eftir að flugferð félagsins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, forstjóri Play, er sammála því að hótelið sem farþegunum var boðið upp á í París hafi verið óviðunandi. „Ég er bara sammála þessu fólki sem...
LandiðNýr meirihluti Strandarbyggðar fellur frá áfrýjun: „Mikilvægt er að eining og gott samstarf ríki“15. júní 2022 Sveitastjórn Strandabyggðar samþykkti í gær að falla frá áfrýjun dómsmáls til Landsréttar. Greiddu þrír sveitastjórnarmenn atkvæði með því að falla frá áfrýjuninni en tveir greiddu atkvæði á móti. Kemur þetta fram í frétt Bæjarins bestu. Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitastjóri og núverandi oddviti sveitastjórnar, höfðaði mál gegn sveitafélaginu. Var kröfu Þorgeirs um biðlaun hafnað af Héraðsdómi Vestfjarða og hafnaði dómurinn einnig...
InnlentStaða leigjenda: „Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi“15. júní 2022 Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út nýja mánaðarskýrslu. Í henni er bent á að ýmsir mælikvarðar bendi á að ástandið á leigumarkaði sé betra en oft áður. „Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi á föstu verðlagi frá því í byrjun árs. Nú er leiguverðið orðið lægra en fyrir ári síðan og hefur það ekki mælst lægra að raunvirði síðan í...
HeimurLáta börnin sín tíu mótmæla fóstureyðingum fyrir utan heilsugæslu – „Hér eru börn myrt“15. júní 2022 Jason Storm, og eiginkona hans Sara, taka með sér börnin sín tíu til þess að mótmæla fóstureyðingum og dreifa bæklingum til kvenna sem heimsækja heilsugæslustöð fyrir Planned Parenthood í Wisconsin í Bandaríkjunum. Fjölskyldan eyðir gjarnan sínum frídögum á gangstéttinni fyrir utan Planned Parenthood þar sem konur geta meðal annars gengist undir fóstureyðingu. Sky News fylgdist með fjölskyldunni og ræddi við...
InnlentLandspítalinn vill fá útskýringu frá feðginunum sem veltu milljörðum króna15. júní 2022 „Þessar tölur vekja athygli og ég geri ráð fyrir því að við munum eiga samtal við Lyru,“ sagði Ólafur Darri Andrason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landpítalanum, í samtali við Fréttablaðið. Rætt var við Ólaf í kjölfar frétta af gríðarlegum hagnaði fyrirtækisins Lyra, sem fram kom í ársreikningum þeirra. Lyra seldi fyrir fjórfalt hærri upphæð í fyrra, samanborið við árinu áður, en...
SlúðurGísli Marteinn réttir úr kútnum15. júní 2022 Einn allra besti sjónvarpsmaður Íslands, Gísli Marteinn Baldursson, er ekki á flæðiskeri staddur. Gísli er einn eigenda Kaffihúss Vesturbæjar sem hagnaðist í fyrra um tæplega 5 milljónir króna. Gísli Marteinn og félagar áttu þó erfitt uppdráttar í Covid, eins og fjölmargir aðrir, því árið á undan var tapið rúmar 6 milljónir króna. Nú hafa þeir rétt úr kútnum og það...
InnlentKarlmaður í annarlegu ástandi í Hlíðunum reyndist vopnaður15. júní 2022 Það var annasöm nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla handtók karlmann í Hlíðahverfi í gærkvöldi en sá var í mjög annarlegu ástandi. Skömmu áður en átti að vista manninn í fangaklefa fannst rafstuðbyssa í forum hans. Verður maðurinn kærður fyrir brot á vopnalögum. Seinna um nóttina, í Hlíðahverfi, keyrði ökumaður í veg fyrir lögreglu og inn á bílastæði. Bíllinn var...
InnlentSandra Sigrún dæmd í 37 ára fangelsi – þyngsti dómur sem Íslendingur hefur hlotið14. júní 2022 Magga og Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjáskot. Aðstandendur íslenskrar konu sem hlaut 37 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir tvö bankarán settu af stað söfnun árið 2016, þegar hún var 26 ára svo hægt væri að kanna möguleika á endurupptöku málsins fyrir bandarískum dómsstólum. Dómurinn er sá þyngsti sem Íslendingur hefur hlotið, svo vitað sé. DV fjallaði um málið fyrst miðla hér...
InnlentBogi Ágústsson fréttamaður: „Ég var svo heppinn að það varð ekkert tjón á hjartavöðvanum í mér“14. júní 2022 Í kvöldviðtali Mannlífs ræðir Bogi Ágústsson, fréttamaður hjá RÚV, við Reyni Traustason. Bogi rifjar meðal annars upp þegar hann var háseti á skipum Eimskipa, ræðir Samherjamálið og kynni hans af Margréti Danadrottningu. „Mér finnst það bara hræðilegt,“ segir Bogi Ágústsson um Samherjamálið í viðtali við Reyni Traustason. Starfsmenn RÚV krumu málið til mergjar. Farið var til Namibíu, þeir uppljóstruðu um...
InnlentUna söngkona: „Að fá svona alvarlega greiningu er bara mjög skrítið – Kraftaverk eftir kraftaverk“14. júní 2022 Hin unga og upprennandi tónlistarkona, Una Torfadóttir, dóttir Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Flækt og ung og einmana. Á plötunni fjallar hún um þá reynslu að vera ung að fóta sig í lífinu. Í viðtalinu lýsir hún tónlistinni og þeim áhrifum sem lífshættulegt krabbamein hefur haft á hana. Rætt var við Unu Torfadóttur í Lestinni á...
InnlentMetooThe victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“14. júní 2022 „There are very few cases where perpetrators actually take responsibility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movement, it has usually been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsibility,“ says Gabríela Bryndís Ernudóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentHerbert með nýjan 80′ slagara: „Kominn tíma á eitt svoleiðis“14. júní 2022 Nýjasti slagari meistarans var að líta dagsins ljós og heitir I Follow You. Herbert hyggst slá til formlegs útgáfuteitis á fimmtudaginn 16. júní 2022. Tónlistamaðurinn Herbert Guðmundsson, söngvari, lagasmiður, útsetjari, útgefandi og framleiðandi á eigin tónlist segir að nýjasti lagið sé í anda 80′ slagara. Allar götur síðan hann kom fyrst fram á sjónarsviðið upp úr 1970, þá söngvari með...
InnlentIcelandair rak afturhluta vélarinnar í flugbrautina: „Svona nokkuð er sjaldgæft en getur gerst“14. júní 2022 Flugvél Icelandair rak afturhluta vélarinnar í flugbrautina á Keflavíkurflugvelli í febrúar. Vélinni var flogið strax eftir atvikið í sjö og hálfa klukkustund til Seattle í Bandaríkjunum. Hún komst heilu og höldnu á áfangastað án frekari vandkvæða. Hugað var að vélinni í Bandaríkjunum og henni flogið aftur til Íslands á tilsettum tíma. Má heyra höggið og sjá hristinginn Atvikið átti sér...
InnlentForeldrar á biðlista fá greitt 90 þúsund krónur: „Við stöndum mjög vel að vígi í Garðabæ“14. júní 2022 Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt greiðslur til forráðamanna barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ. Greiðslur miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir átta stunda vistun sem er 90.269 krónur á mánuði. Greiðslur falla svo niður þegar barni býðst leikskóladvöl í Garðabæ. „Við stöndum mjög vel að vígi í Garðabæ þegar kemur að aldri barna...