Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Láta börnin sín tíu mótmæla fóstureyðingum fyrir utan heilsugæslu – „Hér eru börn myrt“

Börnin við mótmæli. Skiltin sjást í bakgrunn
Börnin við mót­mæli. Skiltin sjást í bak­grunn

Jason Storm, og eiginkona hans Sara, taka með sér börnin sín tíu til þess að mótmæla fóstur­eyðingum og dreifa bæklingum til kvenna sem heimsækja heilsu­gæslustöð fyrir Planned Parenthood í Wisconsin í Banda­ríkjunum. Fjöl­skyldan eyðir gjarnan sínum frídögum á gangstéttinni fyrir utan Planned Parenthood þar sem konur geta meðal annars gengist undir fóstur­eyðingu. Sky News fylgdist með fjöl­skyldunni og ræddi við hana en í hvert skipti sem konur gengu inn á heilsu­gæsluna nálguðust tvær elstu stúlkurnar þær með bæklinga og hvöttu þær til þess að sleppa fóstur­eyðingu. Yngri börnin halda á skiltum þar sem stendur; „Við munum ættleiða barnið þitt“ og „Hér eru börn myrt“.

Faðirinn ásamt börnum sínum

Jason Storm, fjölskyldu­faðirinn, er leiðtogi hópsins Operation Save America. Hópurinn er á móti fóstur­eyðingum og hjóna­böndum samkyn­hneigðra. „Ég held að lög í okkar landi ættu að vera skýr um það að litlar manneskjur eru gerðar í mynd Guðs. Þau hafa gildi frá því augna­bliki sem þau verða til,“ sagði Jason sem vísar því á bug að það sýni kvenhatur að mæta fyrir utan heilsu­gæsluna og mótmæla ákvörðun kvenna. „Ég myndi verja réttindi hverrar konu sem á eftir að verða fyrir líkams­árás, alveg eins og ég myndi verja rétt lítils barns sem á eftir að verða fyrir árás, jafnvel þó að sá sem ræðst á það sé móðir þess,“ sagði hann um fóstur­eyðingar og bætti við; „Ég styð réttinn til þess að velja, ég styð ekki réttinn til þess að myrða saklaus börn‘‘.

Elsta dóttir þeirra hjóna við garð­yrkju­störf. Börnin fá öll heima­kennslu

Hjónin eiga saman tíu börn, það yngsta er aðeins fimm mánaða gamalt. Ekkert barnanna gengur í skóla heldur er þeim kennt heima fyrir. Blaða­maður Sky news ræddi við móður barnanna, Söru, sem sagði hvert einasta barn vera Guðs vilja og tóku elstu dætur hennar undir orð móður sinnar. Aðspurðar, hvað þeim finnist um konur sem gangast undir fóstur­eyðingu, eftir að hafa verið nauðgað sagði elsta dóttirin:„Rangt gerir annað ekki rétt, barnið er alveg jafn mikið fórnar­lamb og móðirin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum