Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bogi Ágústsson fréttamaður: „Ég var svo heppinn að það varð ekkert tjón á hjartavöðvanum í mér“

Í kvöld­viðtali Mannlífs ræðir Bogi Ágústsson, frétta­maður hjá RÚV, við Reyni Traustason. Bogi rifjar meðal annars upp þegar hann var háseti á skipum Eimskipa, ræðir Samherja­málið og kynni hans af Margréti Dana­drottningu.

„Mér finnst það bara hræðilegt,“ segir Bogi Ágústsson um Samherja­málið í viðtali við Reyni Traustason.

Starfs­menn RÚV krumu málið til mergjar. Farið var til Namibíu, þeir uppljóstruðu um mútur þar, það var líka farið til Færeyja og var uppljóstrað um svik þar og stór­fyrirtæki, Samherji, er í spilinu. Svo byrjuðu þessar gríðar­legu árásir, sérstak­lega hvað varðar Helga Seljan, fyrr­verandi starfs­mann RÚV.

„Það er nánast glæpsamlegt hvernig var komið fram við Helga Seljan.“

Svo kom þetta skipstjóramál upp og sagt að síminn hans hafi verið brotinn upp inni á RÚV. Hvernig er þetta mál vaxið í huga Boga?

„Það er dálítið erfitt að vita hversu langt ég get gengið í að tala um þetta mál opinber­lega. Ég hætti sem frétta­stjóri fyrir allnokkru þannig að ég þekki það ekki í þeim smáatriðum sem þeir sem stjórna frétta­stofunni gera sem háir mér aðeins. Annað er að þetta er til rann­sóknar og fyrir dómstólum þannig að ég þarf að fara mjög varlega í það sem ég segi. Ég held að fyrir yfir­gnæfandi meirihluta lands­manna þá sé það alveg klárt að þarna er stór­fyrirtæki staðið að því að koma fram á erlendum vettvangi á þann hátt að ef það er ekki lögbrot þá er það siðlaust. Og í staðinn fyrir að segja „hingað og ekki lengra, nú tökum við sjálf okkur í gegn“ þá er farið í það að reyna að drepa þann sem kemur með skila­boðin.“

Og það er gert á hreint ótrú­lega ósvíf­inn hátt.

Boðberann.

„Shoot the messenger. Og það er gert á hreint ótrúlega ósvífinn hátt og maður getur séð umtalið í þessari svokölluðu skæru­leiðadeild Samherja. Það er með ólíkindum. Og það sem virðist vera er það að þetta fólk átti sig ekki á því að það sé að gera eitthvað af sér. Ásakanirnar sem hafa verið bornar á einstaka starfs­menn Ríkis­útvarpsins; þarna er fólk sem er að vinna af full­komnum heiðar­leika sína vinnu.

Ríkis­útvarpið hefur á undan­förnum árum komið upp um fullt af hlutum í gegnum rannsóknar­blaða­mennsku; það sem frétta- og blaðamenn eiga að vera að gera. Við eigum að hafa ákveðið eftirlit með þessu samfélagi og við eigum að segja frá því og koma upp um það þegar forsætis­ráðherra á leyni­félag á Tortola. Þetta er bara okkar hlutverk. Og nákvæmlega það sama gildir um Samherja. Það er alveg sama hver það er; það er okkar hlutverk að skýra frá þessum stað­reyndum.“

Bogi Ágústs­son hefur um langt ára­bil lesið fréttir fyrir lands­menn.

Það kallar á mikinn hita þegar ríkis­fjöl­miðillinn fer í rannsóknar­blaða­mennsku; þá kallar þetta á einhvern hita sem þið gætuð alveg sloppið við með því að halda úti svona kurteislegri Rás 1 og vera ekkert að þvælast inn á jarð­sprengju­svæðin.

„Ég dáist að hugrekki og staðfestu þeirra stráka – þetta voru aðallega strákar – sem voru að vinna að þessu máli. Það er mjög erfitt þegar farið er að njósna um þig, það er farið að sitja um þig og það kemur einhver maður sem er ógnandi. Hvert er siðferði þess fólks sem ber ábyrgð á slíkri framkomu?“

Við sjáum eftir þeim öllum.

Þessir þremenningar – Stefán, Helgi og Aðalsteinn – eru allir hættir. Er það ekki svolítið sorglegt?

„Jú, það er mjög sorglegt. Við sjáum eftir þeim öllum.“

Bogi segir að allur vinnu­staðurinn hafi staðið með þeim; starfs­fólkið. „Og við tókum ofan af fyrir þeim fyrir hugrekki þeirra og þraut­seigju. Seiglan sem var í þeim að berja sig í gegnum þetta.“

Fannst ekki

Bogi Ágústsson er sjómanns­sonur.

„Faðir minn var sjómaður; hann var stýri­maður og svo skip­stjóri hjá Eimskip. Það var alveg ljóst frá upphafi að ég gat ekki farið þá leið vegna þess að á þessum tíma gastu ekki farið í Stýrimanna­skólann nema þú hefðir fullkomna sjón og ég var nærsýnn alveg frá bernsku þannig að það var í rauninni alveg lokað fyrir mér.

Þegar ég var 17 til 18 ára hafði ég áhuga á að feta í fótspor afa míns sem var læknir. Þess vegna fór ég í náttúru­fræði­deild í MR. Ég innritaðist í lækna­deildina í háskólanum og ég sat þar í heilan klukku­tíma. Ég var svo lengi vegna þess að um leið og ég settist niður í fyrsta kynningar­tímann þá vissi ég að þetta var ekki fyrir mig. Ég var í klukku­tíma vegna þess að ég kunni ekki við að standa upp og ganga út fyrr en þessi kynning á náminu var búin. Þetta var í hátíðarsal háskólans í aðal­byggingunni þannig að ég stóð upp, tók töskuna mína og labbaði út í Árnagarð og innritaði mig í íslensku og sögu. Þar átti ég milku frekar heima.“

Við lentum í því að leita að báti sem hafði farist á milli Íslands og Færeyja og fannst ekki.

Bogi var háseti hjá Eimskip öll mennta­skóla- og háskóla­árin. „Skelfilegar minningar er þegar ég fór að vetri til þegar ég var kominn í háskólann sem háseti á Fjall­fossi og við lentum í því að leita að báti sem hafði farist á milli Íslands og Færeyja og fannst ekki.“ Það var aftaka­veður. „Fjallfoss er nátt­úrlega stórt skip miðað við fiskiskip en það var engin leið; það var bara að slá af og sigla upp í og við komumst hvorki lönd né strönd.“

Það var skelfilegt

Það var á háskóla­árunum sem kunningi Boga sá auglýsingu þar sem auglýst var laust starf frétta­manns í erlendum fréttum hjá Sjón­varpinu. „Honum þótti þetta vera starf sem myndi henta mér og ég sótti um og mér til mikillar furðu þá fékk ég starfið.“

Og Bogi Ágústsson hefur starfað þar í áratugi. „Það eru 45 ár síðan ég hóf störf hjá RÚV og frétta­stofu Sjónvarpssins sem þá var. Ég hef verið frétta­lesari í svona 42 ár.“

Hver eru verstu mistökin?

„Ég hef verið svo blessunar­lega lánsamur að mér vitanlega hef ég ekki gert nein skelfileg mistök. Verstu mistökin sem ég man eftir er að þegar ég var frétta­maður í Kaupmanna­höfn var ég að skrifa frétt frá Grænlandi sem ég fékk frá Danmarks Radio; ég man ekki af hverju moskusuxar voru frétt­næmir á þessum tíma og ég bara skrifaði um moskusuxa og það var ekki fyrr en ég var búinn að senda fréttina frá mér að ég fattaði að moskusuxar eru sauðnaut. Og sauðnautið í þessu tilfelli var ég.“

Hver eru erfiðustu málin sem Bogi hefur fengist við?

„Ég var ekki á vettvangi þegar snjó­flóðin voru fyrir vestan en þau eru það sem hefur tekið mest á mig. Án efa.“

Þetta var svo átak­an­legt og maður gleymir því aldrei.

Snjó­flóðin á Súðavík og Flateyri.

Bogi talar um viðtal sem hann tók við Hafstein Númason en hann og þáverandi kona hans misstu þrjú börn í snjó­flóðinu í Súðavík. „Það að tala við Hafstein Númason í sjónvarps­stúdíóinu er eitthvað sem ég gleymi aldrei. Þetta var svo átakanlegt og maður gleymir því aldrei. Versta augna­blikið var held ég þegar ég þurfti að lesa upp nöfn þeirra í beinni útsendingu sem höfðu látist á Flateyri. Það var skelfilegt.“

Þá koma gusur

Það eru ekki alltaf allir sáttir við frétta­flutninginn og segir Bogi að þegar fólk sé í blaða­mennsku þá sé það svo einfalt að það séu ekki allir ánægðir með það sem komi frá viðkomandi eða ritstjórninni.

„Og þá koma gusur og það er bara partur af lífinu. Þú verður bara að vera öruggur um það að þú hafir unnið þína vinnu eins vel og heiðar­lega og þér var unnt og vita að þú hafir ekki verið að skrifa eða gera neitt í einhverjum annarlegum tilgangi. Það er svo oft sem fólk er að gera blaða­mönnum upp einhvern tilgang með fréttum sínum. Fyrir mér er frétt eitthvað sem fólk á og þarf að vita. Eða vill vita. Ég hef aldrei verið að skrifa frétt í þeim tilgangi annaðhvort að koma einhverjum vel eða illa eða auðvelda einhverjum framgang. Við erum þjónar þeirra sem við erum að skrifa fyrir. Þannig að hjá Ríkis­útvarpinu er það þannig að það er nátt­úrlega skrifað í lög: Við erum almanna­þjónustu­útvarp. Við erum að þjóna almenningi. Og það er bara hlutverk sem við tökum alvarlega; þó við förum ekki með bænir um þetta á hverjum frétta­fundi þá er þetta inni í hausnum á öllum. Þetta er partur af grunninum sem þú gengur út frá þegar þú ert að vinna og gera fréttir.“

Við erum getum við sagt póli­tískt viðr­ini.

Hvað mað hugtakið „bláskjár“?

„Stór hluti sjálfstæðis­manna virðist vera sann­færður um það að við séum öll í Samfylkingunni ef ekki lengra til vinstri. Þegar ég var í því að ráða fólk til Ríkis­útvarpsins þá voru það skilyrði hjá okkur að fólk væri ekki í virkri pólitískri þáttöku. Þegar ég byrjaði var ég hægri­maður. Ég var í Vöku í háskólanum og hafði verið í Sjálfstæðis­flokknum. Ég nátt­úrlega gekk úr þessu öllu þegar ég byrjaði að vinna sem fréttaamður. Og ég ætlaðist til þess af þeim sem komu til okkar að þeir skildu sína pólitíska foríð að baki þegar þeir byrjuðu að vinna hjá okkur.

Við erum getum við sagt pólitískt viðrini; vegna þess að þegar þú vinnur hjá fjölmiðli þá er mjög erfitt að binda trúss þitt við einhvern pólitískan flokk vegna þess að þegar þú ert genginn í það lið þá verður þú að verja hann alveg sama hvað gerist, þú verður að úthúða andstæðinunum alveg sama hvað gerist eða hvað er verið að segja eða hver mástaðurinn er. Við erum pólitísk viðrini; við erum ekki að ganga erinda eins eða neins.“

Erfitt fyrst

Bogi var frétta­stjóri og segir hann að það hafi eiginlega verið þannig að Páll Magnússon, þáverandi útvarps­stjóri, hafi rekið sig.

Hver slær hend­inni á móti slíkum díl?

„Þegar Palli Magg tók við sem útvarps­stjóri þá skipti hann um alla framkvæmda­stjórnina. En Palli Magg gerði mér alveg svaka­legan greiða. Ég var búinn að vera í „administration“ í yfir 20 ár. Stundum hugsaði ég með mér hver munurinn væri á því að vera hér í „administration“ eða vera einhver deildar­stjóri eða skrif­stofustjóri í ráðuneyti. Þetta eru fundir, þetta eru starfs­mannamál, þetta eru vakta­töflur og stórt atriði voru fjárhagsmál. Þetta tók alltaf meiri og meiri tíma fannst mér. Ég var að fjar­lægjast fréttirnar sjálfar. Palli bauð mér að halda áfram; ég hélt launa­kjörunum sem ég var með, hann bauð mér að vera mjög frjáls í vinnu og ég fékk eiginlega þann díl sem enginn maður getur sagt „nei“ við: Þú mátt gera það sem þú vilt, þegar þú vilt, koma þegar þú vilt og fara þegar þú vilt. Skyldurnar voru að lesa fréttir. Hver slær hendinni á móti slíkum díl?“

Fórstu alveg ósáttur frá þeim leik?

„Auðvitað var þetta erfitt fyrst en mjög fljótlega áttaði ég mig á því að Ríkis­útvarpið hafði bara gert mér mjög gott tilboð sem ég tók. Já, ég fór algjör­lega ósár frá því.“

Og þú ert í dag stærri heldur en frétta­stjóri; þú ert svolítið idol fyrir fréttirnar.

„Það verða aðrir að meta. Ég bara stend þarna og les fréttir og geri þetta eins vel og mér er kostur.“

Hann fór í gras­rótina.

„Ég byrjaði hjá Ríkis­útvarpinu til að skrifa fréttir, erlendar fréttir, og það hafði ég fjarlægst mjög. Það er enginn sem segir að maður sem er þokkalega góður í því að skrifa fréttir þurfi endilega að vera þokkalega góður stjórn­andi. Ég held ég hafi ekki verið slæmur stjórn­andi; það er annarra að dæma. Þarna allt í einu fór að verða ofsalega gaman að fara aftur í vinnuna.“

Það er bull

Stríðið í Úkraínu og Pútín berst í tal og segir Bogi að þetta gæti farið skelfi­lega.

„Við erum að tala um kjarnorku­veldi sem er undir stjórn manns sem margir hafa efasemdir um að sé heill á geðsmunum eða sé heill almennt. Og þetta er einræðis­ríki. Það er enginn sem getur mælt honum í móti og þetta er gríðar­lega hættulegt ástand. Þetta getur ekki endað vel vegna þess að það hafa slíkir atburðir þegar gerst að þó að stríðið stöðvaðist á morgun þá væri það ekki góður endir. Það væri sá skásti af mögulegum endum á þessum átökum. En ég fæ ekki séð að Úkraínu­menn sætti sig nokkru sinnu við það að missa yfir 20% af sínu landi. Ég fæ ekki séð með hvaða hætti Pútín getur sætt sig við annað heldur en það sem hann lýsti yfir að væru markmiðin frá upphafi, það er að segja að „frelsa“ Donbass-svæðið. Það er samt sem áður skásta niður­staðan að átökunum linni og það verði hægt að semja um frið. En ég er mjög svartsýnn á að það verði hægt, því miður.

Ef það er eitt­hvað sem hefur eflt þjóð­ern­is­vit­und Úkra­ínu­manna þá er það þessi inn­rás Rússa.

Eitt af því sem þessi átök hafa leitt í ljós er það að þessi sögu­skoðun Pútíns um það að Úkraína sé í raun og veru ekki til, hún sé bara partur af Rússlandi, og Úkraínu­menn, sérstak­lega þeir sem hafa rússnesku að móðurmáli, séu í raun og veru Rússar: Það er bull. Yfir­gnæfandi meirihluti Úkraínu­manna, hvort sem þeir hafa rússnesku að móðurmáli eða ekki, hafa snúist til varnar. Ef það er eitthvað sem hefur eflt þjóðernis­vitund Úkraínu­manna þá er það þessi innrás Rússa.

Ég hélt að borgarastyrjöldlin í fyrr­verandi Jógóslavíu væri undan­tekning vegna þess að þar var leyst úr læðingi ástand sem hafði verið fryst áratugum saman. Ég hélt að það væri undantekiningin sú skelfing sem gerðist þar. En að það yrði styrjöld í Evrópu á 21. öldinni hélt ég að væri ekki mögulegt. Maður batt vonir við það eftir fall Sovéríkjanna að Rússland yrði lýðræðis­ríki og myndi taka þátt í alþjóðlegri samvinnu en það var og er engin lýðræðis­hefð í Rússlandi. Það er greini­lega þrá eftir einhverjum sterkum manni. Stalín er ennþá hafður í hávegum þar. Fyrir mér er Stalín ekki minni glæpa­maður heldur en Adolf Hitler. Og ef eitthvað þá var hann verri.“

Ekkert tjón á hjartavöðvanum

Bogi hefur marga hitt á ferlinum og þar á meðal þjóð­höfðingja. Kónga og drottningar. Hann segir að stundum gangi þetta genetíska lotterí vel. „Það má segja að bæði Bretar og Danir hafi verið mjög heppnir með sína þjóð­höfðingja, sérstak­lega Danir. Ég ber mikla virðingu fyrir Margréti Dana­drottningu. Hún er mjög vel menntuð, mjög upplýst og hún er með reserveruð, sérstak­lega fyrst þegar maður er að tala við hana. Þegar við vorum búin að tala saman í tals­verðan tíma var hún orðin miklu afslappaðri.“

Og Margrét Dana­drottning bauð Boga Ágústs­syni sígarettu. Tyrkneska sígarettu.

„Ég reykti á þessum tíma þegar ég hitti hana fyrst. Þannig að ég fékk tyrkneska sígarettu. Það var býsna sterkt. Ég veit ekki hvort hún hafi verið að reykja það almennt eða ekki.“

Ég var hins vegar svo hepp­inn að ég fékk þetta heima hjá mér á föstu­dags­kvöldi.

Bogi var hættur að reykja þegar hann fékk hjarta­áfall á sínum tíma.

„Þetta er ættar­sjúkdómur. Faðir minn var innan við fimmtugt þegar hann fékk kransæða­stíflu. Hann var illu heili staddur fjarri allri læknis­hjálp. Hann var skip­stjóri á Fjall­fossi og staddur í Rúmeníu. Þetta var eftir ógnvæn­lega jarð­skjálfta sem nánast lögðu Búkarest í rúst. Það höfðu allir læknar í hafnar­borginni verið kallaðir til höfuð­borgarinnar þannig að það var eiginlega enga læknis­hjálp að fá. Þannig að hann varð fyrir miklum skaða á hjarta­vöðvanum. Ég var hins vegar svo heppinn að ég fékk þetta heima hjá mér á föstudags­kvöldi og þó þetta væru ekki þessi típísku einkenni kransæða­stíflu þá þóttumst við konan mín nokkurn veginn vita hvað væri í gangi þannig að við hringdum á sjúkrabíl sem var kominn á innna við 10 mínútum og ég fékk meðferð einn, tveir og þrír. Ég var svo heppinn að það varð ekkert tjón á hjarta­vöðvanum í mér.“

Viðtalið má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá