Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fangelsi – þyngsti dómur sem Íslendingur hefur hlotið

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjáskot.
Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.
Magga og Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Aðstand­end­ur ís­lenskr­ar konu sem hlaut 37 ára fang­els­is­dóm í Banda­ríkj­un­um fyr­ir tvö bankarán settu af stað söfn­un árið 2016, þegar hún var 26 ára svo hægt væri að kanna mögu­leika á end­urupp­töku máls­ins fyr­ir banda­rísk­um dóms­stól­um. Dóm­ur­inn er sá þyngsti sem Íslend­ing­ur hef­ur hlotið, svo vitað sé. DV fjallaði um málið fyrst miðla hér á landi, en Auður Ösp, blaða­maður tók viðtal við Söndru á þeim tíma. Í þessum flokk, baksýnis­spegli er unnið út frá heimildum úr málum sem áttu sér stað í fortíðinni. Í þessu erfiða máli skal tekið fram að allar heimildir eru unnar út frá opinberum heimildum. DV fjallaði um málið fyrst árið 2016 og vekur Mannlíf athygli á því út frá þeim heimildum.

Ákærð vegna tveggja bankarána

Sandra Sigrún var 24 ára gömul þegar dómurinn féll í hennar máli árið 2014. Sandra var ákærð fyrir að hafa rænt tvo banka í Virgínuríki árið 2013. Einnig var hún ákærð fyr­ir rán, sam­ráð um að fremja rán, notk­un skot­vopna í glæp­sam­leg­um til­gangi og skot­vopna­eign í ólög­leg­um til­gangi, þrátt fyr­ir að hafa ekki verið með vopn á sér.

Dómarinn var varla búinn að sleppa orðunum þegar Sandra Sigrún hrynur niður. Hún grætur og öskrar að sögn móður hennar í samtali við DV. Lögreglu­maður sparkar í hana og skipar henni að standa á fætur. Magga hleypur að þeim og segir honum að hann sparki ekki í barnið hennar. Hann lítur á hana og segir blákalt: „She´s mine.“ Hún er fangi og þar með eign ríkisins, segir í grein sem Auður Ösp tók saman á DV.

„Að horfa upp á hana þarna er það það versta og ógeðslegasta sem ég hef nokkurn tímann upplifað í lífinu,“ segir Margrét þegar hún lýsir einu erfiðasta augna­bliki ævi sinnar.

Var efnilegur námsmaður með bjarta framtíð

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Þegar Sandra var fimmtán ára var hún ungur og efnilegur námsmaður með bjarta framtíð en missti tökin á lífinu og sökk á kaf í fíkniefna­neyslu. Magga telur að þar hafi tvö atvik skipt sköpum. Sandra hafði þá orðið fyrir alvarlegu kynferðis­ofbeldi af hálfu manns sem var kvæntur frænku hennar. Áfallið og vanlíðanin í kjölfar þess áttu eftir að hafa lang­varandi áhrif.

Í DV segir móðir Söndru: „Síðar þetta sama ár lenti hún í alvarlegu bílslysi, þá var keyrt á hana og hún mjaðmar­brotnaði illa. Henni var ávísað mjög sterkum verkja­lyfjum og varð fljótlega háð þeim. Ég vissi áður að hún hafði verið að fikta við áfengi en þarna byrjaði vanda­málið fyrir alvöru, fyrst verkjalyf og svo harðari efni. Þegar hún var komin út í kókaínneyslu bað hún mig um hjálp og óskaði eftir að ég myndi senda hana eitthvert þar sem hún gæti fengið hjálp. Hún vissi það sjálf að vanda­málið væri alvarlegt. Hún fór tvisvar í meðferð þetta ár en það dugði ekki til.“

Ekki er óalgengt að ungmenni sem leiðast út í neyslu og glæpi hafi sem börn verið greind með einhvers konar þroska­raskanir, hegðunar­örðugleika eða náms­erfiðleika. Sú var ekki raunin með Söndru.

Móðir hennar heldur áfram að segja frá dóttur sinni í samtali við DV: „Það voru aldrei nein vandræði. Henni gekk alltaf mjög vel í skóla, enda er hún afskaplega vel gefin og klár. Hún var forvitin og henni fannst skemmtilegt að grúska í hlutunum og vildi vita hvernig allt virkaði. Henni fannst til dæmis óskaplega gaman að taka í sundur hluti, eins og klukkur og tölvur, og setja síðan saman aftur. Skólinn samþykkti hana í sérstakt prógramm sem komið var á fyrir krakka sem voru klárir í tölvum þar sem þeim var kennt að byggja og búa til tölvur.

Fjölmargar fíkniefnameðferðir

Sandra Fenton með fjöl­skyldu. Mynd/skjá­skot

Ekki varð meira úr skóla­göngu hjá Söndru eftir þetta og lenti hún að sögn Möggu á hrakhólum; fékk vinnu tíma­bundið á hinum og þessum stöðum en gekk illa að halda sér frá dópinu. „Á sumum vinnu­stöðum hérna úti þarf fólk að gangast undir eitur­lyfjapróf til að fá að halda vinnunni og það stóðst hún auðvitað aldrei.“

Næstu árin tóku við fjölmargar fíkniefna­meðferðir sem skiluðu litlu. Sandra sökk djúpt í kókaínneyslu. Hún átti eftir að leiðast út í afbrot meðfram neyslunni og hlaut nokkra styttri dóma fyrir smávægileg brot á borð við fíkniefna­vörslu, búðar­hnupl og hrað­akstur. „Það var alltaf verið að taka hana fyrir eitthvað, en aldrei voru þetta þó alvarleg brot, engin ofbeldis­brot eða neitt þannig. Hún fór fyrst í fangelsi 22 ára og sat þá inni í sex mánuði. Henni var síðan hleypt út á ökkla­bandi og á þeim tíma kynntist hún barns­föður sínum. Þá tóku við nokkrir góðir mánuðir þar sem hún var edrú.“

Sonur Söndru, Rylan, kom síðan í heiminn árið 2011. Hann hefur reynst ömmu sinni og afa mikill gleði­gjafi. Á tímabili leit loksins út fyrir að allt væri að ganga vel en þegar sonurinn var tíu mánaða, í nóvember 2011, féll Sandra á ný og í þetta sinn sökk hún eins djúpt ofan í hyldýpið og hugsast gat. Hún hafði hitt manninn sem hafði nauðgað henni. Það varð henni gjör­samlega um megn.

„Það bara fór með hana, það opnaðist fyrir einhverja gátt og það blossuðu upp allar gömlu og ljótu minningarnar. Hún réði einfald­lega ekki við þetta. Þarna leiddist hún út í þennan mikla viðbjóð sem heróín er, og það er eins og sagt er: það eru bara tvær leiðir út úr heróíni. Fangelsi eða dauði.“

Bílstjórinn var heróínsalinn

Bandarískir frétta­miðlar greindu frá því þann 13. ágúst 2013 að ung kona hefði gengið inn í útibú banka í hafnar­borginni Norfolk í Virginíu, krafið gjaldkerann um peninga og gefið í skyn að hún væri með vopn. Hún hafi flúið út með peningana þar sem 33 ára karlmaður beið fyrir utan á flóttabíl. Þau hefðu síðan keyrt yfir til Chesapeake-borgar og rænt þar annan banka á sama hátt. Umrædd kona var Sandra Sigrún. Bílstjórinn var heróíns­alinn hennar, maður að nafni Duane P Goodson.

Þetta er dóttir mín sem þið eru að lýsa eftir

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Síðla parts þennan sama dag hringdi eldri dóttur Möggu í hana og sagði henni að kveikja á sjón­varpinu. Þar blöstu við upptökur úr öryggis­myndavélum bankans í Norfolk. Það var ekki um að villast hver var þar á ferð.

„Ég vissi þá hvar Sandra var því þennan dag átti hún bókaðan tíma hjá skilorðs­fulltrúa í dómshúsi borgarinnar og pabbi hennar og strákurinn hennar voru þar með henni. Ég hringdi á lögregluna og sagði þeim einfald­lega: „Þetta er dóttir mín sem þið eruð að lýsa eftir. Þið verið að fara núna og ná henni áður en hún sleppur.“

Sandra hefur ætíð haldið því fram að pilturinn hafi þvingað hana til verknaðarins. Ekki er við annað að styðjast en hennar frásögn og segir Magga enga ástæðu til að draga það í efa.

Fangelsið rukkar fanga um leigu

Síðan dómur féll hefur Sandra setið inni í Fluvanna Correctional Center for Women – ríkis­reknu kvenna­fangelsi sem staðsett er í Troy, rúmlega 90 kílómetra fjarlægð frá höfuð­borginni Richmond.

„Það eru tvær manneskjur í hverjum klefa, sem er læstur klukkan tíu á hverju kvöldi. Á daginn hafast þær við í dagstofu þar sem þær horfa á sjón­varpið og geta svo stundað einhverja vinnu. Sandra fékk starf við að þrífa klefana fyrir 30 sent á tímann. Hún hefur líka verið að stunda nám í rafvirkjun,“ segir móðir hennar í samtali við Auði Ösp, blaðamann á DV.

Fangelsið rukkar fanga um leigu fyrir vistina, 30 dollara á mánuði, og þá þurfa fangarnir að greiða aukalega ef þeir vilja auka nærföt eða undirföt innan undir fanga­búninginn. Allar nauðsynja­vörur á borð við sápu og tannkrem þurfa fangarnir að greiða sjálfir dýru verði. Vinna í fangelsinu er af skornum skammti og þannig fékk Sandra aðeins 30 sent á tímann fyrir þrif á klefum. Hún þarf því að reiða sig á fjár­stuðning utan frá.

Minna er um eitur­lyfjaneyslu heldur en gengur og gerist almennt í fangelsum enda eftir­litið gífurlegt. Reglulega eru gerðar rassíur þar sem klefum er snúið við og leitað á öllum föngum. Sömuleiðis er föngum gert að berhátta sig eftir hverja heimsókn sem þeir fá og leitað á líkömum þeirra. Niður­lægingin er mikil.

Foreldrar Söndru reyna hvað þeir geta til að gera daga hennar í fangelsinu bærilega, enda lítil afþreying í boði önnur en sjónvarps­gláp. En þar inni kostar allt peninga „ Sandra er að eðlisfari afskaplega glettin og skemmtileg og hefur gaman af svo mörgu. Hún hefur unun af að teikna og mála þannig að við höfum sent henni peninga svo hún geti keypt tréliti og málningu og hún hefur teiknað mjög skemmtilegar myndir. Hún teiknar mikið á vasaklúta, þar sem hún fær ekki pappír,“ segir móðir Söndru í samtali við Auði Ösp á DV.

Magga segir fanga­verðina misjafna í framkomu sinni við fangana, á meðan sumir komi fram við þá af virðingu séu aðrir sem leggi sig fram um að gera þeim lífið leitt. Hún segir viðhorf og framkomu fanga­varðanna til fanganna að mestu leyti afar ómannúð­lega. Þeir hiki ekki við að láta reiði sína og gremju bitna á föngunum. Sömuleiðis nýti þeir óspart tækifærið til að flagga valdi sínu.

„Þeir nýta það óspart að taka ýmiss konar réttindi af föngunum þegar þeir fá tækifæri til þess. Í nokkur skipti sem ég hef hringt og kvartað þá hefur það umsvifa­laust verið látið bitna á henni.“

Var neydd til að taka þátt í ráninu

Aðal­heiður Ósk Þor­steins­dótt­ir, frænka Söndru Sigrún­ar, sagði í sam­tali við mbl.is að ekki hafi verið tekið til­lit til sér­stakra aðstæðna Söndru Sigrún­ar. Hún hafi verið neydd til að taka þátt í rán­inu.

„Í júlí 2013 kom sá sem seldi Söndru heróín heim til henn­ar og náði í hana, hún taldi sig vera að kaupa meira efni. Hann gaf henni efni og keyrði með hana dágóða stund áður en hann fór með hana að banka. Þar tók hann fram byssu og sagði að ef hún færi ekki þar inn og rændi bank­ann myndi hann drepa hana ásamt for­eldr­um henn­ar og syni. Þenn­an leik end­ur­tók hann í öðrum banka og tók all­an pen­ing­inn fyr­ir bæði rán­in,“ sagði frænka hennar.

Sandra var hand­tek­in sam­dæg­urs og var mjög sam­vinnuþýð við lög­regl­una að sögn Aðal­heiðar Óskar. „Sandra gaf upp mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar sem urðu til þess að sá sem hafði hótað henni líf­láti náðist tveim­ur sól­ar­hring­um seinna, með byss­una og all­an pen­ing­inn. Sandra var með mjög lé­lega lög­fræðinga í þess­um mál­um. Þeir réðu ekki við þessi mál og því fór sem fór,“ segir Aðal­heiður á þeim tíma sem málið var í hámæli.

Binda von­ir við end­urupp­töku máls­ins

Sandra Sigrún Fenton. árið 2011 með syni sínum. Mynd/skjá­skot.

Ný­lega kom í ljós að maður­inn sem var hand­tek­inn ásamt Söndru Sigrúnu í tengsl­um við rán­in var fund­inn sek­ur um að hafa framið morð árið 2007. Von­ast fjöl­skyld­an til þess að þess­ar upp­lýs­ing­ar muni ýta und­ir hugs­an­lega end­urupp­töku máls­ins.

„Ef engu verður breytt mun Sandra sitja í fang­elsi þar til hún verður rúm­lega 60 ára,“ seg­ir Aðal­heiður Ósk. Fjöl­skyld­an hef­ur hafið söfn­un fyr­ir end­urupp­töku á máli Söndru Sigrún­ar í Banda­ríkj­un­um.

Hægt er að leggja fjöl­skyldunni lið með því að leggja inn á söfn­un­ar­reikn­ing 0565-26-130260, kt. 081062-5879.

Heimildir:

Auður Ösp. 26. ágúst 2016. Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fangelsi í Banda­ríkjunum: Öskrin og gráturinn nísti inn að beini- Hlaut þyngsta dóm sem Íslend­ingur hefur hlotið – Í klefa með morðingja. DV.

Innlent. 26.október.2016. Valið stóð á milli bankaráns eða lífláts. Morgun­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá