Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Una söngkona: „Að fá svona alvarlega greiningu er bara mjög skrítið – Kraftaverk eftir kraftaverk“

Tónlistarkonan Una Torfadóttir. Mynd/skjáskot. RÚV
Tón­list­ar­konan Una Torfa­dóttir. Mynd/skjá­skot. RÚV Mynd: RÚV

Hin unga og upprennandi tónlistar­kona, Una Torfa­dóttir, dóttir Svandísar Svavars­dóttur matvæla­ráðherra, gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Flækt og ung og einmana. Á plötunni fjallar hún um þá reynslu að vera ung að fóta sig í lífinu. Í viðtalinu lýsir hún tónlistinni og þeim áhrifum sem lífs­hættulegt krabba­mein hefur haft á hana. Rætt var við Unu Torfa­dóttur í Lestinni á Rás 1, en Anna María Björns­dóttir á vefrit­stjórn og Kristján Guðjónsson, dagskrár­maður tóku saman.

Tón­list­ar­konan Una Torfa­dóttir. Mynd/skjá­skot. RÚV

Heilaskurðaðgerð tveimur dögum eftir tvítugsafmælið

Una hóf nám á sviðs­höfunda­braut Lista­háskóla Íslands en þurfti að fljótlega að gefa það upp á bátinn. Una sem greindist með alvarlegt heilaæxli sumarið 2020.

„Ég hætti í Lista­háskólanum eftir að ég greindist með krabba­mein. Ég fann það hjá mér að það var of mikið að vera bæði í meðferð og intensífu námi. En það var bara falleg kveðju­stund og bara gott fólk þar sem mér þykir mjög vænt um,“ segir Una. Una lýsir því að hafa viljað búa til nýtt upphaf og er núna í Tækni­skólanum að læra að sauma föt.

Tveimur dögum eftir tvítugsafmælið sitt fór Una í heila­skurðaðgerð. „Ég mátti ekki fá mér freyðivín þegar ég varð tvítug, sem var svolítið leiðinlegt„Þetta var svolítið súrrealískt allt saman, að greinast með svona eins og það kallast í krabbameins­bransanum, lífs­ógnandi sjúkdóm.“

Kraftaverk eftir kraftaverk

Tón­list­ar­konan Una Torfa­dóttir. Mynd/skjá­skot. RÚV

„Að vera svona ung og að dauðinn verður allt í einu svona áþreifanlegt konsept, að fá svona alvarlega greiningu er bara mjög skrítið. Það er eiginlega svo skrítið að tilfinninga­kerfið manns kann ekki almennilega að ná utan um það, þetta verða einhver abstrakt konsept.“

Hún segir að veikindin hafi klárlega haft áhrif á hvernig hún lítur á heiminn og lífið en á sama tíma sé lífið svo magnað að maður geti eiginlega vanist hverju sem er. Það hafi bara allt í einu fallið inn í leikmynd lífsins að hún væri með krabba­mein og þyrfti að fara í geisla­meðferð.

„Þetta er ekki alltaf drama og horror, en sem betur fer gekk meðferðin mín mjög vel og aðgerðin mín líka. Þetta var eiginlega bara krafta­verk eftir krafta­verk.“ Í dag er Una einungis í eftirliti og talin krabbameins­laus.

Ekki fundið sig á markaðnum fyrir krabbameinstónlist

Tón­list­ar­konan Una Torfa­dóttir. Mynd/skjá­skot. RÚV

Þessi lífs­reynsla hefur mun frekar haft óbein áhrif á Unu sem skapandi manneskju en bein.

„Mér fannst aldrei sérstak­lega spennandi hugmynd að semja lagatexta um krabba­mein. Ég hef svo gaman af að semja tónlist sem allir geta skilið og tengt við. Og að ég geti komið einhverju í orð sem margir hafa upplifað en kannski ekki orðað. Það er alveg einhver markaður fyrir krabbameins­tónlist þarna úti en hún hafi ekki fundið sig í því.“

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá