Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“

Birgir Jónsson, forstjóri Play, lætur brátt af störfum.
Birgir Jónsson, for­stjóri Play, lætur brátt af störfum.

Forstjóri flug­félagsins Play harmar upplifun farþega sem sendir voru á hótel sem uppfyllti vægast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flugferð félagsins var aflýst. Vísir greinir frá þessu.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, er sammála því að hótelið sem farþegunum var boðið upp á í París hafi verið óviðunandi. „Ég er bara sammála þessu fólki sem var á þessu hræðilega hóteli í París, þetta er auðvitað algjör­lega óboðlegt,“ sagði Birgir Jónsson um málið í Reykjavík síðdegis í gær.

Pöddur, mygla og vond lykt

Nokkuð hefur verið um fréttir af seinkunum og aflýsingum flugferða á vegum Play undan­farna daga. Í fyrradag birtist frétt á Vísi þar sem rætt var við farþega sem urðu fyrir því að flugi þeirra frá París til Íslands með Play var aflýst. Þrennt stóð farþegunum til boða í stöðunni; að fá hótel­gistingu og fyrsta mögulega far heim, seinkun heim­ferðar eða endur­greiðslu á flug­miðanum. Farþegar sem þáðu hótel­gistingu brá í brún þegar komið var á áfanga­stað.

„Við þurftum að skipta um hótel, þetta var bara horbjóður. Þegar við mættum var úldinn matur fyrir utan hótelið og allt út í flugum í móttökunni og ógeðsleg lykt,“ sagði farþegi í samtali við Vísi.

Inni á hótel­herbergjum hafi verið pöddur, mygla og vond lykt. Farþegar höfðu það sömuleiðis á orði að hafa ekki litist á hverfið sem hótelið var staðsett í. Þau hafi verið hrædd um að vera rænd nokkrum sinnum á þeim stutta tíma sem þau eyddu á staðnum.

Rekja tafir til villumeldingar

Birgir útskýrði í Reykjavík síðdegis að tafir á flug­ferðum mætti rekja til villu­meldingar um eldsneytis­skort, sem nýlega kom upp í flugi Play. Vegna þessa hafi neyðar­stig verið sett á og vélin tekin úr umferð. Þetta hafi haft keðju­verkandi áhrif á önnur flug.

Birgir tók fram að þær myndir sem farþegarnir hafi tekið á hótel­herberginu séu ekki í nokkru samræmi við þær myndir sem hafi verið sýnilegar við bókun á netinu.

„Þannig að ég er algjör­lega sammála, þetta er bara viðbjóðslegt. En þegar hlutirnir fara svona í skrúfuna er ekkert hægt að gera nema að biðjast afsökunar og læra af þessu,“ sagði Birgir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá