Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Nýr meirihluti Strandarbyggðar fellur frá áfrýjun: „Mikilvægt er að eining og gott samstarf ríki“

Þorgeir Pálsson
Þorgeir Pálsson Mynd: strandir.is

Sveita­stjórn Stranda­byggðar samþykkti í gær að falla frá áfrýjun dómsmáls til Lands­réttar. Greiddu þrír sveita­stjórnar­menn atkvæði með því að falla frá áfrýjuninni en tveir greiddu atkvæði á móti. Kemur þetta fram í frétt Bæjarins bestu.

Þorgeir Pálsson, fyrr­verandi sveita­stjóri og núverandi oddviti sveita­stjórnar, höfðaði mál gegn sveita­félaginu. Var kröfu Þorgeirs um biðlaun hafnað af Héraðs­dómi Vestfjarða og hafnaði dómurinn einnig að sveitar­félagið greiddi honum máls­kostnað. Dómurinn dæmdi honum þó 500.000 kr. miska­bætur vegna ónærgætni við uppsögnina.

Ákvað þá fyrr­verandi sveitar­stjórn að áfrýja dómnum og sætti sig ekki við miska­bæturnar þar sem uppsögnin var lögmæt að hennar mati.

Gæti orðið dýrt fyrir sveitarfélagið

Ný sveita­stjórn er tekin við undir forystu T listans en með ákvörðun sinni í gær hefur hún fallið frá áfrýjuninni. Lögð voru fram gögn á fundinum í gær, frá Birni Jóhannessyni lögmanni Stranda­byggðar en þau vörðuðu beiðni um leyfi til áfrýjunar á dómi Héraðs­dóms Vestfjarða í málinu til Lands­réttar. Kom fram að Lands­réttur hafi fallist á áfrýjunar­beiðnina í ljósi þess að úrslit málsins hefur töluvert almennt gildi og að ekki sé útilokað samkvæmt fyrir­liggjandi gögnum að dómi héraðs­dóms yrði mögulega breytt sem einhverju nemi.

Í bókun T-lista kemur meðal annars fram að ekki verði litið framhjá því að breytingar hafa orðið í sveitar­stjórninni og að það væri afar óeðlilegt að sveitar­félagið standi í dýrum mála­ferlum við kjörna fulltrúa sína. Þá séu litlir fjárhags­legir hagsmunir undir í þessu máli en frekari málaferli gæti orðið sveitar­félaginu dýrt.

Aukreitis segir í bókuninni:

„Með ákvörðun um að una niður­stöðu héraðs­dóms í málinu og láta þar með staðar numið varðandi fyrr­greindan ágreining fyrr­verandi sveitar­stjóra og fráfar­andi sveitar­stjórnar er jafnframt horft til mikil­vægis þess að ákvörðunin stuðli að sátt og einingu í sveitar­félaginu. Öllum má vera ljóst að mikilvægt er að eining og gott samstarf ríki við stjórn sveitar­félagsins og að horft verði til framtíðar í stað þess að dvelja við ágreining fortíðar.“

A-listinn gerði einnig sína bókun: “Við teljum mjög mikilvægt fyrir báða aðila máls, sem Þorgeir Pálsson höfðaði gegn Stranda­byggð, að fá endanlegan úrskurð á æðra dómstigi. Sá dómur kynni einnig að hafa fordæmis­gildi til að skýra réttar­stöðu stjórn­enda sveitar­félaga gagnvart vinnu­veitenda sínum. Við teljum að afstaða meirihlutans fari í bága við siða­reglur fyrir kjörna fulltrúa í Stranda­byggð, þ.e. 2. og 5. grein, og við áskiljum okkur rétt til að leita álits nefndar Sambands íslenskra sveitar­félaga samkvæmt 4. m.g.r 29. gr. sveitar­stjórnar­laga 138/2011.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ