„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentCovid-19Öllu aflétt á föstudag: „Við hættum ekki að fylgjast með stöðu faraldursins“23. febrúar 2022 Heilbrigðisráðherra óskaði fólki til hamingju með daginn í lok blaðamannafundar sem haldinn var í dag. Tilgangur fundarins var að tilkynna um afléttingar allra samkomutakmarkana næstkomandi föstudag. Fundinum var varpað út á vef RÚV. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að aflétta öllum samkomutakmörkunum í landinu, sem og á landamærunum, aðfaranótt föstudags. Einangrun smitaðra verður einnig afnumin. Samkvæmt heilbrigðisráðherra var...
HeimurMaður skotinn til bana í Stokkhólmssýslu – Lögreglan með bíl til skoðunar23. febrúar 2022 Karlmaður fannst látinn í bifreið í gær, í bænum Södertälje sem er í Stokkhólmssýslu í Svíþjóð. Hafði maðurinn verið skotinn til bana. Fram kemur á fréttasíðu svt.se að lögreglan hafi hafi viðamikla rannsókn og kallað fjöldi manna til yfirheyrslu þó enginn hafi enn verið handtekinn. Þá hefur hún fundið bíl í sem hún telur að morðinginn eða morðingjarnir hafi ferðast...
InnlentLögregla hefur upplýsingar um símaþjófinn: „Hægt að setja þá samsæriskenningu upp á hillu“23. febrúar 2022 Skýrslutaka lögregluembættisins á Akureyri yfir fjórum blaðamönnum, sem hafa réttarstöðu sakborninga, tengist ekki umfjöllun þeirra um skæruliðadeilda Samherja. Það staðfestir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins Kjartansson, í samtali við RÚV. Hin meintu brot blaðamannanna tengjast því ekki Samherja eða meintri notkun þeirra á stolnum gögnum úr síma, nánar tiltekið úr síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá úrgerðarfyrirtækinu. Gunnar lögmaður staðfestir jafnframt...
InnlentSjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn: „Það er kosið um þetta í vor“23. febrúar 2022 Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson, sem eitt sinn var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist handviss um að eitt af kosningamálum komandi sveitastjórnarkosninganna verði aukin áhersla á göngugötur í borginni. Enn á ný hjólar Gísli í mikla notkun einkabílsins hér á landi og það gerir hann í færslu á Twitter. Birtir hann mynd af götu við Austurvöll þar sem fólk situr úti í blíðskapar...
InnlentUpp úr sauð á fundi Vöndu hjá knattspyrnudeild Þórs: Móðir Arons Einars fékk engin svör23. febrúar 2022 Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, heimsótti á dögunum súpufund íþróttafélagsins Þórs á Akureyri og var tilefnið framboð hennar til stjórnar KSÍ sem fram fer í lok mánaðarins. Fjölmennt var á fundinum en á meðal þeirra sem mættu var móðir Arons Einars Gunnarssonar sem, líkt og fjölmiðlar hafa fjallað um, var tekinn út úr landsliði Íslands í kjölfar ásakana um kynferðisbrot....
LandiðGróðurhús Jarðarberjalands ónýtt: „Engin ber tínd fyrr en í fyrsta lagi í apríl á næsta ári“23. febrúar 2022 Gríðarlegt tjón varð hjá garðyrkjustöðinni Jarðarberjalandi í Reykholti í Biskupstungum í aftakaveðrinu í fyrrakvöld. Gróðurhúsið er ónýtt og uppskera ársins einnig. Mynd: Sigurjón Sæland Sunnlenska.is sagði frá þessu en þar kemur fram að stórt gróðurhús fyrirtækisins hafi gefið sig í illviðrinu um klukkan 21 í gærkvöldi. Ljóst er að tjónið er mjög mikið enda gróðurhúsið algjörlega ónýtt og öll uppskeran...
InnlentCovid-19Seðlabankastjóri Íslands með Covid-19: „Enginn má sköpum renna“23. febrúar 2022 Seðlabankastjóri Íslands, Ásgeir Jónsson er kominn með Covid-19. Þetta tilkynnti hann í gær á Facebook síðu sinni. Segir hann að Seðlabankinn hafi alla tíð síðan faraldurinn lét á sér kræla, verið aðeins harðari í sóttvarnarráðstöfunum en opinber fyrirmæli sögðu til um. Þrátt fyrir það sé hann nú kominn með veiruna. Hann ber sig þó vel og segist ekki mikið lasinn....
InnlentPlay flýgur í sólina til Orlando23. febrúar 2022 Flugfélagið Play hefur flug til Orlando þann 30.september næstkomandi og hafa þau þegar opnað fyrir miðasölu. Kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu að flogið verði til Orlando International flugvallarins þrisvar sinum í viku en verður Orlando fjórði áfangastaður Play í Bandaríkjunum. Býður Play einnig upp á flug til Boston, Baltimore og New York. Flugfélagið bætti við sig nýja áfangastaðnum vegna...
InnlentMikil lífsgæðaskerðing að missa tennurnar: „Þú verður hræddur við að hoppa, hjóla, kyssa einhvern“23. febrúar 2022 Blaðamaður Mannlífs lagði á dögunum land undir fót til þess að skoða umhverfi tannlækninga í Búdapest sem og svokallaðar túristatannlækningar. Sífellt fleiri Íslendingar leggja leið sína til borgarinnar í leit að ódýrari tannlæknaþjónustu, einkum og sér í lagi þegar um er að ræða viðameiri aðgerðir. Blaðamanni var boðið út á vegum Íslensku Klíníkurinnar í Búdapest, stofu í eigu Íslendinga. Umfjöllunin...
InnlentMýflug hefur aflýst átta sjúkraflugum. „Þetta er erfiðasti vetur sem ég man eftir“23. febrúar 2022 Það sem af er ári hefur Mýflug flogið um hundrað sjúkraflug. Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs sagði í viðtali við Morgunblaðið að flugfélagið hafi þurft að aflýsa átta sjúkraflugum vegna veðurs, nú síðast á mánudaginn. Sjúkraflug síðustu ára hafa verið svipað mörg og í ár að sögn Leifs en man hann ekki eftir öðrum eins vetri. „Þetta er erfiðasti vetur sem...
SlúðurSævar er ekki kona23. febrúar 2022 Það fæst úr því skorið um helgina hvort Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, eða Vanda Sigurgeirsdóttir, forseti KSÍ, verði kjörin forseti Knatttspyrnusambands Íslands. Eins og staðan er núna er Sævar talinn hafa yfirhöndina með litlum mun þó. Stuðningsmenn Vöndu halda því mjög á lofti að nauðsynlegt sé að kjósa konu og Sævari beri því að hafna á grundvelli þess. Bæði eru...
InnlentFíkniefni í Hlíðunum – Gaf upp rangt nafn við handtöku23. febrúar 2022 Lögregla stöðvaði ökumann skömmu eftir miðnætti. Maðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og fyrir að hafa ekið ítrekað án ökuréttinda. Auk þess gaf maðurinn ítrekað rangar upplýsingar er hann var spurður um skilríki. Engin slys urðu á fólki við umferðaróhapp í Kópavogi í gærkvöldi. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í hálku, rann í veg fyrir annan bíl...
HeimurGíslataka í Amsterdam – Myndband22. febrúar 2022 Maður vopnaður skotvopni heldur fólki gíslingu í Apple búðinni í Amsterdam, talið er að um vopnað rán hafi verið að ræða sem þróaðist í gíslatöku. Hollenska lögreglan staðfesti þetta en getur ekki gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Fjöldi myndbanda hefur verið dreift á samfélagsmiðlun en lögregla biður almenning um að halda sér frá svæðinu. Myndband frá Amsterdam...
MenningFugl bjargar ökumanni frá 300 dollara hraðasekt – Sjáðu myndina22. febrúar 2022 Bandaríkjamaður slapp heldur betur þegar fugl flaug í veg fyrir hraðamyndavél á örlagastundu. Eins og sést á myndinni er ekki hægt að sjá skráningarnúmer bílsins og því ekki hægt að sekta hann. Þetta er ekki eina dæmið um svona lagað en bæði í Þýskalandi og Ástralíu hafa fuglar komið í veg fyrir háar sektir með slíkum hætti.
InnlentGeir Gunnar vill hjálpa Pepsi Max fíklum og opna afeitrunarstöð: „Maður skemmir svoldið partíið“22. febrúar 2022 Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur, segist ætla að opna afeitrunarstöð fyrir fólk sem er háð Pepsi Max. Hann ræddi þessa hugmynd í Síðdegisútvarpinu á RÚV. Í fyrstu talaði hann um að afeitrunarstöðin yrði einungis fyrir konur en fékk ábendingar um að vandamálið ætti við bæði kynin „Ég held að konur séu opnari fyrir sinni heilsu,“ segir Geir og bætir við að...
LandiðVeðurofsinn í Reykjanesbæ: Á annan tug skipa í vari fyrir utan höfnina – sjáðu myndbandið22. febrúar 2022 Veðurofsinn lék Suðurnesjamenn grátt í nótt og nú í morgun en björgunarsveitarmenn höfðu í nægu að snúast. Björgunarsveitarmenn unnu þrekvirki þegar tveimur ungum mönnum var naumlega bjargað úr Keflavíkurhöfn í Reykjanesbæ. Mennirnir urðu innlyksa í höfninni í kolvitlausu veðri þegar flóð stóð sem hæst. Svo virðist sem að þeir hafi ekið út í stórt stöðuvatn sem hafði myndast á höfninni...