Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn: „Það er kosið um þetta í vor“

Gísli Marteinn þáttastjórandi og fyrrverandi borgarfulltrúi fékk boðskort
Gísli Marteinn þátta­stjór­andi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi fékk boðskort

Fjölmiðla­maðurinn Gísli Marteinn Baldursson, sem eitt sinn var borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, segist handviss um að eitt af kosninga­málum komandi sveita­stjórnar­kosninganna verði aukin áhersla á göngu­götur í borginni. Enn á ný hjólar Gísli í mikla notkun einka­bílsins hér á landi og það gerir hann í færslu á Twitter.
Birtir hann mynd af götu við Austur­völl þar sem fólk situr úti í blíð­skapar veðri og skrifar:
„Þessi gata var einu sinni bílagata. Lélegir borgar­fulltrúar mótmæltu því að banna þar bíla með nkl sömu rökum og núna eru notuð gegn Borgar­línu, göngugötu á Laugavegi, þéttingu byggðar eða hverju því öðru sem gott er og fallegt í þessari borg. Það er kosið um þetta í vor,“ segir Gísli Marteinn.

Gatan sem Gísli talar um var breytt í göngugötu árið 1991, þegar Sjálfstæðis­flokkurinn var við völd í borginni.

Eins og frægt er orðið er Gísli Marteinn mikill talsmaður þess að draga úr notkun einka­bílsins og í gær birti hann fleiri færslur um hversu heil­brigður lífstíll það er að ganga frekar en að keyra.

„Fór í klippingu, forn­bókabúð og á bjórkrá i miðborg Reykja­víkur núna síðdegis. Sit núna á kránni. REM er í græjunum. Ég elska þessa borg. Ég veit að það er af því ég fæddist hér og allt það, en mér finnst Rvk vera dásamlega falleg og sjarmerandi, líka í skíta­veðri,“ segir Gísli og bætir við:

„Flest keyra allt sem þau fara. Svo sorglegt hvað þau missa af miklu. Hljóðin, ilmurinn, fólk á förnum vegi, hús til að lesa, skrýtin húsasund og allskonar sem hefur í mörg hundruð ár örvað okkur og skemmt. Í staðinn situr það í Lay-Z-boy í málm­hulstri til að komast milli staða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur