Flugfélagið Play hefur flug til Orlando þann 30.september næstkomandi og hafa þau þegar opnað fyrir miðasölu.
Kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu að flogið verði til Orlando International flugvallarins þrisvar sinum í viku en verður Orlando fjórði áfangastaður Play í Bandaríkjunum.
Býður Play einnig upp á flug til Boston, Baltimore og New York.
Flugfélagið bætti við sig nýja áfangastaðnum vegna nýrrar Airbus A321neo Long Range sem væntanleg er í flota Play.
Hefur nýja vélin meiri drægni fram yfir systurvélar sínar en getur borið meira eldsneyti.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir