Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Öllu aflétt á föstudag: „Við hættum ekki að fylgjast með stöðu faraldursins“

Mynd/skjáskot RÚV
Mynd/skjá­skot RÚV

Heilbrigðis­ráðherra óskaði fólki til hamingju með daginn í lok blaðamanna­fundar sem haldinn var í dag. Tilgangur fundarins var að tilkynna um afléttingar allra samkomu­takmarkana næst­komandi föstudag. Fundinum var varpað út á vef RÚV.

Ríkis­stjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að aflétta öllum samkomu­takmörkunum í landinu, sem og á landa­mærunum, aðfara­nótt föstudags. Einangrun smitaðra verður einnig afnumin. Samkvæmt heilbrigðis­ráðherra var full samstaða um ákvörðunina innan ríkis­stjórnarinnar og hún tekin í samráði við sóttvarna­lækni.

„Við erum að endur­heimta eðlilegt líf en veiran er enn þá með okkur,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, á blaðamanna­fundinum. Hún sagði Íslendinga vera reynslunni ríkari eftir síðastliðin tvö ár. Hún sagðist trúa því að landsmenn myndu áfram hegða sér skyn­samlega; þeir kynnu að umgangast veiruna.

„Ef fólk er veikt, þá á það auðvitað að taka tillit til þess og halda sig heima. Ég held að það sé nú bara eins skýrt og það getur orðið,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir.

Takmarkanir myndu litlu skila

Willum Þór, heilbrigðis­ráðherra, sagði að á þessum tíma­punkti væri útbreiðsla veirunnar það mikil í samfélaginu að takmarkanir myndu ekki skila miklu. Hann sagðist þó hafa áhyggjur af Lands­spítalanum, enda væri fólk enn að leggjast inn með Covid-19 og margir starfs­menn fjar­verandi vegna smita. Það raski starfinu.

„Það ber þó að taka það fram að ef fólk finnur einkenni, að það nýti sér þá hrað­greiningar­prófin. Þeir sem hins vegar vilja eða þurfa samkvæmt læknis­ráði að fá stað­festingu í PCR prófi geta nýtt sér það,“ sagði Willum Þór. Hann sagði að enn væru einhver lönd sem krefðust neikvæðra PCR prófa frá fólki sem ferðaðist til þeirra. Hægt yrði að fara í slík próf eftir sem áður.

Katrín Jakobs­dóttir sagði að stjórn­völd væru alltaf viðbúin því að önnur afbrigði veirunnar gætu skotið upp kollinum. „Þá erum við svo sannarlega með reynsluna til að geta sett á aðgerðir mjög hratt og tekið upp nýtt fyrir­komulag á landa­mærunum mjög hratt.“

„Við hættum ekki að fylgjast með stöðu faraldursins hér heima og erlendis,“ sagði forsætis­ráðherra í lok fundarins.

Þau Willum Þór Þórsson og Katrín Jakobs­dóttir voru sammála um að það væri sannarlega óskandi að blaðamanna­fundur dagsins yrði sá síðasti í tengslum við Covid-19 faraldurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur