Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Veðurofsinn í Reykjanesbæ: Á annan tug skipa í vari fyrir utan höfnina – sjáðu myndbandið

Veður­ofsinn lék Suður­nesjamenn grátt í nótt og nú í morgun en björgunar­sveitarmenn höfðu í nægu að snúast. Björgunar­sveitarmenn unnu þrekvirki þegar tveimur ungum mönnum var naumlega bjargað úr Kefla­víkurhöfn í Reykja­nesbæ. Mennirnir urðu innlyksa í höfninni í kolvitlausu veðri þegar flóð stóð sem hæst. Svo virðist sem að þeir hafi ekið út í stórt stöðuvatn sem hafði myndast á höfninni sem er þekkt fyrir að fara að hluta til undir sjó þegar að flæðir.

Snörp viðbrögð björgunar­sveitar­manna, sem keyrðu ofan í stöðu­vatnið á risa­stórum björgunar­sveitar­jeppa á fimmtíu tommu dekkjum, urðu til þess að þeir náðu að bjarga öðrum drengnum sem var komin upp á þak bílsins en hinn náði að koma sér upp af sjálfs­dáðum. Svo mikið var flóðið að dekk jeppans sem björgunar­sveitin ók, sem eins og áður segir eru af stærstu gerð, voru á kafi í sjó. Má með sanni segja að björgunar­sveitarmenn frá björgunar­sveitinni Suðurnes hafi í nótt bjargað manns­lífum.

En það var ekki bara á landi sem menn lentu í vandræðum því á hafi úti var veðrið ekki skárra. Blaða­maður Mannlífs átti leið hjá Kefla­víkurhöfn um hádegis­bilið í dag og vakti athygli hversu mörg skip voru þar rétt fyrir utan. Samkvæmt upplýsingum frá starfs­manni Reykja­neshafna voru fjölmörg skip sem leituðu þar skjóls í gærkvöldi.

„Þetta eru fjórtán skip, bæði togarar og loðnuskip, sem eru þarna í vari og verða eitthvað áfram,“ sagði starfs­maðurinn en líkt og sést á meðfylgjandi ljósmynd og mynd­skeiði sem blaða­maður Mannlífs tók er ekki gott í sjóinn og því skiljanlegt að menn hafi leitað þar að vari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ