„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentÓgeðfelld skilaboð máluð á glugga í Breiðholti: „Farðu til fjandans helvítis…“16. febrúar 2022 Óhugnalegum skilaboðum var komið fyrir á glugga í húsi í Fellahverfinu: „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn.“ Skilaboðin eru bakvið verslunina Mini Market, þar sem Gamla bakaríið var áður til húsa. Í Facebook-hópnum Íbúasamtökin betra Breiðholt birtist í gær mynd af glugganum sem um ræðir. „Hvað er í gangi?“ spyr íbúinn sem deildi myndinni og í athugasemdunum furðar fólk sig...
InnlentAnna Hildur, nýr formaður SÁÁ: „Ég var alltaf með kvíða, var alltaf þunglynd og alltaf með móral“16. febrúar 2022 „Auðvitað hefur þetta haft áhrif á samtökin. Þetta er álitshnekkir. Stjórnin varð fyrir áfalli eins og allir aðrir. Þetta var eitthvað sem engin bjóst við. Þetta samræmist hvorki gildum SÁÁ né gildum okkar sem einstaklinga, þannig að þetta var ekki gott fyrir samtökin,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, áfengis- og vímuefnaráðgjafi og nýr formaður SÁÁ, um vandann og ólguna sem kom...
InnlentLögreglumenn vilja fá rafbyssur í sína þjónustu16. febrúar 2022 „Pressan frá lögreglumönnum sjálfum hefur verið sú að fá eitthvert tæki þar sem þeir geta yfirbugað fólk úr fjarlægð. Og þá hefur verið talað um þessar rafbyssur verði meira skoðaðar og svona boltabyssur líka en það er komið styttra á veg. Þetta er hugsað aðallega sem öryggi lögreglumanna og borgaranna, að þurfa ekki að lenda í líkamlegum átökum, heldur sé...
InnlentLandvernd telur Hafnarfjarðarbæ hafa brotið gegn náttúruverndalögum16. febrúar 2022 Í umsögn Landverndar sem var send á Skipulagsstofnun kemur fram að Landvernd telji að Hafnafjarðarbær verði að endurskoða áætlanir um mannvirki við Ástjörn og virða friðlýsingu svæðisins. Landvernd segist hafa kynnt sér tillögu að matsáætlun fyrir íþróttasvæði Hauka í Hafnarfirði og telur að Hafnafjarðarbær verði að endurskoða áætlanir um uppbyggingu innan skipulagssvæðis sveitafélagsins í viðkvæmri og afar dýrmætri náttúru sem...
InnlentFlosi um vinsældir Drauga fortíðar:„Viðbrögðin eru náttúrlega yfirþyrmandi en um leið stórkostleg“16. febrúar 2022 Sagnfræðingurinn og rokktröllið Flosi Þorgeirsson á 54 ára afmæli í dag. Flosi er hvað þekktastur fyrir að vera gítarleikari hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Ham. Þá er hann einnig annar tveggja stjórnanda eins allra vinsælasta hlaðvarps landsins, Draugar fortíðar. Þar fjalla þeir fóstbræður, Baldur og Flosi um hina ýmsu kima mannkynssögunnar á sinn einstaka hátt, heyrn er sögu ríkari. Flosi hefur undanfarin...
MenningPete Davidson bregst við hótunum Kanye West – Órólegur yfir risastórum aðdáendahópi hans16. febrúar 2022 Pete Davidson, kærasti Kim Kardashian, bregst við hótunum Kanye West, fyrrverandi eiginmanns Kim. „Pete hefur engar áhyggjur af Kanye en hann er órólegur yfir risastórum aðdáendahópi hans sem hlusta á lögin og gætu vel athafað sig út frá textanum. Þess vegna hefur hann ráðið öryggisgæslu,“ segir heimildarmaður í samtali við Radar Online. Í nýju lagi Kanye segir: „Guð bjargaði mér...
InnlentCovid-19Þórólfur segir endalokin nálgast: „Við erum að bíða eftir að það fari að slökkna í þessu“16. febrúar 2022 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir þjóðina vera á hraðri leið í hjarðónæmi en nú hefur fjórðungur þjóðarinnar smitast af kórónuveirunni. Þórólfur segir að ætla megi að fleiri hafi smitast án þess að vita af því, jafnvel hafi helmingur þjóðarinnar nú þegar fengið veiruna. „Við erum að bíða eftir að það fari að slökkna í þessu sem ætti kannski að gerast á...
InnlentÞórður upplýsir Bjarna um erindi lögreglu: „Ég spurði. Lögregla staðfesti það i yfirlýsingu“16. febrúar 2022 Þórður Snær Júlíusson, einn fjögurra blaðamanna sem boðaðir hafa verið til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi, skrifaði í dag stutta en vel meitlaða færslu á Twitter. Þar upplýsir hann Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, um erindi lögreglunnar. Bjarni Benediktsson olli fjaðrafoki er hann skrifaði færslu þar sem hann gagnrýnir fréttaflutning og túlkun fjölmiðla á yfirheyrslubeiðni lögreglunnar á hendur blaðamanna sem hafa undanfarin...
HeimurHörmulegur atburður í Sydney: Fyrsta árásin í 60 ár16. febrúar 2022 Maður lést er hann varð fyrir hákarlaárás í dag, miðvikudaginn 16. febrúar við Buchan Point nálægt Little Bay Beach í Sydney, Ástralíu. Þetta er talin fyrsta banvæna árás hákarls í tæp sextíu ár við strendur Sydney en síðast lést maður af völdum slíkrar árásar árið 1963. Um var að ræða eina þekktustu hákarlategund í heiminum, tegund sem iðullega bregður fyrir...
HeimurSex ára stúlka fannst eftir að hafa verið saknað í tvö ár – Foreldrar hennar handteknir16. febrúar 2022 Sex ára stúlka fannst falin í leyniherbergi undir stiga rúmum tveimur árum eftir að henni var rænt. Paislee Shultis var rænt af foreldrum sínum árið 2019 eftir að þau misstu forræði yfir henni, hún var þá fjögurra ára gömul. Hennar hefur verið saknað síðan hún hvarf af heimili forráðamanns síns í New York, foreldrar hennar földu sig frá lögreglu. Kimberly...
InnlentFasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar enn – 5 milljóna króna hækkun á tveimur mánuðum16. febrúar 2022 Kaupverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hækkaði að meðaltali um fimm milljónir króna á einungis tveimur mánuðum. RÚV greinir frá þessu. Fasteignaverð heldur því áfram að hækka hratt, þrátt fyrir vísbendingar um að markaðurinn væri að fara að róast. Samkvæmt nýbirtum tölum frá Þjóðskrá Íslands hækkaði fasteignaverð um 1,7 prósent milli desember og janúar. Hækkunin var örlítið meiri milli nóvember og desember....
InnlentIllugi varð vitni að fallegu augnabliki í skólasundi: „Hvað ertu eiginlega að gera?“16. febrúar 2022 Hinn skeleggi fjölmiðlamaður, Illugi Jökulsson er þekktur fyrir sína hörðu gagnrýni og menn og málefni á Facebook. Inn á milli má þó sjá glitta í fallegar örsögur úr þjóðlífinu. Ein slík birtist í dag. Illugi varð vitni að ljúfu augnabliki í skólasundi barna. Örsagan minnir okkur á að stundum þarf maður bara að lifa í núinu. „Hópur af 7 ára...
InnlentFærsla Bjarna Ben olli fjaðrafoki: „Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk“16. febrúar 2022 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skrifaði að margra mati hreint út sagt ótrúlega færslu á Facebook í gær. Þar veltir hann þeirri spurningu upp hvort fjórða valdið, fjölmiðlar, séu yfir lög hafin og hvort lögreglan megi ekki yfirheyra blaðamenn eins og aðra þegna þessa lands. Viðbrögðin við færslunni hafa verið gríðarleg en sitt sýnist hverjum um ágæti hennar....
InnlentMetooFjölnir Þorgeirsson er þjóðþekkti maðurinn – barnsmæður stíga fram16. febrúar 2022 Mannlíf hefur nýverið fjallað um þjóðþekktan mann sem var dæmt forræði yfir einu barna sinna. Barnsmæður mannsins hafa stigið fram og sagt frá meintu grófu andlegu og líkamlegu ofbeldi auk hótana af hans hálfu. Samkvæmt heimildum Mannlífs er maðurinn sem um ræðir Fjölnir Þorgeirsson athafnamaður. Fjölnir á fimm börn með fimm konum og fékk hann forræði yfir einu þeirra nýverið....
InnlentMetooFIFA horfir til Íslands: Alþjóðleg rannsókn á máli Þórhildar Gyðu og KSÍ16. febrúar 2022 Siðanefnd FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, rannsakar nú viðbrögð og framkomu Knattspyrnusambands Íslands í máli þar sem Þórhildur Gyða Arnarsdóttir kærði landsliðsmanninn Kolbein Sigþórsson fyrir ofbeldi gegn sér árið 2017. Þetta herma heimildir Mannlífs. Samkvæmt þeim á Þórhildi Gyðu að hafa borist fyrirspurnir frá FIFA um málið. Á málið að hafa yfir sér þann blæ að um sé að ræða rannsókn á...
InnlentVélsleða ekið á hús í Mosfellsbæ – Eldur við skóla í Kópavogi16. febrúar 2022 Vélsleða var ekið á hús í Mosfellsbæ í gærkvöld og lögregla kölluð á vettvang. Þá varð þriggja bíla árekstur í Hafnarfirði og voru bílar töluvert mikið skemmdir eftir slysið. Einn ökumaður leitaði á Bráðadeild vegna eymsla. Þá var lögreglu tilkynnt um eld í skólahúsnæði í Kópavogi. Eldurinn reyndist vera í gámi fyrir utan skólann. Einnig var tilkynnt um eld í...