Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Færsla Bjarna Ben olli fjaðrafoki: „Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk“

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Bene­dikts­son.

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra í Ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur skrifaði að margra mati hreint út sagt ótrúlega færslu á Facebook í gær. Þar veltir hann þeirri spurningu upp hvort fjórða valdið, fjöl­miðlar, séu yfir lög hafin og hvort lögreglan megi ekki yfirheyra blaðamenn eins og aðra þegna þessa lands. Viðbrögðin við færslunni hafa verið gríðarleg en sitt sýnist hverjum um ágæti hennar.

Þess má geta að lögbann var sett á frétt Stundarinnar úr gögnum sem tengdust Bjarna og fengin úr Glitni árið 2017. Tíma­setningin þótti grun­samleg en Alþingis­kosningar voru á næsta leyti. Sjálfur neitaði Bjarni alfarið að hafa komið nálægt því að leggja lögbann á Stundina. Lögbannið var að lokum dæmt ólöglegt.

Í færslu Bjarna í gær talar hann um nýlegt mál þar sem lögreglan á Norður­landi boðaði fjóra blaðamenn til yfirheyrslu.

„Nú berast fréttir af því að lögreglan á Norður­landi eystra hafi tekið mál til rann­sóknar og með símtali í gær boðað fjóra frétta­menn til yfirheyrslu. Það eina sem fram er komið frá lögreglunni er að embættið sé með brot á friðhelgi einkalífs til rann­sóknar.

Við höfum mátt venjast því í frétta­flutningi af lögreglu­málum þegar almennir borgarar eiga í hlut að fjöl­miðlar beini sjónum sínum að því hvað hinn grunaði kunni að hafa unnið til saka. Iðulega er mikið á sig lagt til að grafast fyrir um það og enginn vafi að almenningur kann vel að meta vandaða rannsókna­blaða­mennsku. Mál sem eru til rann­sóknar fá reglulega umfjöllun í frétta­tímum og framvindu mála er fylgt eftir frá rannsókn til ákæru og dóms eða niður­fellingar máls eftir atvikum.

Það verður að segjast eins og er að svo virðist sem þessi hefðbundu vinnu­brögð og lögmál eigi ekki við, að minnsta kosti ekki að öllu leyti, í tilviki blaða­mannanna sem fengu símtal í gær.“

Þá bendir Bjarni einnig á í færslunni að engar fréttir hafi verið fluttar af því hvað það er sem lögreglan kann að hafa í höndunum. Segir hann að þeir sem eru til rann­sóknar stjórni sjálfir umræðunni um málið.

„Engar fréttir hafa verið fluttar af því sem mestu máli skiptir og flesta þyrstir að vita hvað lögreglan kunni að hafa undir höndum sem gefi tilefni til rann­sóknar. Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­sóknar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru getgátur um það hvað lögreglan muni mögulega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin getgátum um það. Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“

Í næsta kafla færslu Bjarna gagnrýnir hann Ríkis­útvarpið harðlega.

„Ríkis­útvarpið tók málið skrefinu lengra og fékk lögmann til að lýsa því yfir að ef málið snerist um það sem blaða­mennirnir sjálfir telja, þá sé nær útilokað að ákæra verði gefin út og svo les maður fréttir af dóma­fordæmum um að slík mál séu vonlaus frá upphafi. ,,Afar ólíklegt að blaða­mennirnir fjórir verði ákærðir,“ segir í fyrirsögn fréttar á ruv.is. Þetta er áður en nokkur maður veit hvaða gögn lögreglan hefur eða hvaða spurninga hún leitar svörum við. Eru einhver fordæmi fyrir svona vinnu­brögðum frétta­stofu?

Öll fréttin er að gefnum forsendum þeirra sem fengu símtal í gær. Hefði Ríkis­útvarpið ekki mátt láta þess getið að sumir þeirra sem eru með kenningar um það hvað málið snýst hafa starfað á Ríkis­útvarpinu. Hefði það ekki sýnt lágmarks viðleitni til að gæta hlut­leysis í máli sem virðist á algjöru byrjunar­stigi?“

Þvínæst skýtur fjármála­ráðherra á Blaðamanna­félag Íslands og spyr spurninga um lögvarðan rétt fjölmiðla­manna.

„Formaður Blaðamanna­félagsins hefur komist að því að máið sé alvarlegt og óskiljanlegt. Gott ef ég heyrði ekki að það væri búið að senda bréf til útlanda til að vekja athygli á þessu alvarlega máli.

Ég get ekki varist því að spyrja nokkurra spurninga þegar maður les, heyrir og sér hverja fréttina á eftir annarri vegna símtalsins frá lögreglunni í gær.Eru fjölmiðla­menn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar? Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?

Ef fjölmiðla­mennirnir eiga þann lögvarða rétt sem þeir gefa sér að eigi við í þessu máli, að svara ekki spurningum lögreglunnar, vilja þeir þá ekki bara gera það, neita að svara. Er það mjög íþyngjandi? Meira íþyngjandi en almennir borgarar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lögreglu?“

Að lokum spyr Bjarni hvort ekki sé hægt að gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðlunum.

„Eru ekki öll fordæmin sem rakin eru í fjöl­miðlum og frétta­tíma Ríkis­útvarpsins einmitt til sönnunar um að við búum í réttar­ríki og að þeir sem telja sig hafa hreinan skjöld geta mætt óhræddir til lögreglunnar og treyst því að réttar­kerfið á Íslandi virki.Má ekki bara hafa það í huga að sum mál eru felld niður. Önnur fara í ákæru. Í sumum er sakfellt, í öðrum sýknað. Þarf öll þessi stóryrði áður en lögreglan spyr fyrstu spurningarinnar undir rannsókn málsins?Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lögunum.Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðlunum líka?“

Færslan hefur vakið gríðar­lega athygli enda ekki á hverjum degi sem ráðherra í ríkis­stjórn tjáir sig með þessum hætti á opinberum vettvangi um mál af þessu toga.

Færslunni hefur verið deilt 66 sinnum þegar frétt þessi er skrifuð, 197 hafa skrifað athuga­semdir við hana og 913 hafa líkað við hana. Í athuga­semdum kennir margra grasa.

Einar Steingrímsson stærð­fræðingur og þjóðfélags­rýnir svarar Bjarna:
„Nei, þetta þykir alveg sjálfsagt mál, Bjarni. Til dæmis í Rússlandi. Og Tyrklandi:

„Eru fjölmiðla­menn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar? Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?“,“.

Árni Finnsson náttúru­verndar­frömuður spyr Bjarna til baka.
„„Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðlunum líka?“ spyr formaður Sjálfstæðis­flokksins.

Vísar formaðurinn þá til þess að hallað hafi á skæruliða­deild Samherja í umfjöllun fjölmiðla?“

Trausti nokkur skrifar athugasemd sem sló rækilega í gegn:

„Réttar­ríki segirðu? Hvers vegna er þá sjávar­útvegs­fyrirtækjum ekki refsað fyrir það lögbrot að fara yfir leyfilega hlutdeild í kvóta­kerfinu? Þeim er sagt að þau hafi 3 ár til að snúa þessu við. Þetta er lögleysa og ringul­reið í löggæslu­málum. Með lögum skal land byggja, en þegar kemur að stór­felldum efnahags­brotum og samkeppnis­brotum eru viðurlögin nánast engin undir forystu Samherja­flokksins. Siðleysa og siðblinda einkennir þig og þinn flokk. Og nú skal fara að gaslýsa þjóðina í svona 1000 skiptið eins og ykkur einum er lagið.“

Björn Leví Pírati leiðrétti Trausta að bragði:

„6 ár, ekki 3. En annars þumall.“

Heimir nokkur spyr Bjarna hvort hann sé orðinn talsmaður ákveðins fyrir­tækis á landinu:

„Ert þú núna orðinn talsmaður eins ákveðins fyrir­tækis í landinu?

Fáránlegt að ráðherra skuli vera að vasast í máli sem þessu. Augljóst hver tengslin eru hér.Og merkilegt að þú biðjir aðra um að svara spurningum þegar þú gerir það ekki sjálfur.

Ég sé ekki betur en þú sért með þessu að gera lítið úr blaðamanna­stéttinni sem er eini vettvangur almennings til að veit þér og þínum aðhald.“

Ágúst vill bendla Sjálfstæðis­flokkinn við þetta mál:

„Hver er ástæðan að Fjármála­ráðherra tjáir sig núna á þennan hátt,getur verið að ákveðinn stjórn­málaflokkur standi á bakvið þetta.Nú kemur hver flokks­gæðingurinn á fætur öðrum og reynir að réttlæta árásir á lýðræðið og frjálsa fjöl­miðlun.Þetta minnir á ríki þar sem reynt er að þagga sann­leikann sem kemur sér illa fyrir valda­stéttina.“

Ekki eru allir þó ósammála Bjarna en hann á sér víða aðdáendur enda í stærsta flokki landsins.

Óðinn R. Valdimarsson, lögmaður er einn af þeim sem tekur undir með Bjarna:

„Nákvæmlega. Svo gleymist það (viljandi eða af sökum fákunnáttu) að réttar­staða sakbornings er ákveðin gæði þegar það kemur að rann­sóknum sakamála. Sakborningar geta neitað að tjá sig og mega segja ósatt, ef þeim sýnist svo, sér að refsilausu. Vitni þurfa að segja satt og þeim er hægt að refsa, segi þau ósatt.“

Hjörtur nokkur svarar Óðni með góðri spurningu:

„þannig að ef Páley, sem er innmúruð í sjálfstæðis­íþrótta­félaga­flokkinn og ráðin af tengsla­neti Samherja, vildi í raun komast að sann­leikanum þá hefðu þau verið boðuð sem vitni… Meikar þessi aðgerð bara sens ef Bjarni Rað-gjaldþrot Benediktsson mælir svo um?“

Pétur svarar svo Hyrti: „Ómar er ekki beittasti lögfræðingurinn í flokknum, hlutir eins og að meika sens eru ekki alltaf efst á borði.“

María er líka á sama máli og Bjarni. „einstak­lega dapurlegt að fylgjast með RUV sem er með þetta til umfjöllunar í fjölda þátta í dag og Þórður Snær fékk sérstakan þátt fyrir sig í morgun­þættinum á rás 1 til að lýsa furðu sinni á að lögreglan skuli voga sér að spyrja hann nokkurra spurninga, hlut­drægni RUV er svo augljós að það er ekki einu sinni reynt að fela hana á nokkurn hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli