Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hörmulegur atburður í Sydney: Fyrsta árásin í 60 ár

Maður lést er hann varð fyrir hákarla­árás í dag, miðvikudaginn 16. febrúar við Buchan Point nálægt Little Bay Beach í Sydney, Ástralíu. Þetta er talin fyrsta banvæna árás hákarls í tæp sextíu ár við strendur Sydney en síðast lést maður af völdum slíkrar árásar árið 1963. Um var að ræða eina þekktustu hákarla­tegund í heiminum, tegund sem iðullega bregður fyrir í bandarískum kvik­myndum undir nafninu „The Great White“ en á Íslandi gengur tegundin undir nafninu Hvít­hákarl. 

Maðurinn var við sund í sjónum þegar fjöldi strandar­gesta og sjómenn heyrðu stingandi öskur koma frá sjónum sem varð rauður af blóði þar sem maðurinn barst fyrir lífi sínu við hákarlinn. Að sögn vitna hrifsaði þessi ófrýnilega skepna bjargar­lausan manninn undir yfir­borðið í nokkrar sekúndur áður en líkami mannsins gaf sig og liðaðist í sundur. Hvít­hákarlinn synti örstutta stund í burtu en kom svo aftur og gerði aðra atlögu að manninum á meðan hópur fólks horfði agndofa á frá ströndinni. Hélt svo hákarlinn sína leið út á opið hafið.

Björgunar­þyrla var send á vettvang ásamt fjölda annarra björgunar­sveita og voru læknar kallaðir út ásamt öðrum viðbragðs­aðilum. Það þótti ljóst að ekkert var hægt að gera, maðurinn var látinn. Það sem eftir var af líkams­leifum mannsins skolaði svo upp að ströndinni um klukku­stund síðar ásamt rifnum sjógallanum. Eins og áður segir er talið að þetta sé fyrsta hákarla­árásin í Sydney í tæp sextíu ár og því um afar sjaldgæfan atburð að ræða.

Hinn látni átti heima nálægt ströndinni og var þaulvanur að synda á svæðinu og þekkti ströndina vel. Sjónar­vottar voru skelfingu lostnir, og eins og gefur að skilja, slegnir yfir atburðinum líkt og aðrir íbúar borgarinnar.

Svæðinu í kringum ströndina var öllu lokað í kjölfarið þar sem leit að frekari líkams­leifum mannsins hélt áfram en samkvæmt frétta­miðlum í Ástralíu stendur lokunin yfir að minnsta kosti næsta sólar­hringinn. 

Hvít­hákarlinn er líklegastur allra hákarla­tegunda til að ráðast á fólk en hann heldur sig aðallega á opnu hafi, til dæmis við Suður-Afríku, Kaliforníu, Ástralíu og Mexíkó. Þeir sjást þó bregða fyrir nær landi og á ströndum en það er þó sjaldgæft að þeir ráðist á fólk. Þeir geta orðið allt að 6 metrar á lengd og yfir tonn að þyngd og dæmi eru um stærri og þyngri hvít­hákarla. Talið er að hákarlinn geti synt á allt að 40 kílómetra hraða á klukku­stund; hann hefur flug­beittar tennur og er verulega ógnvekjandi í útliti. Veiði­aðferðir hans eru einstakar en hann syndir undir bráðina, ræðst snögglega að henni og sökkvir flug­beittum tönnunum í kvið hennar. Til að valda bráðinni sem mestum skaða hristir hann hausinn til hliðanna, sleppir henni og lætur hana blæða út þar til hann snýr sér aftur að henni og étur hana.

Þessi hörmulegi dauðdagi er án efa martröð allra þeirra sem strendur sækja víðsvegar um heiminn en kvik­myndir á borð við The Jaws hafa ekki orðið til þess að minnka óttann gagnvart þessum gríðar­stóru skepnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum