Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Landvernd telur Hafnarfjarðarbæ hafa brotið gegn náttúruverndalögum

Í umsögn Land­verndar sem var send á Skipulags­stofnun kemur fram að Landvernd telji að Hafna­fjarðarbær verði að endur­skoða áætlanir um mannvirki við Ástjörn og virða frið­lýsingu svæðisins.

Landvernd segist hafa kynnt sér

 tillögu að mats­áætlun fyrir íþrótta­svæði Hauka í Hafnar­firði

og telur að Hafna­fjarðarbær verði að endur­skoða áætlanir um uppbyggingu innan skipulags­svæðis sveita­félagsins í viðkvæmri og afar dýrmætri náttúru sem nýtur verndar.Hvetur Landvernd Hafna­fjarðarbæ á síðu sinni til þess að taka af skarið í eitt skipti fyrir öll, virða frið­lýsingu svæðisins og náttúru­verndar­ákvæði sem vernda það og falla frá frekari uppbyggingu mann­virkja við Ástjörn.

Vatnafari getur raskast í tjörninni

Ástjörnin sjálf og nánasta umhverfi hennar er friðlýst og nýtur auk þess verndar náttúru­verndar­laga eins og hraunið umhverfis hana. Landvernd segir í umsögninni: „að fara í stórar framkvæmdir alveg við tjörnina er mjög líklegt til þess að raska vatnafari tjarnarinnar. Ástjörn er grunnt stöðuvatn þar sem grunn­vatnsstaðan ræðst af grunn­vatnsstöðu bergsins í kring. Slík stöðuvötn eru viðkvæm fyrir náttúru­legum sveiflum og þola illa rask, eins og dæmi frá þurrkatíð sl. sumar sýna. Hætt er við því að með greftri fyrir mann­virkjum alveg við tjörnina skerðist rennsli í hana eða að frárennsli frá henni opnist þannig að vatnafar hennar raskist.“

Uppbygging stríðir gegn friðlýsingarskilmálum

Landvernd óttast að svokallaðar mótvægis­aðgerðir sem greint er frá í kafla 6.2 í mats­áætlun sem vísað er í hér að ofan, til að sporna við þessu, séu ekki nægjanlegar til að tryggja að vatnafar tjarnarinnar raskist ekki.

Það er því mat Land­verndar að fyrir­huguð uppbygging stríði gegn frið­lýsingar­skilmálum. Jafnframt telur Landvernd að með framkvæmdunum verði brotið gegn 61. gr. náttúru­verndar­laga nr. 60/2013 bæði þar sem um er að ræða rask á vatnafari stöðu­vatns stærra en 1000 m2 (1. mgr. a liður 61. gr. náttúru­verndar­laga) sem og á hrauni (2. mgr. a liður 61. gr. Náttúru­verndar­laga).

Umsögn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli