Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Lögreglumenn vilja fá rafbyssur í sína þjónustu

„Pressan frá lögreglu­mönnum sjálfum hefur verið sú að fá eitthvert tæki þar sem þeir geta yfirbugað fólk úr fjarlægð. Og þá hefur verið talað um þessar rafbyssur verði meira skoðaðar og svona bolta­byssur líka en það er komið styttra á veg. Þetta er hugsað aðallega sem öryggi lögreglu­manna og borg­aranna, að þurfa ekki að lenda í líkamlegum átökum, heldur sé hægt að yfirbuga fólk úr fjarlægð,“ segir Fjölnir Sæmundsson formaður Lands­sambands lögreglu­manna.Formaður Lands­sambands lögreglu­manna segir lögreglu­menn vilja fá rafbyssur í sína þjónustu. Það gæti bætt öryggi þeirra sjálfra og líka borg­aranna.

Tvær skot­árásir urðu með þriggja daga millibili í Reykjavík fyrir og um síðustu helgi, þar sem þrjár manneskjur særðust. Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra hefur sagt að til greina komi að lögreglan bæti rafbyssum við búnað sinn. Fjölnir Sæmundsson formaður Lands­sambands lögreglu­manna segir umræðu um kosti og galla rafbyssa hafa staðið árum saman, og meðal annars rætt um hættuna sem þeim fylgir. Dæmi sýni að illa geti farið, til dæmis ef skotið er á manneskju með gangráð eða slíkt.

Til þess hafi lögreglan núna piparúða, en margir telji rafbyssur betri en að fá úðann í augu og húð. Næsta tæki sé kylfa sem skaði geti hlotist af. Fjölnir segir slysin verði helst þegar lögreglan lendir í átökum við æst fólk í annarlegu ástandi. Eins geti rafbyssa verið góður kostur þegar átt er við mann með hníf, en hnífa­burður hafi aukist mjög. Fjölnir segir lögreglu­menn vilja bæta þessum búnaði við.

„Já, mér heyrist það og það hefur svo sem verið afstaða Lands­sambands lögreglu­manna í mörg ár að það eigi að skoða þennan möguleika, fara í gegnum það og kanna hvort þetta sé ekki örugglega öruggur möguleiki fyrir borgarana, að þetta sé vald­beitingar­tæki sem sé öruggt. Ég get ekki betur heyrt á lögreglu­mönnum annað en að þeir vilji fá þetta tæki til viðbótar við annað.“

Fjölnir segir að hugmyndin sé ekki að allir lögreglu­menn verði vopnaðir rafbyssum, heldur að þær verði í bílunum og annar lögreglu­mannanna megi beita þeim. Sá þurfi að hafa lokið lögreglu­námi og fengið sérstaka þjálfun í beitingu vopnsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Fjórar unglingsstúlkur eru í haldi í Malang, grunaðar um aðild að dauða skólastúlku.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli