Mikill fjöldi aðdáenda komu saman í Swansea í Wales á mánudag til að kveðja söngkonuna Bonnie Tyler, sem lést í Portúgal í síðasta mánuði, 75 ára að aldri.
Meira en eitt þúsund manns söfnuðust saman fyrir utan Swansea Minster-kirkjuna áður en útförin hófst. Athöfninni var jafnframt streymt í beinni útsendingu fyrir þá sem ekki komust á staðinn.
Viðstaddir klöppuðu þegar líkbíll með hvítri kistu söngkonunnar kom að kirkjunni. Kistan var skreytt hvítum rósum og liljum auk þess sem á hana hafði verið grafið lítið tákn af hendi sem hélt á hljóðnema ásamt G-lykli.
Þegar kistan var borin inn í kirkjuna voru tvö þekkt lög Tyler leikin, „It's a Heartache“ og „If I Sing You A Love Song“. Fjölmargir aðdáendur tóku undir og sungu með.
Tyler, sem var þekkt fyrir hrjúfa og auðþekkjanlega rödd sína, naut mikilla vinsælda á alþjóðavettvangi. Meðal þekktustu laga hennar er stórsmellurinn „Total Eclipse of the Heart“.
„Hún er velsk goðsögn,“ sagði Bette Richards, 75 ára aðdáandi, við AFP og bætti við að Tyler hefði verið indæl manneskja sem hefði aldrei breyst þrátt fyrir frægðina.
Karlakór flutti einnig lag Simon & Garfunkel, „Bridge Over Troubled Water“, við athöfnina.
John Edwards, sjötugur íbúi Swansea, sagði Tyler hafa verið stórstjörnu en um leið venjulega manneskju sem heimamenn litu á sem eina af sínum eigin.
„Ég er stoltur. Allir elskuðu hana. Þetta er mikill missir,“ sagði Edwards.
Fjölskylda og vinir Tyler fylltu kirkjuna við útförina en fjölmennur hópur aðdáenda fylgdist með fyrir utan og kvaddi eina þekktustu söngkonu sem Wales hefur alið.
