Nokkuð var um verkefni hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal annars þurfti að kalla lögreglu að parísarhjólinu á Miðbakkanum í Reykjavík eftir að tveir einstaklingar urðu þar eftir þegar starfsmenn höfðu slökkt á hjólinu.
Samkvæmt dagbók lögreglu höfðu einstaklingarnir tveir keypt sér ferð með parísarhjólinu en sátu fastir uppi í því eftir að slökkt var á tækinu. Starfsmenn virtust hafa yfirgefið svæðið án þess að átta sig á að fólkið væri enn í hjólinu.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang höfðu starfsmenn þó uppgötvað mistökin, snúið aftur og losað fólkið úr prísundinni.
Fyrr um kvöldið var tilkynnt um eld á svölum fjölbýlishúss í Laugardalnum. Þegar lögregla kom á staðinn reyndist enginn eldur laus. Húsráðandi var að grilla á svölunum og engin hætta talin á ferðinni.
Í miðborg Reykjavíkur var maður handtekinn eftir að hafa verið til vandræða og betlað fyrir utan verslanir.
Lögregla var einnig kölluð til í Garðabæ vegna einstaklings í annarlegu ástandi sem reyndi að komast inn í íbúðir. Lögreglumenn fjarlægðu manninn af vettvangi.
Þá var óskað eftir lögregluaðstoð á bar í Kópavogi vegna manns sem hafði fengið sér of mikið að drekka og var sagður til almennra leiðinda. Reynt var að ræða við manninn og koma viti fyrir hann en án árangurs. Hann var að lokum handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Loks sinnti lögregla útkalli vegna elds í bifreið. Bifreiðin var alelda þegar lögreglu bar að garði og varð gjörónýt í eldsvoðanum.

