Dýraveiðimönnum í Indónesíu hefur tekist að fanga apakött sem hafði valdið miklum óhug í bænum Tembilahan á Súmötru undanfarnar tvær vikur. Apaköttur réðst á 18 íbúa bæjarins og urðu árásirnar meðal annars til þess að tugum skóla var lokað.
Um er að ræða fullorðinn apakött sem beit og klóraði fórnarlömb sín. Börn og eldra fólk voru meðal þeirra sem urðu fyrir árásum en apinn virðist einkum hafa ráðist á fólk þegar það var eitt á ferð.
Junaidy Ismail, yfirmaður slökkviliðs- og björgunarþjónustu Tembilahan, sagði í samtali við AFP á föstudag að alls hefðu 19 árásir verið skráðar og fórnarlömbin væru 18 talsins. Einn einstaklingur hefði því orðið fyrir árás tvisvar.
Nokkrir hinna slösuðu þurftu talsverða læknisaðstoð. Sumir þurftu meira en tólf spor vegna sára sinna auk þess sem þeim var gefið bóluefni gegn hundaæði.
Apakötturinn náðist í gildru sem komið hafði verið fyrir í bænum á fimmtudag. Björgunarþjónustan birti myndskeið daginn eftir þar sem dýrið sást á lífi í búri og virtist það vera undir töluverðu álagi.
Yfirvöld hafa þó varað íbúa við því að telja hættuna að fullu liðna. Ari Syuria, embættismaður í bænum, sagði á samfélagsmiðlum að ekki væri útilokað að fleiri apakettir hefðu tekið þátt í árásunum og hvatti fólk því áfram til að sýna aðgát.
Alls voru 40 skólar í Tembilahan enn lokaðir á föstudag og hafði hundruðum nemenda verið gert að stunda fjarnám í þrjá daga vegna ástandsins. Stefnt er að því að skólarnir opni á ný á mánudag, að því gefnu að yfirvöld telji óhætt að hefja þar kennslu að nýju.
