
Arnór L. Pálsson, fyrrverandi forstjóri ALP-bílaleigunnar, er látinn. Hann var 82 ára gamall en Morgunblaðið greinir frá andláti hans.
Arnór fæddist árið 1943. Foreldrar hans voru séra Páll Þorleifsson prófastur og Guðrún Elísabet Arnórsdóttir húsmóðir. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Laugum í Reykjadal árið 1959 og stundaði síðar nám í Danmörku og Englandi.
Arnór hóf starfsferil sinn sem gjaldkeri hjá Útvegsbanka Íslands á árunum 1964 til 1966. Hann starfaði síðar sem deildarstjóri hjá Almennum tryggingum og var aðstoðarframkvæmdastjóri Byggingarþjónustunnar.
Árið 1980 stofnaði Arnór ALP-bílaleiguna. Rekstur fyrirtækisins óx hratt og gegndi hann starfi forstjóra þar til árið 2000 þegar hann seldi fyrirtækið. Í kjölfarið starfaði hann sem framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkjugarðanna til ársins 2014, þegar hann lét af störfum sökum aldurs.
Hann lét einnig til sín taka í stjórnmálum og sveitarstjórnarmálum en hann sat í bæjarstjórn Kópavogs frá 1982 til 1998.
Arnór lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.
Komment