1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

3
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Til baka

Ashlee Jenae ráðfærði sig við ChatGPT skömmu fyrir andlát

Hún var með unnusta sínum í ferð

Ashlee Jenae
Ashlee Jenae
Mynd: Instagram/Ashlee Jenae

Yfirvöld í Tansaníu hafa staðfest að bandaríski áhrifavaldurinn Ashlee Jenae, sem hét réttu nafni Ashly Robinson, hafi svipt sig lífi á lúxusdvalarstað í apríl síðastliðnum.

Á blaðamannafundi í dag sagði lögreglan að rannsókn málsins hefði leitt í ljós að Robinson hefði glímt við þunglyndi og leitað upplýsinga á gervigreindarspjallforritinu ChatGPT um sjálfsvíg skömmu fyrir andlátið. Að sögn Zuberi Chembera, aðstoðarforstjóra sakamálarannsókna á Sansibar, fannst meðal annars fyrirspurn frá marsmánuði þar sem spurt var: „Hversu mikið magn af Valium myndi drepa mig?“

Lögregla segir einnig að textaskilaboð sem Robinson sendi fjölskyldu og vinum hafi gefið til kynna að hún væri í mikilli vanlíðan og glímdi við þunglyndi. Sum skilaboðanna hafi jafnframt borið einkenni kveðjubréfa.

Robinson var með unnusta sínum, Joe McCann, í ferð sem átti upphaflega að vera afmælisferð en hafði jafnframt þróast í trúlofunarferð. Hún fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi sínu þann 9. apríl eftir að starfsmaður hótels fékk engin svör þegar bankað var á dyrnar.

Fjölskylda Robinson hafði áður lýst yfir efasemdum um að um sjálfsvíg hefði verið að ræða og sagðist hafa talið andlátið grunsamlegt. Lögregla segir hins vegar að engar vísbendingar hafi fundist um að saknæm háttsemi annars aðila hafi átt sér stað.

Yfirvöld staðfestu að Robinson og McCann hefðu lent í alvarlegum deilum skömmu fyrir andlátið. McCann var yfirheyrður af lögreglu í tengslum við rannsóknina en var hvorki handtekinn né ákærður.

Í yfirlýsingu til fjölmiðla sagði McCann að missirinn væri honum afar þungbær.

„Ég sakna Ashly á hverri einustu stundu dagsins og sársaukinn yfir að vera án hennar mun aldrei hverfa. Missir af þessari stærðargráðu er ekki eitthvað sem maður kemst einfaldlega yfir,“ sagði hann.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu