1
Minning

Hólmbert Friðjónsson er fallinn frá

2
Heimur

Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði

3
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

4
Fólk

Guðmundur Felix sýnir árangurinn eftir erfiða aðgerð

5
Innlent

Lögreglan klikkar á eigin nafni

6
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

7
Innlent

Lögfræðingur vistaður á brókinni í fjórar klukkustundir

8
Fólk

Maríanna fyrsti kvenkyns rallýökumaðurinn býr í tösku

9
Fólk

Landsliðsmaður selur íbúð með yfirbyggðum svölum

10
Heimur

Bílaáhrifavaldur látinn eftir bílslys

Til baka

Bæjarstjóri ákærður fyrir íkveikju

Sagður bera ábyrgð á umfangsmiklum skógareldi

Eldur Grikkland
Slökkvilið að störfum í Grikklandi
Mynd: ARIS OIKONOMOU / AFP

Grísk yfirvöld hafa úrskurðað bæjarstjóra og tvo aðra menn í gæsluvarðhald vegna gruns um að bera ábyrgð á umfangsmiklum skógareldi sem geisaði skammt frá Aþenu í síðustu viku. Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir íkveikju og skemmdir á opinberum innviðum.

Rannsakendur telja að eldurinn hafi kviknað 31. júlí þegar neisti myndaðist í rafmagnslínum við vindorkuver nærri sjávarþorpinu Agios Vasileios, um 85 kílómetra norðvestur af Aþenu.

Giannis Apostolou, bæjarstjóri Stylida, er einn hinna ákærðu. Hann á fyrirtæki sem sérhæfir sig í raflögnum og hefur tengsl við vindorkuverið. Auk hans sæta verktaki hjá fyrirtækinu og eigandi vindorkuversins ákæru. Verði þeir fundnir sekir gætu þeir átt yfir höfði sér meira en tíu ára fangelsi.

Gríska fréttastofan ANA greindi frá því á föstudag að yfirvöld hefðu ákveðið að stöðva starfsemi vindorkuversins meðan málið væri rannsakað.

Miklar vindhviður, sem náðu allt að 130 kílómetra hraða á klukkustund, urðu til þess að eldurinn breiddist hratt út frá rafmagnslínunni í átt að suðurhlíðum Kithairon-fjalls. Eldurinn náði að bæ í um 40 kílómetra fjarlægð frá Aþenu.

Eigandi vindorkuversins er meðal annars sakaður um að hafa ekki hreinsað gróður á svæðinu. Eldur hafði áður kviknað við sömu rafmagnslínu 27. júní.

Skógur, kjarrlendi og ólífulundir urðu eldinum að bráð. Þá skemmdust meira en 120 hús og aðrar byggingar í strandbænum Porto Germeno við Korintuflóa.

Tugir gróðurelda hafa geisað í Grikklandi frá lokum júlí og hafa að minnsta kosti fimm manns látið lífið, þar á meðal þrír slökkviliðsmenn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ingunn Björk Jónsdóttir er látin
Minning

Ingunn Björk Jónsdóttir er látin

Svaf ölvunarsvefni í Garðabæ
Innlent

Svaf ölvunarsvefni í Garðabæ

Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði
Heimur

Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði

Asískur dýrgripur í Laugardalnum
Innlent

Asískur dýrgripur í Laugardalnum

Lögfræðingur vistaður á brókinni í fjórar klukkustundir
Innlent

Lögfræðingur vistaður á brókinni í fjórar klukkustundir

Nýr bæjarstjóri vill sjá Akureyri stækka
Landið

Nýr bæjarstjóri vill sjá Akureyri stækka

Réttirnar lifandi menningararfur sem vert er að varðveita
Landið

Réttirnar lifandi menningararfur sem vert er að varðveita

Bílaáhrifavaldur látinn eftir bílslys
Myndband
Heimur

Bílaáhrifavaldur látinn eftir bílslys

Rúmlega tíu þúsund börn búa á heimilum undir lágtekjumörkum
Innlent

Rúmlega tíu þúsund börn búa á heimilum undir lágtekjumörkum

Afplánar á Vernd vegna ungs aldurs
Innlent

Afplánar á Vernd vegna ungs aldurs

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt
Heimur

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt

Hólmbert Friðjónsson er fallinn frá
Minning

Hólmbert Friðjónsson er fallinn frá

Heimur

Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði
Heimur

Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði

Skelfing á Balí
Eiturefnarannsókn gæti varpað ljósi á dauða Hayden Panettiere
Heimur

Eiturefnarannsókn gæti varpað ljósi á dauða Hayden Panettiere

Bílaáhrifavaldur látinn eftir bílslys
Myndband
Heimur

Bílaáhrifavaldur látinn eftir bílslys

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt
Heimur

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt

Banaslys við köfun á Tenerife
Heimur

Banaslys við köfun á Tenerife

Skemmdarvargar réðust á minnisvarða um Charlie Kirk
Myndir
Heimur

Skemmdarvargar réðust á minnisvarða um Charlie Kirk

Loka auglýsingu