Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur blandað sér í umræðuna um mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið og segist telja að innganga Íslands í sambandið yrði jákvætt fyrir Ísland.
Baltasar ræddi málið í hlaðvarpinu Chess After Dark og greindi DV frá ummælum hans. Þar sagðist hann upphaflega ekki hafa ætlað að taka þátt í umræðunni og gerði ráð fyrir að fá hörð viðbrögð við afstöðu sinni. Hann teldi sig þó knúinn til að tala frá hjartanu.
Baltasar gagnrýndi meðal annars málflutning gegn Evrópusambandsaðild og sagðist eiga erfitt með að meðtaka harðan áróður, sérstaklega þegar honum væri haldið uppi af fyrirtækjum sem sjálf gerðu upp í evrum. Spurði hann hvers vegna svo miklu fjármagni væri varið í baráttuna gegn aðild.
Hann hafnaði jafnframt þeim sjónarmiðum að aðild að Evrópusambandinu myndi grafa undan sjálfsvitund Íslendinga og benti meðal annars á Frakka og Spánverja í því samhengi.
Baltasar rifjaði upp að hafa búið og starfað í Evrópu á árum þegar ferðafrelsi var mun takmarkaðra en nú. Að hans mati hafi opnari landamæri, aukið aðgengi að námi og frjálsari viðskipti haft mikinn ávinning í för með sér.
„Ég held að með því að taka fullt skref inn í þetta væri gæfuskref fyrir Ísland. Ég trúi því, einlæglega,“ sagði Baltasar.
Hann sagði jafnframt að í óstöðugu alþjóðlegu ástandi væri Íslandi betur borgið í nánu bandalagi við Evrópuþjóðir sem deildu svipuðum gildum.

